Segja tímana breytta og kanna sölu á skagfirsku félagsheimilunum Atli Ísleifsson skrifar 25. maí 2023 07:44 Félagsheimilið Ketilás í Fljótum, Árgarður í Steinstaðahverfi, Menningarhúsið Miðgarður í Varmahlíð og Héðinsminni í gamla Akrahreppi eru fjögur þeirra tíu félagsheimila sem sveitarfélagið á að hluta eða að fullu. Byggðarráð Skagafjarðar vill kanna hvort ekki sé skynsamlegt að selja hlut sveitarfélagsins í félagsheimilum sveitarfélagsins til aðila sem sjá tækifæri í að bæta nýtingu húsanna. Tímarnir hafi einfaldlega breyst. Í Sveitarfélaginu Skagafirði eru nú níu félagsheimili, auk Menningarhússins Miðgarðs, og á sveitarfélagið þau ýmist að hluta eða að fullu. Félagsheimilið Ketilás í Fljótum. Brúnastaðir Á fundi byggðarráðs Skagafjarðar í síðustu viku var samþykkt bókun þar sem allir fulltrúar sögðust sammála um að kanna hvort rétt væri að skoða sölu á hlut sveitarfélagsins í félagsheimilunum. Fram kemur að öll eigi félagsheimilin það sameiginlegt að hafa verið byggð upp til að þjónusta nærsamfélagið sem skólar en einnig félagslíf þess hrepps eða hreppa sem það var hugsað fyrir. Félagsheimilið Árgarður í Steinstaðahverfi.Skagafjörður „Að byggingu þeirra komu margir sjálfboðaliðar ásamt frjálsum félagasamtökum eins og ungmennafélögum, kvenfélögum, kórum o.fl. sem gerir það að verkum að margir íbúar eiga tilfinningaleg tengsl við húsin, enda geymir saga þeirra marga minninguna. En tímarnir hafa breyst og samgöngur batnað ásamt því að bæði skólar og félagasamtök hafa sameinast yfir stærri svæði. Einnig hefur orðið uppbygging á t.d. íþróttamannvirkjum og hjá ferðaþjónustuaðilum sem hafa tekið yfir hluta þeirra verkefna sem félagsheimilin höfðu áður,“ segir í bókuninni. Félagsheimilin í Skagafirði: Félagsheimili Rípurhrepps Félagsheimilið Árgarður Félagsheimilið Bifröst Félagsheimilið Héðinsminni Félagsheimilið Ketilás Félagsheimilið Ljósheimar Félagsheimilið Melsgil Félagsheimilið Skagasel Félagsheimiliið Höfðaborg Menningarhúsið Miðgarður Þarf að eiga samtal Fram kemur í bókun byggðarráðs að flest þessara félagsheimila hafi á síðustu árum verið leigð rekstraraðilum sem hafi séð um daglegan rekstur þeirra með útleigu til notenda. „Þrjú af félagsheimilunum hafa undanfarin ár haft formlegar hússtjórnir sem hafa skipt með sér verkum og stjórnað rekstrinum. Menningarhúsið Miðgarður í Varmahlíð. Skagafjörður Fulltrúar í byggðarráði eru sammála um að skoða hvort ekki sé skynsamlegt að selja hlut sveitarfélagsins í mörgum þessara félagsheimila til aðila sem sjá tækifæri í að bæta nýtingu húsanna. En áður en slík sala getur farið fram þarf að eiga samtal og samráð við eigendur þeirra félagsheimila sem sveitarfélagið á ekki eitt og ræða þeirra sýn á málið og hvaða framtíðarlausnir þeir sjái að komi viðkomandi félagsheimili best.“ Fundað um næstu skref Byggðarráð hefur falið starfsmönnum menningarmála sveitarfélagsins að taka saman yfirlit um félagsheimilin og skráða eigendur þeirra. Í framhaldinu verði svo fundað með skráðum eigendum um næstu skref, auk þess sem samráð verði haft við fulltrúa í atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd sveitarfélagsins. Skagafjörður Menning Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Erlent Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Innlent Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Innlent Voru sérstaklega varaðir við árás frá ISKP Erlent Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Innlent Átta ára stúlka sú eina sem lifði rútuslys af Erlent Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Innlent „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Innlent „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Innlent Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Innlent Fleiri fréttir Ógnaði dyraverði skemmtistaðar með hníf Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Vélsleðamaður lenti í snjóflóði Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Aðstoða göngumann á Móskarðshnjúkum Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Ný og glæsileg skólaþyrping byggð á Hellu Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Hádegisfréttir Bylgjunnar Svipar til gamalla óupplýstra rána Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Bjartur skírdagur fram undan í höfuðborginni Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Ferðaóðir Íslendingar þyrpast í ferðalög innanlands sem utan Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Týndi vinningshafinn gaf sig fram og græddi níu milljónir Felldu úr gildi friðlýsingu en mátu Mumma ekki vanhæfan Kvöldfréttir Stöðvar 2 Býr á Íslandi en dæmd í sex ára fangelsi í Rússlandi Sjá meira
Í Sveitarfélaginu Skagafirði eru nú níu félagsheimili, auk Menningarhússins Miðgarðs, og á sveitarfélagið þau ýmist að hluta eða að fullu. Félagsheimilið Ketilás í Fljótum. Brúnastaðir Á fundi byggðarráðs Skagafjarðar í síðustu viku var samþykkt bókun þar sem allir fulltrúar sögðust sammála um að kanna hvort rétt væri að skoða sölu á hlut sveitarfélagsins í félagsheimilunum. Fram kemur að öll eigi félagsheimilin það sameiginlegt að hafa verið byggð upp til að þjónusta nærsamfélagið sem skólar en einnig félagslíf þess hrepps eða hreppa sem það var hugsað fyrir. Félagsheimilið Árgarður í Steinstaðahverfi.Skagafjörður „Að byggingu þeirra komu margir sjálfboðaliðar ásamt frjálsum félagasamtökum eins og ungmennafélögum, kvenfélögum, kórum o.fl. sem gerir það að verkum að margir íbúar eiga tilfinningaleg tengsl við húsin, enda geymir saga þeirra marga minninguna. En tímarnir hafa breyst og samgöngur batnað ásamt því að bæði skólar og félagasamtök hafa sameinast yfir stærri svæði. Einnig hefur orðið uppbygging á t.d. íþróttamannvirkjum og hjá ferðaþjónustuaðilum sem hafa tekið yfir hluta þeirra verkefna sem félagsheimilin höfðu áður,“ segir í bókuninni. Félagsheimilin í Skagafirði: Félagsheimili Rípurhrepps Félagsheimilið Árgarður Félagsheimilið Bifröst Félagsheimilið Héðinsminni Félagsheimilið Ketilás Félagsheimilið Ljósheimar Félagsheimilið Melsgil Félagsheimilið Skagasel Félagsheimiliið Höfðaborg Menningarhúsið Miðgarður Þarf að eiga samtal Fram kemur í bókun byggðarráðs að flest þessara félagsheimila hafi á síðustu árum verið leigð rekstraraðilum sem hafi séð um daglegan rekstur þeirra með útleigu til notenda. „Þrjú af félagsheimilunum hafa undanfarin ár haft formlegar hússtjórnir sem hafa skipt með sér verkum og stjórnað rekstrinum. Menningarhúsið Miðgarður í Varmahlíð. Skagafjörður Fulltrúar í byggðarráði eru sammála um að skoða hvort ekki sé skynsamlegt að selja hlut sveitarfélagsins í mörgum þessara félagsheimila til aðila sem sjá tækifæri í að bæta nýtingu húsanna. En áður en slík sala getur farið fram þarf að eiga samtal og samráð við eigendur þeirra félagsheimila sem sveitarfélagið á ekki eitt og ræða þeirra sýn á málið og hvaða framtíðarlausnir þeir sjái að komi viðkomandi félagsheimili best.“ Fundað um næstu skref Byggðarráð hefur falið starfsmönnum menningarmála sveitarfélagsins að taka saman yfirlit um félagsheimilin og skráða eigendur þeirra. Í framhaldinu verði svo fundað með skráðum eigendum um næstu skref, auk þess sem samráð verði haft við fulltrúa í atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd sveitarfélagsins.
Félagsheimilin í Skagafirði: Félagsheimili Rípurhrepps Félagsheimilið Árgarður Félagsheimilið Bifröst Félagsheimilið Héðinsminni Félagsheimilið Ketilás Félagsheimilið Ljósheimar Félagsheimilið Melsgil Félagsheimilið Skagasel Félagsheimiliið Höfðaborg Menningarhúsið Miðgarður
Skagafjörður Menning Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Erlent Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Innlent Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Innlent Voru sérstaklega varaðir við árás frá ISKP Erlent Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Innlent Átta ára stúlka sú eina sem lifði rútuslys af Erlent Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Innlent „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Innlent „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Innlent Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Innlent Fleiri fréttir Ógnaði dyraverði skemmtistaðar með hníf Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Vélsleðamaður lenti í snjóflóði Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Aðstoða göngumann á Móskarðshnjúkum Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Ný og glæsileg skólaþyrping byggð á Hellu Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Hádegisfréttir Bylgjunnar Svipar til gamalla óupplýstra rána Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Bjartur skírdagur fram undan í höfuðborginni Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Ferðaóðir Íslendingar þyrpast í ferðalög innanlands sem utan Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Týndi vinningshafinn gaf sig fram og græddi níu milljónir Felldu úr gildi friðlýsingu en mátu Mumma ekki vanhæfan Kvöldfréttir Stöðvar 2 Býr á Íslandi en dæmd í sex ára fangelsi í Rússlandi Sjá meira