„Það þarf eitthvað til að höggva á hnútinn“ Fanndís Birna Logadóttir skrifar 18. mars 2023 19:34 Formaður Rafiðnaðarsambandsins segir að viðræðurnar hafi ekki gengið nægilega vel. Vísir/Vilhelm Engin lausn virðist í sjónmáli í kjaraviðræðum Rafiðnaðarsambandsins og Félags vélstjóra og málmtæknimanna við Orkuveitu Reykjavíkur, að sögn formanns Rafiðnaðarsambandsins. Viðræður við önnur orkufyrirtæki gangi einnig hægt sem hægi á allri vinnu við langtímasamninga. Eitthvað þurfi til að höggva hnútinn og eru verkfallsaðgerðir ekki úr myndinni.
Viðræður Rafiðnaðarsambandsins og VM, félags vélstjóra og málmtæknimanna við Orkuveitu Reykjavíkur hafa staðið yfir að undanförnu þar sem þrýst hefur verið á að endurnýja samninga sem runnu út í nóvember. Í yfirlýsingu í vikunni var greindu VM og Rafiðnaðarsambandið frá því að viðræður hafi siglt í strand. „Þessar viðræður hafa ekki gengið nægilega vel að okkar mati og það lýsir sér bara í því að við erum ekki komin með kjarasamning enn þá og staðan er ekki þannig að maður sjái einhverja lausn í sjónmáli,“ segir Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðnaðarsambandsins. Mikil vonbrigði Í grunninn vilji þau ná samningi sem sé í takt við þá sem hafa verið gerðir á almenna vinnumarkaðinum. Það hafi ekki tekist, sem sé áhyggjuefni. Viðræður við önnur orkufyrirtæki, svo sem Landsvirkjun, hafi sömuleiðis gengið hægt. Um sé að ræða skammtímasamninga sem mikilvægt sé að klára sem fyrst til að geta hafið viðræður um langtímasamning. „Meginmarkmið samningsaðila hefur verið það að hefja viðræður upp á nýtt og á meðan þetta er enn óleyst þá er það auðvitað að tefja fyrir allri slíkri vinnu. Þannig það eru auðvitað mikil vonbrigði,“ segir Kristján. Möguleiki á verkföllum Félagsfólk hefur verið boðað á fund klukkan ellefu á mánudag til þess að ræða næstu skref í viðræðunum við Orkuveituna en vonir eru bundnar við að fyrirtækið komi að samningsborðinu. Óljóst er hvað þurfi til en aðspurður um hvort komið gæti til verkfallsaðgerða segist Kristján ekki vita hvað verður. „Auðvitað er möguleiki að beita slíku en við þurfum bara að heyra það frá okkar fólki hvað það vill gera. En það er ljóst að núverandi staða mun að óbreyttu ekki ganga upp þannig það þarf eitthvað til að höggva á hnútinn,“ segir Kristján.
Kjaraviðræður 2022-23 Kjaramál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Erlent Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Innlent Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Erlent Leyfislausar tjaldbúðir og sundsprettur eftir lokun Innlent Samtök hernaðarandstæðinga fordæma „kúvendingu“ á afstöðu Íslands Innlent Kínverjar vara Bandaríkjamenn við að stíga á „rauðu strikin“ Innlent Útlagar spreyjaðir gylltir Innlent Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Innlent Dómstóll fyrirskipar handtöku landbúnaðarráðherra Selenskís Erlent Niðri fyrir vegna Útlaganna Innlent Fleiri fréttir Niðri fyrir vegna Útlaganna Bein útsending: Forsetaefnin skila inn framboðum sínum í Hörpu Kínverjar vara Bandaríkjamenn við að stíga á „rauðu strikin“ Samtök hernaðarandstæðinga fordæma „kúvendingu“ á afstöðu Íslands Leyfislausar tjaldbúðir og sundsprettur eftir lokun Framboðslistar opinberaðir eftir helgi Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Glæsileg þjóðbúningamessa á Hvolsvelli Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Forsetaslagurinn, leit að eiganda fjármuna og rjómablíða Fjölbreytt verkefni hjá björgunarsveitum í dag Útlagar spreyjaðir gylltir Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Sinueldur í Reykjanesbæ Pétur Einarsson leikari látinn Kólnar á öllu landinu eftir óvenjugóðan fyrsta sumardag „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Fimm teravött af orku og 20 milljarðar í samgöngur Seltjarnarnesbær gengur frá sölu á Safnatröð Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Umdeilt frumvarp, íslenskan og sumarveðrið Eiríkur og Bjarni takast á um nefnd um íslenska tungu Ræða mest málefni íslenskunnar á fundum enskumælandi ráðs Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Segir borgarstjóra óttalegan vettling Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Stefnir í sólríkan og hlýjan sumardag fyrsta víða um land Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Sjá meira