Körlum aftur boðið að fá bóluefni AstraZeneca Eiður Þór Árnason skrifar 9. apríl 2021 16:55 Ísland fær alls um 230 þúsund skammta af bóluefni AstraZeneca sem duga fyrir um 115 þúsund einstaklinga. Vísir/Vilhelm Sóttvarnalæknir hefur útvíkkað þann hóp sem fær bóluefni AstraZeneca gegn Covid-19. Verður körlum á öllum aldri og konum 55 ára og eldri nú boðið í bólusetningu með efninu.
Fram að þessu hafði bóluefnið einungis verið í boði fyrir 70 ára og eldri hér á landi eftir að notkun þess hófst á ný í lok mars. Hlé var um tíma gert á bólusetningu með efninu á meðan hugsanlegar aukaverkanir voru rannsakaðar. Evrópska lyfjastofnunin (EMA) tilkynnti á dögunum að möguleg tengsl væru milli sjaldgæfra tilfella blóðtappa og bólusetningar með bóluefni AstraZeneca en flest tilfellin hafi greinst hjá konum yngri en 60 ára. EMA hefur þó gefið út að ávinningur notkunar bóluefnisins sé meiri en áhættan. Fram kemur á vef landlæknis að Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hafi fengið álit sérfræðinga í blóðstorkuvandamálum á Landspítala varðandi þá hópa sem frekar ætti að gefa mRNA bóluefni á borð við þau frá Moderna og Pfizer/BioNTech. Verður eftirfarandi hópum boðið annað bóluefni en það frá AstraZeneca: Konur undir 55 ára (vegna aukinnar grunnáhættu yngri kvenna á blóðtappamyndun í heilaæðum umfram karla) Einstaklingar með fyrri sögu um blóðtappa í bláæðum án þekktra áhættuþátta (sjálfsprottna bláæðasega), hvort sem þeir eru á blóðþynnandi lyfjum eða ekki Einstaklingar með undirliggjandi mikið aukna hættu á bláæðasegum svo sem sjúklingar með beinmergsfrumuaukningu á borð við langvinnt mergfrumuhvítblæði, frumkomið rauðkornablæði, sjálfvakið blóðflagnablæði og frumkomin beinmergstrefjun – þar með taldir sjúklingar með JAK2 stökkbreytingar með PNH (köstótt næturblóðrauðamiga) með lupus anticoagulant/antiphospholipid syndrome, það er sjúklingar með sjálfsmótefni sem auka hættu á bláæðasegum á lenalidomid meðferð við beinmergsmeinum Einstaklingar sem þetta á við um verða merktir sérstaklega í bólusetningakerfinu og ættu að fá boð í mRNA bólusetningu en ekki bóluefni AstraZeneca þegar kemur að bólusetningu þeirra. Stefnt er að því að ljúka merkingunni fyrir lok apríl, að sögn sóttvarnalæknis. Fram kemur á vef landlæknis að þeir sem falla undir áðurnefnda hópa og hafa nú þegar afþakkað boð í bólusetningu eða ekki mætt eigi von á að fá nýtt boð eftir það og þá í mRNA bóluefni. Evrópska lyfjastofnunin hefur lagt áherslu á að tilvik blóðtappa eftir bólusetningu séu ákaflega sjaldgæf. Heildarávinningur af notkun bóluefnis AstraZeneca gegn Covid-sýkingu er sögð þyngra en áhætta af mögulegum aukaverkunum þar sem bóluefnið komi í veg fyrir alvarleg veikindi og dauðsföll. Samkvæmt rannsóknum er fólk í mun meiri hættu að fá blóðtappa veikist það af Covid-19 en ef það er bólusett með AstraZeneca bóluefninu. Fréttin hefur verið uppfærð.
Bólusetningar Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Tengdar fréttir Kanna tilkynningar um blóðtappa eftir Janssen-bólefni Lyfjastofnun Evrópu rannskara nú tilkynningar um sjaldgæfa tegund blóðtappa hjá fólki sem fékk bóluefni Janssen gegn kórónuveirunni. Ekki er ljóst hvort að orsakasamhengi sé á milli bóluefnisins og blóðtappanna. 9. apríl 2021 12:42 Fjórir af milljón gætu fengið blóðtappa: Missti bróður sinn en hvetur fólk samt til að þiggja bólusetningu Systir manns sem lést eftir að hafa fengið sjaldgæfan blóðtappa í heila í kjölfar bólusetningar með bóluefninu frá AstraZeneca, segir hann hafa verið ótrúlega óheppinn og hvetur fólk til að þiggja bólusetningu. 9. apríl 2021 06:50 Einhverjir mættu fyrr í von um að fá Pfizer en ekki AstraZeneca Spurst hafði að í dag sé verið að bólusetja með Pfizer og vildu því einhverjir skjóta sér fram fyrir röðina í bólusetninguna. 7. apríl 2021 15:05 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Fylgi Höllu hrundi eftir kappræðurnar á RÚV Innlent Börnum safnað saman og þau skotin Erlent Meintur fjárdráttur mikið áfall fyrir starfsfólk skólans Innlent Eldvörp líkleg næst Innlent Ellefu slasaðir eftir að flugtak Boeing 737 mistókst Erlent Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Innlent María Sigrún birtir tölvupósta Dags Innlent Sýknaður af nauðgun en enginn vafi að konan telji á sér brotið Innlent Fylgjast grannt með gangi mála Innlent Skotið á íbúa Rafah og heilbrigðiskerfi Gasa hrunið Erlent Fleiri fréttir Ræktar 95 tegundir af túlípönum í Mosfellsdal Dýrin séu dauð, veik, horuð og í miklum vanhöldum Ríkisstjórn þurfi að gera meira í þágu vopnahlés Dauð lömb á túni, árás á Rafah og Eurovision Maður sem áreitir börn í Hafnarfirði til rannsóknar Sýknaður af nauðgun en enginn vafi að konan telji á sér brotið Fylgi Höllu hrundi eftir kappræðurnar á RÚV Sinubruni við Hellisskóg á Selfossi 150 þolendum sinnt vegna ofbeldis í nánu sambandi Meintur fjárdráttur mikið áfall fyrir starfsfólk skólans Stóra Svört bar fimm svörtum lömbum Eldgosinu lokið, meintur fjárdráttur og manndrápsrannsókn Eldvörp líkleg næst Rannsókn vegna meints manndráps í Kiðjabergi miðar vel Samanburður við lóðamál olíufélaganna eins „fjarri sannleikanum og hægt er“ Guðríður Hrund skipuð skólameistari MK Eldgosinu lokið eftir 54 daga Leggja aftur fram tillögu um að selja húsnæði MÍR Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur Fylgjast grannt með gangi mála Margt bendi til þess að gosinu sé lokið María Sigrún birtir tölvupósta Dags „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Sækja veikan sjómann Eldur í iðnaðarhúsnæði á Höfða Efstar með ómarktækan mun á milli sín Fjögurra bíla árekstur efst í Ártúnsbrekku Björn Leví segir Harald hafa fundið skálkaskjól í orðum Bjarna Sjá meira
Kanna tilkynningar um blóðtappa eftir Janssen-bólefni Lyfjastofnun Evrópu rannskara nú tilkynningar um sjaldgæfa tegund blóðtappa hjá fólki sem fékk bóluefni Janssen gegn kórónuveirunni. Ekki er ljóst hvort að orsakasamhengi sé á milli bóluefnisins og blóðtappanna. 9. apríl 2021 12:42
Fjórir af milljón gætu fengið blóðtappa: Missti bróður sinn en hvetur fólk samt til að þiggja bólusetningu Systir manns sem lést eftir að hafa fengið sjaldgæfan blóðtappa í heila í kjölfar bólusetningar með bóluefninu frá AstraZeneca, segir hann hafa verið ótrúlega óheppinn og hvetur fólk til að þiggja bólusetningu. 9. apríl 2021 06:50
Einhverjir mættu fyrr í von um að fá Pfizer en ekki AstraZeneca Spurst hafði að í dag sé verið að bólusetja með Pfizer og vildu því einhverjir skjóta sér fram fyrir röðina í bólusetninguna. 7. apríl 2021 15:05