Óvænt tap Evrópumeistaranna

Frankfurt vann sterkan sigur á Bayern München í dag.
Frankfurt vann sterkan sigur á Bayern München í dag. AFP

Evrópumeistarar Bayern München töpuðu í dag óvænt fyrir Eintracht Frankfurt á útivelli í þýsku 1. deildinni í fótbolta, 1:2.

Daichi Kamada og Amin Younes komu Frankfurt í 2:0 á fyrsta hálftímanum og var staðan í hálfleik 2:0. Robert Lewandowski minnkaði muninn á 53. mínútu en Bayern tókst ekki að jafna þrátt fyrir mikla pressu í lokin. 

Þrátt fyrir tapið eru Bæjarar í toppsætinu með 49 stig, fimm stigum á undan Leipzig sem á leik til góða. Frankfurt er í fjórða sæti með 42 stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka