Banna tveimur bestu mönnum Íslands að fara á EM Sindri Sverrisson skrifar 2. júní 2023 08:31 Kristian Nökkvi Hlynsson hefur verið kallaður „hinn íslenski De Bruyne“ og verið algjör lykilmaður í U19-landsliðinu. VÍSIR/HULDA MARGRÉT Afar ólíklegt er að Ísland geti teflt fram tveimur af sínum allra bestu leikmönnum á Evrópumóti U19-landsliða karla í fótbolta í næsta mánuði.
Þetta herma heimildir Vísis en svo virðist sem að hollenska félagið Ajax vilji ekki hleypa Kristian Nökkva Hlynssyni á mótið, og að danska félagið FC Kaupmannahöfn setji Orra Steini Óskarssyni sömuleiðis stólinn fyrir dyrnar. Öfugt við landsliðsverkefni A-landsliða og U21-landsliða þá er félögum ekki skylt að láta leikmenn sína af hendi á Evrópumót U19-landsliða. Það er því í þeirra höndum að gefa leyfi fyrir því að KSÍ fái leikmenn á mótið og í langflestum tilfellum mun það ganga eftir. Enn er þó tími til stefnu fyrir KSÍ til að sannfæra forráðamenn Ajax og FCK um að hleypa Kristian og Orra á mótið, en íslenski hópurinn verður kynntur í næstu viku. EM fer fram á Möltu 3.-16. júlí og er Ísland eitt af aðeins átta liðum sem spila á lokamótinu, eftir að hafa meðal annars slegið út ríkjandi meistara Englands í milliriðlakeppninni. Ísland vann England 1-0, Ungverjaland 2-0 og gerði 2-2 jafntefli við Tyrkland í milliriðlakeppninni, og skoraði Orri þrjú marka Íslands og Kristian eitt. Orri Steinn Óskarsson, Ágúst Eðvald Hlynsson og Kristian Nökkvi Hlynsson fagna marki með U21-landsliðinu síðasta sumar.VÍSIR/HULDA MARGRÉT Íslensku félögin fá að færa leiki Ljóst er að EM U19-landsliða karla og kvenna, sem bæði fara fram í júlí, hafa umtalsverð áhrif á leikjadagskrána í Bestu deildunum. Ekki er vitað til þess að nokkurt íslenskt félag ætli að banna leikmanni að fara á EM og virðist samstaða um að gera íslensku landsliðunum kleyft að ná sem bestum árangri. Hins vegar mun þátttaka á mótunum hafa mismikil áhrif á íslensku liðin og til að mynda gætu 4-6 leikmenn úr karlaliði Stjörnunnar verið á leið á EM. Birkir Sveinsson, mótastjóri KSÍ, segir að orðið verði við óskum félaga um að færa leiki vegna EM, og að nóg sé að annað liðið í hverjum leik fyrir sig óski eftir því. Tveggja vikna ferðalög Áætlað er að íslenski hópurinn sem fer á EM U19 karla fari af landi brott 30. júní, að lokinni 13. umferð Bestu deildarinnar, og spilar liðið við Spán 4. júlí, Noreg 7. júlí og Grikkland 10. júlí, og svo mögulega í undanúrslitum 13. júlí og úrslitum 16. júlí. Lengra er í að EM U19 kvenna fari fram en það er haldið í Belgíu. Ísland mætir Spáni í fyrsta leik 18. júlí, Tékklandi 21. júlí og Frakklandi 24. júlí, og spilar svo mögulega í undanúrslitum 27. júlí og úrslitum 30. júlí.
Landslið karla í fótbolta Mest lesið Harma auglýsingar á gólfi og vilja banna þær eftir meiðsli Martins Körfubolti Segir aðeins þau hlutlausu hafa skemmt sér yfir fótbolta Ten Hag Enski boltinn Rangnick hafnar Bayern München Fótbolti Fengið nóg af því að vera ruslakista fyrir viðbjóð frá fólki Körfubolti Drakk átta bjóra fyrir beina útsendingu Fótbolti Veikur og meiddur Doncic fór á kostum og Boston flaug áfram Körfubolti Ómar Ingi skaut Evrópumeisturunum áfram eftir vítakeppni Handbolti FH fékk tvær sektir frá KSÍ Íslenski boltinn Bucks í sögubækurnar eftir sigurinn á Pacers Körfubolti Dortmund tók aukasætið sem ensku liðin dreymdi um Fótbolti Fleiri fréttir Tekur fyrir að starfsfólk Manchester United vinni að heiman Skúrkurinn endaði sem hetjan Drakk átta bjóra fyrir beina útsendingu Dortmund tók aukasætið sem ensku liðin dreymdi um Rangnick hafnar Bayern München Segir aðeins þau hlutlausu hafa skemmt sér yfir fótbolta Ten Hag FH fékk tvær sektir frá KSÍ Dortmund leiðir þökk sé þrumuskoti Füllkrug Logi kom inn af bekknum og skoraði í stórsigri Mark dæmt af Bjarka og dramatík hjá Alexöndru Sjáðu mörkin úr stórleiknum í München Júlíus og félagar unnu frækinn bikarsigur á Rosenborg Kenndi gráðugum Kim um bæði mörkin gegn Real Madrid Lewandowski gæti verið seldur á brunaútsölu Barcelona Bellingham reyndi að taka Kane á taugum fyrir vítið Heillaóskum rigndi yfir fimmtán ára hetju Fram í skólanum „Vestri hefur verið að taka leikhlé“ Courtois ekki með Belgíu á EM Einvígið galopið eftir jafntefli í Þýskalandi „Þú veist alveg svarið við þessu“ Sextán ára og skoraði hjá Arsenal eins og Rooney forðum Víkingar bjóða Grindvíkingum í Víkina á morgun „Real Madrid lofaði mér að ég yrði arftaki Modric“ Félögin sömdu um að banna Sigurbergi að spila Tuchel fullyrti að Gnabry muni skora á móti Real Madrid í kvöld Þrír Íslendingar í liði umferðarinnar Gáttaðar á því að fyrirliði Víkings var settur á bekkinn Guy Smit sendir frá sér afsökunarbeiðni Keflavík og Aftureldingu spáð sigri í Lengjudeildunum Bara Eiður Smári og Bjargvætturinn höfðu skorað fyrir sextán ára afmælið Sjá meira