Aukin virkni í gosinu Árni Sæberg skrifar 30. apríl 2024 09:40 Þorvaldur Þórðarson sér helst þrjár sviðsmyndir í stöðunni. Vísir/Arnar Eldfjallafræðingur segir merki uppi um að virkni hafi aukist í eldgosinu á Sundhnúksgígaröðinni í nótt. Landris í Svartsengi hafi stöðvast og kvika leiti nú beint upp á yfirborð úr dýpra kvikuhólfinu. „
Það virðist hafa orðið einhver aukning í virkninni í nótt. Eins og þetta sé í fasa fyrir það sem við erum búin að vera að segja. Þegar þetta grunnstæða kvikuhólf fyllist, eins og það er að gera núna, þá fer það kvikumagn sem var að flæða inn í það bara beint upp. Það mun bæta við flæðið úr gígnum. Mér sýnist það hafa gerst en þetta er engin dramatík,“ segir Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur í samtali við Vísi. Gæti enn bæst við úr grynnra hólfinu Hann segir kvikuflæði úr dýpra kvikuhólfinu hingað til hafa skipst nokkurn vegin til helminga milli grynnra kvikuhólfsins og eldgossins. Því fari flæðið úr gígnum nú úr um þremur rúmmetrum á sekúndu í sex rúmmetra á sekúndu. „Þetta er nú engin stóraukning en þetta er aukning. Mér sýndist ég sjá á virkninni yfir nóttina að hún passi við það. Svo er spurning hvort að kvikugeymslan, sem við teljum að sé komin að þolmörkum, hvort kvika fari að flæða úr henni. Ef það gerist þá getur hún bæst við það flæði sem núna er að koma úr gígnum. Þá myndi það auka frekar í gosið á næstu dögum en ég hugsa að það verði engin mikilfengleg sýn. Engar stórar sprungur og miklir kvikustrókar, þetta verður rólegra ferli.“ Kvikan gæti líka storknað í hólfinu Þó segir Þorvaldur einnig möguleika á því að kvikan fari ekki neitt úr hólfinu heldur einfaldlega storknað þar. „Ef það verður raunin þá verður ekkert landsig í Svartsengi. Þá hættir landrisið og hlutirnir hægja á sér í rólegheitum og enda bara. Þannig að það eru ákveðin teikn á lofti um að þetta verði bara rólegt.“ Gosrásin gæti haldist opin Hins vegar gæti það líka gerst að gosrásin haldist opin og gosið gæti úr gígnum til lengri tíma. „Þannig að þetta eru þessar sviðsmyndir sem ég sé úr þessu. Ég sé nú ekki að við séum að fara að fá eitthvað stórt sprungugos á einhverjum nýjum stað. En við getum aldrei útilokað neitt slíkt heldur. Það er alltaf möguleiki á því að kvikan hlaupi þarna úr og opni þá þessa gossprungu, sem hefur verið að opnast í þessum gosum, fari í gang í einhvern tíma og lognist svo út af.“
Eldgos og jarðhræringar Eldgos á Reykjanesskaga Grindavík Tengdar fréttir Mögulega að hægjast á landrisi í Svartsengi Virkni eldgossins við Sundhnúksgíga er með svipuðu móti og síðustu daga. Svo virðist sem mögulega hafi hægt á landrisi undir Svartsengi en náttúruvársérfræðingur segir þó of snemmt að túlka þau gögn sem liggja fyrir á þessari stundu. 28. apríl 2024 12:46 Líklegt að það styttist í brotmörk Lögregla á Suðurnesjum fylgist grannt með stöðu mála við Grindavík, þar sem hrauntunga hóf að renna yfir varnargarð í morgun. Þá telja vísindamenn að annað eldgos gæti verið yfirvofandi á svæðinu hvað úr hverju. 27. apríl 2024 20:46 Hraun mjakast yfir varnargarð Hrauntunga úr eldgosinu við Sundhnúksgíga hefur teygt sig yfir varnargarð norðan við Grindavík. Hún rennur hægt og engin hætta stafar af henni enn sem komið er. 27. apríl 2024 13:49 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Erlent Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Baldur vinsælasta plan B Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju Erlent Gríðarleg fjölgun á dvalarleyfum til Víetnama á grundvelli sérfræðiþekkingar Innlent Boða sérstakan bæjarstjórnarfund vegna bréfs Eggerts Innlent Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Innlent Fleiri fréttir Ríkisstjórnin boðar til blaðamannafundar Fordæma brottvísun mansalsþolenda og vilja nýja stefnu Slökktu eld á Seltjarnarnesi Mögulegt umboðsleysi stjórnar Aðventista gæti skipt Ölfyssinga máli Fara fram á farbann Sjómenn í haldi og ÁTVR í bobba Bréf First Water veldur ringulreið í bæjarstjórn Ölfuss Konráð nýr efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar Umhverfis- og loftslagsmálin „Icesave okkar tíma“ Boða sérstakan bæjarstjórnarfund vegna bréfs Eggerts Skipstjórinn og stýrimaðurinn fluttir til Reykjanesbæjar Gríðarleg fjölgun á dvalarleyfum til Víetnama á grundvelli sérfræðiþekkingar „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Baldur vinsælasta plan B Bein útsending: MenntaStefnumót í Reykjavík Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu Telur ekki óeðlilegt að sýna mótmælendum samstöðu Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Einhver í herberginu segi ekki satt „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Sjá meira
Mögulega að hægjast á landrisi í Svartsengi Virkni eldgossins við Sundhnúksgíga er með svipuðu móti og síðustu daga. Svo virðist sem mögulega hafi hægt á landrisi undir Svartsengi en náttúruvársérfræðingur segir þó of snemmt að túlka þau gögn sem liggja fyrir á þessari stundu. 28. apríl 2024 12:46
Líklegt að það styttist í brotmörk Lögregla á Suðurnesjum fylgist grannt með stöðu mála við Grindavík, þar sem hrauntunga hóf að renna yfir varnargarð í morgun. Þá telja vísindamenn að annað eldgos gæti verið yfirvofandi á svæðinu hvað úr hverju. 27. apríl 2024 20:46
Hraun mjakast yfir varnargarð Hrauntunga úr eldgosinu við Sundhnúksgíga hefur teygt sig yfir varnargarð norðan við Grindavík. Hún rennur hægt og engin hætta stafar af henni enn sem komið er. 27. apríl 2024 13:49