Skoraði þrennu í sjö marka tapi Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 21. júlí 2021 14:00 Barbra Banda átti frábæran leik í sjö marka tapi Sambíu í kvöld. Pablo Morano/Getty Images Barbra Banda mun seint gleyma leik Sambíu og Hollands á Ólympíuleikunum í knattspyrnu sem fram fór í dag. Hún skoraði öll þrjú mörk Sambíu í 3-10 tapi. Þá skoraði Christine Sinclair sitt 187. landsliðsmark í 300. leiknum sínum fyrir Kanada.
Ólympíuleikarnir byrja með látum ef horft er til knattspyrnuhluta leikanna. Fyrr í dag vann Svíþjóð frækinn sigur á Bandaríkjunum en þær síðarnefndu höfðu ekki tapað í 44 leikjum í röð fram að leik dagsins. Lokatölur þar 3-0 en á sama tíma vann Bretland 2-0 sigur á Síle og Brasilía vann 5-0 stórsigur á Kína. Nú eftir hádegi lauk þremur leikjum þar sem Barbra Banda, framherji Sambíu, stal senunni með þrennu gegn Hollandi er liðin mættust í F-riðli. Eini gallinn er að Holland skoraði tíu mörk, þar af gerði stórstjarnan Vivianne Miedema fernu. Miedema kom Hollandi yfir á 9. mínútu og fimm mínútum síðar tvöfaldaði Lieke Martens forystuna. Staðan var orðin 3-0 eftir stundarfjórðung en Banda minnkaði muninn á 19. mínútu. Í kjölfarið liðu tíu mínútur áður en Miedema skoraði sitt þriðja mark í leiknum og kom Hollandi 4-1 yfir. Hattrick-hero #ZAMNED #Tokyo2020 pic.twitter.com/uFiBbtlj98— OranjeLeeuwinnen (@oranjevrouwen) July 21, 2021 Martens bætti við öðru marki sínu og fimmta marki Hollands áður en Shanice van de Sanden kom Hollandi í 6-1 undir lok fyrri hálfleiks. Miedema skoraði fjórða mark sitt sem og þær Jill Roord, Lineth Beerensteyn og Victoria Pelova bættu við mörkum áður en Banda skoraði tvívegis á tveimur mínútum undir lok leiks. Lokatölur því 10-3 í hreint út sagt ótrúlegum fótboltaleik. Banda varð þar með fyrsta konan frá Afríku til að skora þrennu á Ólympíuleikunum. History for Barbra Banda. The first female African player to score three goals at the @Olympics.The previous best was two goals, set by Mercy Akide for Nigeria in 2000. https://t.co/qnGpD2t9iZ— Craig Hadley (@craighadlee) July 21, 2021 Veislan var ekki búin þar en leikur Sambíu og Hollands stendur upp úr fyrir margar sakir. Barbra Banda, 21 árs framherji Sambíu og Shanghai Shengli í Kína, gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu. Gallinn er að Holland skoraði tíu mörk í leiknum. Hin 38 ára gamla Christine Sinclair hélt upp á 300. landsleik sinn fyrir Kanada með því að skora eina mark liðsins í 1-1 jafntefli gegn Japan. Christine Sinclair scores her 187th international goal on her 300th appearance for Canada! pic.twitter.com/jWPpyWFyqE— B/R Football (@brfootball) July 21, 2021 Var þetta 187. landsliðsmark Sinclair á ferlinum. Sinclar er aðeins fjórði leikmaður sögunnar til að spila yfir 300 A-landsleiki fyrir þjóð sína. Að lokum vann Ástralía 2-1 sigur á nágrönnum sínum í Nýja-Sjálandi.
Fótbolti Ólympíuleikar 2020 í Tókýó Mest lesið Booker um sparkið í stellið: „Partur af körfuboltanum en þetta var allt of mikið“ Körfubolti Dagný ánægð að vera mætt aftur til æfinga Enski boltinn „Þurfum á öllum að halda fyrir loka áhlaup í deildinni“ Fótbolti „Hlakka rosalega til að sjá troðfullt hús á mánudaginn“ Körfubolti Þjálfari Hákon Arnars: „Áttum skilið að fara áfram“ Fótbolti Ramos rekinn úr húsi fyrir að sparka í klof Bookers Körfubolti Ósáttur með dómara leiksins: „Eins og að spila gegn fjórtán mönnum“ Fótbolti Uppgjör og viðtöl: Njarðvík - Þór Þ. 107-110 | Þórsarar sigri frá undanúrslitum Körfubolti Lét leikmenn Tindastóls heyra það: Fólk hérna á þetta ekki skilið Körfubolti Liverpool úr leik þrátt fyrir sigur á Ítalíu Fótbolti Fleiri fréttir Dagný ánægð að vera mætt aftur til æfinga Þjálfari Hákon Arnars: „Áttum skilið að fara áfram“ „Þurfum á öllum að halda fyrir loka áhlaup í deildinni“ Ósáttur með dómara leiksins: „Eins og að spila gegn fjórtán mönnum“ Rómverjar svífa um á bleiku skýi De Rossi Liverpool úr leik þrátt fyrir sigur á Ítalíu Leverkusen neitar að tapa Hákon Arnar lagði upp þegar Lille féll úr leik eftir vítaspyrnukeppni Markadrottningin mun ná þrettán árum hjá franska félaginu Hjartað var ekki vandamálið þegar Roma maðurinn hneig niður Slakt gengi City, Arsenal og Liverpool í Evrópu slæmar fréttir fyrir United Sjáðu ótrúlega vítakeppni gærkvöldsins: „Vá hvað þetta var skrýtið“ Neville orðlaus: „Var þetta gert opinbert á sínum tíma?“ Besta-spáin 2024: Svífa áfram á bleika skýinu Segir að Haaland hafi beðið um skiptingu Læknar sögðu Arnór heppinn að ekki skyldi hafa farið verr Besta-spáin 2024: Ekkert Murr Murr Klopp ætlar rifja upp frægu Barcelona ræðu sína í kvöld Skulda Ronaldo meira en milljarð og hafa kannski ekki efni á Alberti „Er eiginlega ennþá í sjokki“ Romário tekur fram skóna til að spila með syninum „Þetta er töfrum líkast“ „Ég get ekki fundið réttu orðin“ Real sló meistarana úr leik eftir vítakeppni Kimmich tryggði Bayern sæti í undanúrslitum Öruggt hjá Chelsea sem jafnaði City á toppnum Þrenna frá Maríu þegar Fortuna flaug í bikarúrslit Þróttarar kjósa um nýtt merki Forseti Frakklands setur pressu á Real Madrid Arteta segir að sigur á Bayern myndi breyta Arsenal Sjá meira