Olympiacos í úrslitaleikinn

Leikmenn Olympiacos fagna Ayoub el-Kaabi eftir seinna mark hans í …
Leikmenn Olympiacos fagna Ayoub el-Kaabi eftir seinna mark hans í kvöld. AFP/Angelos Tzortzinis

Gríska knattspyrnufélagið Olympiacos leikur til úrslita í Sambandsdeild karla í fótbolta eftir að hafa sigrað enska liðið Aston Villa öðru sinni í kvöld, 2:0 á heimavelli sínum í Pireus.

Grikkirnir voru í kjörstöðu eftir sigur, 4:2, í fyrri leiknum í Birmingham og enska liðið náði ekki að ógna því eftir að Ayoub El Kaabi skoraði strax á 10. mínútu. Hann innsiglaði síðan sigurinn með öðru marki á 81. mínútu, lokatölur voru 2:0 og Olympiacos vann einvígið samanlagt 6:2.

Úrslitaleikurinn fer fram í Aþenu og því stutt að fara fyrir Olympiacos sem er frá hafnarborg Aþenu, Pireus. Þar verður andstæðingurinn Fiorentina frá Ítalíu sem hafði betur í hinu undanúrslitaeinvíginu í gær og vann Club Brugge frá Belgíu 3:2 samanlagt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert