Embættismaður og Trump-liði tók þátt í árásinni á þingið Samúel Karl Ólason skrifar 5. mars 2021 13:54 Klein var einn þeirra sem reyndi að ryðja sér leið í gegnum tálma lögreglu við inngang þinghússins. FBI Útsendarar Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) handtóku í gær mann sem var starfaði í ríkisstjórn Donalds Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, fyrir að hafa tekið þátt í árásinni á þinghúsið þann 6. janúar.
Maðurinn, Federico G. Klein, starfaði þá hjá utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna, þar sem hann var skipaður í embætti af Trumps samkvæmt New York Times, en hafði áður starfað við framboð forsetans fyrrverandi. Hann er fyrsti meðlimur ríkisstjórnar Trumps sem er handtekinn vegna árásarinnar. Hann er sakaður í dómsskjölum um að hafa veist af lögregluþjónum með ofbeldi og hótunum. Þó mun hann hafa tekið óeirðaskjöld af lögregluþjóni og notað hann til að berja aðra lögregluþjóna og halda hurð inn í þinghúsið opinni. Klein tók óreiðaskjöld af lögregluþjóni og notaði hann meðal annars til að berja lögregluþjóna.FBI Klein, sem er fyrrverandi landgönguliði, sést á myndböndum sem tekin voru í árásinni vera með rauða derhúfu á höfði sínu, sem á stóð „Make America Great Again“. Þar reyndi hann að brjóta sér leið í gegnum tálma lögreglunnar og kallaði hann eftir aðstoð fleiri sem sóttu mótmælin við þinghúsið þann dag. Rúmlega 300 hafa verið ákærðir við rannsókn yfirvalda á árásinni á þinghúsið. Þá ruddu stuðningsmenn Trumps sér leið inn í húsið með því markmiði að stöðva formlega staðfestingu niðurstaða forsetakosninganna í nóvember. Trump tapaði kosningunni en hefur haldið því fram að umfangsmikið svindl hafi kostað hann sigur. Hann og bandamenn hans hafa ekki getað fært sannanir fyrir því og embættismenn, sérfræðingar og aðrir, þar á meðal dómsmálaráðherra Trumps, segja ásakanirnar innihaldslausar. Margir þeirra sem hafa verið ákærðir vegna árásarinnar segjast hafa tekið þátt í henni vegna Trumps.
Bandaríkin Forsetakosningar í Bandaríkjunum Árás á bandaríska þinghúsið Tengdar fréttir Segir ósanngjarnt að hann sé í fangelsi Richard Barnett, sem naut fimmtán mínútna heimsfrægðar í árásinni á þinghús Bandaríkjanna þann 6. janúar, er ekki sáttur við að sitja í fangelsi. Hann missti stjórn á sér í dómsal í gær og gargaði á dómara í gegnum fjarfundarbúnað að hann ætti ekki að þurfa að sitja inni fram að réttarhöldum. 5. mars 2021 11:28 Í reipitogi um kosningaréttinn Demókratar í fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykktu í gær umfangsmiklar reglur varðandi kosningar og siðferði innan opinbera geirans. Frumvarpið var samþykkt að mestu eftir flokkslínum 220-210. 4. mars 2021 13:44 Aukin öryggisgæsla við bandaríska þinghúsið Öryggisgæsla hefur verið aukin umhverfis þinghúsið í Washington í Bandaríkjunum þar sem lögregla óttast að aftur verði reynt að ráðast inn í húsið líkt og gerðist þegar kjör Joe Bidens var formlega staðfest í byrjun janúar þar sem fimm létu lífið. 4. mars 2021 07:02 Sakaður um drykkju og neyslu lyfja í starfi sem læknir Hvíta hússins Í starfi sínu sem læknir Hvíta hússins, talaði Ronny Jackson með niðrandi og kynferðislegum hætti um kvenkyns undirmann sinn. Þá drakk hann í vinnunni og neytti svefnlyfja svo samstarfsmenn hans höfðu áhyggjur af því að hann gæti ekki sinnt skyldum sínum. 3. mars 2021 11:00 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Erlent Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Innlent Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Innlent Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Innlent Voru sérstaklega varaðir við árás frá ISKP Erlent Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Innlent „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Innlent Átta ára stúlka sú eina sem lifði rútuslys af Erlent „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Innlent Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Innlent Fleiri fréttir Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Átta ára stúlka sú eina sem lifði rútuslys af Voru sérstaklega varaðir við árás frá ISKP Kallaði eftir aðstoð dráttarbáts skömmu fyrir slysið Rafmyntakóngurinn í 25 ára fangelsi Fundu lík tveggja verkamanna sem voru á brúnni Stjórnmálamaðurinn Joe Lieberman látinn Segir árásarmennina hafa ætlað til Belarús Taíland skrefinu nær því að leyfa samkynja hjónabönd Dómararnir virtust efast um réttmæti málsins gegn FDA Skammar lögreglu fyrir að nota lego til að dylja andlit sakborninga Japanskt fyrirtæki skiptir ungbarnableyjum út fyrir fullorðinsbleyjur Þeir sem fóru í ána taldir látnir Sakar Bandaríkjamenn og Breta um aðkomu að árásinni Kenna öryggisráðinu um „galnar“ kröfur Hamas Skipið varð vélarvana rétt áður en það hafnaði á brúnni Segja minnst sjö bíla hafa fallið í ána Assange verður ekki framseldur strax Leita fólks í ánni eftir að brúin hrundi Hverjir eru ISKP? Skæðasti angi Íslamska ríkisins teygir anga sína til Moskvu Strangtrúaðir æfir yfir því að verða mögulega skikkaðir til herþjónustu Brú hrundi eftir árekstur í Baltimore Gerðu húsleit hjá Diddy í Los Angeles og Miami Beinir spjótunum enn að Úkraínu Stórmál fari Ísrael ekki eftir ályktun öryggisráðsins Netanjahú í fýlu við Biden Lækka trygginguna meðan Trump áfrýjar Öryggisráð SÞ samþykkir ályktun um vopnahlé á Gasa Heita hefndum en freista þess enn að bendla Úkraínu við árásina Vísindamenn vilja friðlýsa vísindalega mikilvæg svæði á tunglinu Sjá meira
Segir ósanngjarnt að hann sé í fangelsi Richard Barnett, sem naut fimmtán mínútna heimsfrægðar í árásinni á þinghús Bandaríkjanna þann 6. janúar, er ekki sáttur við að sitja í fangelsi. Hann missti stjórn á sér í dómsal í gær og gargaði á dómara í gegnum fjarfundarbúnað að hann ætti ekki að þurfa að sitja inni fram að réttarhöldum. 5. mars 2021 11:28
Í reipitogi um kosningaréttinn Demókratar í fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykktu í gær umfangsmiklar reglur varðandi kosningar og siðferði innan opinbera geirans. Frumvarpið var samþykkt að mestu eftir flokkslínum 220-210. 4. mars 2021 13:44
Aukin öryggisgæsla við bandaríska þinghúsið Öryggisgæsla hefur verið aukin umhverfis þinghúsið í Washington í Bandaríkjunum þar sem lögregla óttast að aftur verði reynt að ráðast inn í húsið líkt og gerðist þegar kjör Joe Bidens var formlega staðfest í byrjun janúar þar sem fimm létu lífið. 4. mars 2021 07:02
Sakaður um drykkju og neyslu lyfja í starfi sem læknir Hvíta hússins Í starfi sínu sem læknir Hvíta hússins, talaði Ronny Jackson með niðrandi og kynferðislegum hætti um kvenkyns undirmann sinn. Þá drakk hann í vinnunni og neytti svefnlyfja svo samstarfsmenn hans höfðu áhyggjur af því að hann gæti ekki sinnt skyldum sínum. 3. mars 2021 11:00