Þyngdu dóm fyrir kynferðisbrot gegn alvarlega fötluðum skjólstæðingi Smári Jökull Jónsson skrifar 3. desember 2021 18:19 Brotin voru framin sumarið 2016 á um þriggja mánaða tímabili. Síðasta skiptið átti sér stað í Heiðmörk. Vísir / Vilhelm Landsréttur þyngdi í dag dóm yfir manni sem á síðasta ári var dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn fötluðum skjólstæðingi sínum. Dómurinn var þyngdur úr tveimur árum í þrjú.
Maðurinn var upphaflega dæmdur í tveggja ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í júlí á síðasta ári. Hann var þá sakfelldur fyrir að hafa fróað skjólstæðingi sínum í þrígang og notfært sér þannig andlega og líkamlega fötlun hans en hinn dæmdi hafði starfað sem stuðningsfulltrúi brotaþola og annast hann í um áratug. Í dómi Landsréttar kemur fram að manninum hafi verið fullljós þroski og skilningur skjólstæðings síns og að brotaþoli hafi ekki við neinar aðstæður haft forsendur eða getu til að óska eftir eða gefa samþykki fyrir verknaði hins dæmda. Í dómnum er ennfremur sagt að maðurinn sé sakfelldur fyrir alvarleg brot gegn ungum fötluðum manni sem honum hafði verið trúað fyrir en hann hafi ítrekað nýtt sér algjört varnarleysi brotaþola og engu skeytt um hann og stöðu hans. Ásetningur hins dæmda til verksins var talinn sterkur. Í ákæru kemur fram að þolandinn sé með djúpa þroskahömlun, ódæmigerða einhverfu, heilalömum og flogaveiki og því hvorki getað spornað við háttsemi mannsins né skilið þýðingu hennar. Samkvæmt niðurstöðu matsmanna, sem fengnir voru til að leggja mat á hæfni brotaþola til að eiga samskipti við ákærða, hefur brotaþoli ekki hæfni til að láta í ljós sjálfstæðan vilja til kynmaka. Endurteknar athuganir á greindarþroska sýna vitsmunaþroska sem samsvarar þroska 18 mánaða barns og líklega yngra. Auk þess að dæma manninn í þriggja ára fangelsi var hann dæmdur til að greiða áfrýjunarkostnað málsins, 1,2 milljónir í skaðabætur til brotaþola auk málsvarnarlauna verjanda síns og þóknun réttargæslumanns brotaþola.
Dómsmál Kynferðisofbeldi Málefni fatlaðs fólks Tengdar fréttir Tveggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn alvarlega fötluðum skjólstæðingi Karlmaður var í Héraðsdómi Reykjavíkur í lok júní dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn skjólstæðingi sínum, ungum manni sem er með alvarlega andlega og líkamlega fötlun. 14. júlí 2020 11:59 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Ástand Fico enn alvarlegt Erlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Býst við aukinni sókn Rússa Erlent Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Innlent Fleiri fréttir Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Sjá meira
Tveggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn alvarlega fötluðum skjólstæðingi Karlmaður var í Héraðsdómi Reykjavíkur í lok júní dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn skjólstæðingi sínum, ungum manni sem er með alvarlega andlega og líkamlega fötlun. 14. júlí 2020 11:59