Truflanir hjá Arion banka

Truflanir eru á rekstri netbanka Arion banka og sömuleiðis appi bankans. Unnið er að því að laga vandamálið, að því er fram kemur í tilkynningu á vef bankans.

Viðskiptavinum er bent á netspjallið á arionbanki.is.

Mikið álag í þjónustuveri

„Einnig er hægt að koma við í útibúi eða hafa samband við þjónustuver bankans í síma 444 7000, en mikið álag er þessa stundina í þjónustuveri. Að auki er hægt að senda okkur tölvupóst á arionbanki@arionbanki.is,“ segir í tilkynningunni.

Þar er einnig beðist velvirðingar á óþægindum sem þetta kunni að valda.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert