Sport

Næstum því níu af hverjum tíu á­nægð með þjálfarann sinn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Flotti fulltrúar Íslands á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar í Bakú i fyrra.
Flotti fulltrúar Íslands á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar í Bakú i fyrra. Mynd/ÍSÍ

Í niðurstöðum Ánægjuvogarinnar fyrir árið 2020 kemur meðal annars fram að 88 prósent nemenda sem æfa íþróttir eru ánægðir með þjálfarann sinn.

Ánægjuvogin er unnin af Rannsóknum og greiningu (R&g) fyrir Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) og Ungmennafélag Íslands (UMFÍ). Rannsóknir og greining hafa lagt spurningalista fyrir nemendur í 8., 9. og 10. bekk frá árinu 1992 í rannsókninni Ungt fólk.

Í Ánægjuvoginni felst að spurningar tengdar íþróttum og íþróttaiðkun er bætt við spurningalistana. Listarnir voru lagðir fyrir nemendur bekkjanna í febrúar á þessu ári og var svarhlutfallið 85 prósent.

Lykiltölur í íþróttaiðkun nemenda í 8., 9. og 10. bekk árið 2020Skjámynd/ÍSÍ

„Niðurstöður Ánægjuvogarinnar eru mjög jákvæðar fyrir íþróttahreyfinguna á Íslandi og taka ÍSÍ og UMFÍ því fagnandi. Þar kemur skýrt fram að þeim nemendum sem eru virkir í skipulögðu íþróttastarfi liður betur og vinna betur í hópi en aðrir. Þetta er mikill fjöldi, því um 90% barna í hverjum árgangi fer í gegnum íþróttastarf með íþróttafélagi á einhverjum tímapunkti. Meirihluti nemendanna metur andlega og líkamlega heilsu sína góða, eru síður líkleg til að sýna af sér frávikshegðun og neyta vímuefna,“ segir í fréttinni á heimasíðu Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands.

Margrét Lilja Guðmundsdóttir, sérfræðingur hjá Rannsóknum og greiningu (R&g) og í íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík kynnti niðurstöðurnar fyrir starfsmönnum Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands en það er líka hægt er að horfa á kynninguna hér fyrir neðan.

Margrét Lilja Guðmundsdóttir segir niðurstöður rannsókna Rannsókna og greininga sýna ótvírætt kosti skipulags íþróttastarfs:

„Við sjáum hvaða þættir það eru sem eru verndandi og hvaða þættir það eru sem draga úr líkum á því að barn leiðist út í einhvers konar frávikshegðun, sér í lagi vímuefnaneyslu. Við sjáum að skipulagt íþrótta- og tómstundastarf hefur forvarnargildi,“ sagði Margrét Lilja Guðmundsdóttir.

Það má sjá alla Ánægjuvogina með því að smella hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×