Heard vill úrskurðinn gegn sér felldan niður Samúel Karl Ólason skrifar 4. júlí 2022 23:38 Johnny Depp og Amber Heard. AP Lögmenn leikkonunnar Amber Heard hafa farið fram á það við dómara að úrskurðurinn í máli Johnny Depps, fyrrverandi eiginmanns hennar, gegn henni verði felldur niður og ný réttarhöld fari fram. Hún var nýverið dæmd til að greiða honum tæpar tvo milljarða króna í skaðabætur fyrir meiðyrði.
Krafan byggir á því að sönnunargögn hafi ekki stutt úrskurðinn í áðurnefndu máli og að einn kviðdómenda hafi mögulega ekki raunverulega átt að vera í kviðdómnum. Þar að auki segja lögmennirnir að skaðabæturnar hafi verið of háar, samkvæmt frétt AP fréttaveitunnar, en blaðamenn AP hafa komið höndum yfir kröfuna. Depp stefndi Heard fyrir meiðyrði og krafðist fimmtíu milljóna dala í miskabætur, sem samsvarar um 6,5 milljörðum íslenskra króna. Stefnan beinist að grein sem Heard skrifaði og birtist í Washington Post árið 2018 þar sem hún sagðist vera orðin táknmynd þeirra sem hafi lifað við heimilisofbeldi. Heard var dæmd til að greiða honum tíu milljónir dala í miskabætur og fimm milljónir dala í refsibætur. Heard mun þó aðeins þurfa að greiða honum 350 þúsund dali í refsibætur þar sem það er hámark refsibóta í Virginíu, þar sem málaferlin fóru fram. Réttarhöldin voru sýnd í beinni útsendingu á netinu og vöktu þau gríðarlega mikla athygli á heimsvísu. Ítarlega má lesa um niðurstöður kviðdómenda hér að neðan. Lögmenn Heard segja að með réttu hefði Depp þurft að sýna fram á að hann hefði aldrei beitt Heard ofbeldi og sömuleiðis sanna að þegar hún skrifaði áðurnefnda grein, hefði hún ekki trúað því sjálf að hún hefði verið beitt ofbeldi. Þeir segja hvorugt hafa verið sannað í réttarhöldunum. Þvert á móti hafi sönnunargögn réttarhaldanna stutt mál Heard. Að endingu segja lögmennirnir að einn meðlimur kviðdómsins í réttarhöldunum hafi lagt fram gögn um að hann væri fæddur 1945. Hins vegar gefi opinber gögn til kynna að viðkomandi hafi fæðst árið 1970. Lögmennirnir segja það vekja upp spurningar um hvort viðkomandi hafi yfir höfuð fengið boð til kviðdómssetu eða hafi villt á sér heimildir. Það þurfi að rannsaka.
Deilur Johnny Depp og Amber Heard Bandaríkin Tengdar fréttir Heard ætlar að áfrýja Amber Heard ætlar að áfrýja dómi í máli Johnny Depp á hendur henni. Í gær var hún fundin sek um meiðyrði í garð hans og dæmd til að greiða fyrrverandi eiginmanni sínum fimmtán milljónir dollara. 2. júní 2022 15:51 Tróð óvænt upp á tónleikum og bíður úrskurðar kviðdóms Tónleikagestir ráku upp stór augu þegar stórleikarinn Johnny Depp tróð óvænt upp á tónleikum gítarleikarans Jeff Beck's í Yorkshire á sunnudagskvöld. 31. maí 2022 16:30 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Innlent Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Innlent „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Innlent Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Innlent Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent „Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega Innlent Búast má við slyddu Veður Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent Fleiri fréttir Ísrael samþykkir ekki vopnahlé Ísraelsmenn vísa fréttamönnum á dyr Íhaldsflokkurinn laut í lægra haldi í sveitarstjórnarkosningum Tuga enn saknað og 55 látnir Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Auka viðbúnað í aðdraganda Eurovision Forseti Argentínu skýtur föstum skotum á spænsku ríkisstjórnina Berlínarborg vill losna við glæsivillu Göbbels Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Kreml fordæmir ummæli Macrons og Camerons Reyna að sækja fyrsta sýnið frá fjærhlið tunglsins Hlustuðu á Trump og Cohen tala um þagnargreiðslu Danir rýmka reglur um þungunarrof Þrjátíu látnir og tuga saknað eftir flóð í Brasilíu Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Vornanen kastað úr þingflokknum Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Sjá meira
Heard ætlar að áfrýja Amber Heard ætlar að áfrýja dómi í máli Johnny Depp á hendur henni. Í gær var hún fundin sek um meiðyrði í garð hans og dæmd til að greiða fyrrverandi eiginmanni sínum fimmtán milljónir dollara. 2. júní 2022 15:51
Tróð óvænt upp á tónleikum og bíður úrskurðar kviðdóms Tónleikagestir ráku upp stór augu þegar stórleikarinn Johnny Depp tróð óvænt upp á tónleikum gítarleikarans Jeff Beck's í Yorkshire á sunnudagskvöld. 31. maí 2022 16:30