Stjarnan fékk undanþágu og Baldwin beint í markið

Audrey Baldwin handsamar boltann í leik með Fylki gegn Stjörnunni …
Audrey Baldwin handsamar boltann í leik með Fylki gegn Stjörnunni sumarið 2016. mbl.is/Árni Sæberg

Bandaríski markvörðurinn Audrey Baldwin gekk í dag til liðs við Stjörnuna að láni frá HK. Félagsskiptaglugginn er lokaður hér á landi en Stjarnan fékk undanþágu frá KSÍ til þess að sækja Baldwin vegna markvarðahallæris í herbúðum kvennaliðsins.

Baldwin er í byrjunarliði Stjörnunnar fyrir leik liðsins gegn Þór/KA í Bestu deild kvenna, sem hefst klukkan 17.30 á Akureyri í dag.

Aðalmarkvörður Stjörnunnar á tímabilinu, Chanté Sandiford, landsliðsmarkvörður Gvæjana, er ekki í leikmannahópnum í dag og þá er enginn varamarkvörður á varamannabekk Garðabæjarliðsins, ekki frekar en í undanförnum leikjum.

Góð ráð voru því dýr en Stjörnunni tókst að fá hina þaulreyndu Baldwin að láni í tæka tíð fyrir leik dagsins, sem er gífurlega mikilvægur liðinu í baráttu um annað sæti deildarinnar, sem gefur sæti í undankeppni Meistaradeildar Evrópu.

Baldwin, sem er þrítug, á að baki 29 leiki fyrir Fylki og HK/Víking í efstu deild og 25 leiki fyrir HK og Keflavík í næstefstu deild.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka