Þórsarar þvertaka fyrir veðmálasvindl Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 3. maí 2021 14:47 Srdjan Stojanovic var sakaður um veðmálasvindl eftir leik Þórs Ak. og Njarðvíkur í Domino's deild karla í gær. vísir/bára Körfuknattleiksdeild Þórs á Akureyri hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hún vísar ásökunum um veðmálasvindl í leik liðsins gegn Njarðvík í Domino's deild karla í gær á bug. Þórsarar töpuðu leiknum í Njarðvík, 97-75, en þetta var fjórða tap þeirra í röð. Í þættinum The Mike Show sagði Hugi Halldórsson að Srdjan Stojanovic, leikmaður Þórs, hafi verið flæktur í veðmálasvindl og fyrir leikinn hafi verið krísufundur þar sem þetta var rætt við hann. The Mike Show · VAR í Max 2022, dæma Liverpool sigur og veðmálasvindl í Dominos ? Í yfirlýsingunni frá Þór er þessum fullyrðingum Huga vísað til föðurhúsanna. Félagið telji að ekki hafi verið maðkur í mysunni og segja að enginn fundur hafi átt sér stað fyrir leikinn. „Að nafngreina og ásaka leikmann opinberlega í fjölmiðlum án þess að hafa fyrir sér nokkur sönnunargögn kallar á að viðkomandi einstaklingur muni leita réttar síns með tilliti til meiðyrðamáls enda ásökunin grafalvarleg og ætti ekki á nokkurn hátt að vera tekið léttvægt,“ segir í yfirlýsingunni. Þórsarar lýsa yfir miklum vonbrigðum með ummæli Huga. „Um leið og við fögnum umfjöllun um körfubolta þá viljum við að sjálfsögðu að fagmennsku sé gætt og slíkt verður ekki á nokkurn hátt hægt að segja að hafi verið raunin með ummælum Huga Halldórssonar í þættinum The Mike Show í gær. Félagið vísar þessum ásökunum algjörlega á bug, og má við þetta bæta að enginn fundur átti sér stað fyrir leik með þeim leikmanni sem var nafngreindur, né öðrum leikmönnum. Þór stendur eins og áður sagði eindregið með leikmönnum sínum og væntir þess að þeir svari fyrir sig af alvöru á vellinum,“ segir í yfirlýsingu Þórs sem má sjá í heilu lagi hér fyrir neðan. Yfirlýsing Þórs Við stöndum með leikmönnum liðsins og hvetjum alla þá viðeigandi aðila, sem völd hafa til að rannsaka meint veðmálasvindl, til að leggja fram sönnunargögn og/eða rannsaka málið frekar. Félagið mun að sjálfsögðu aðstoða eftir bestu getu. Félagið telur að ekki hafi verið neitt gruggugt í gangi hjá neinum leikmanna liðsins. Leikurinn var vissulega afar slakur af okkar hálfu en benda má á að leikir hafa tapast með mun stærri mun og á mun óvæntari hátt í þessari deild í vetur . Að nafngreina og ásaka leikmann opinberlega í fjölmiðlum án þess að hafa fyrir sér nokkur sönnunargögn kallar á að viðkomandi einstaklingur muni leita réttar síns með tilliti til meiðyrðamáls enda ásökunin grafalvarleg og ætti ekki á nokkurn hátt að vera tekið léttvægt. Um leið og við fögnum umfjöllun um körfubolta þá viljum við að sjálfsögðu að fagmennsku sé gætt og slíkt verður ekki á nokkurn hátt hægt að segja að hafi verið raunin með ummælum Huga Halldórssonar í þættinum The Mike show í gær. Félagið vísar þessum ásökunum algjörlega á bug, og má við þetta bæta að enginn fundur átti sér stað fyrir leik með þeim leikmanni sem var nafngreindur, né öðrum leikmönnum. Þór stendur eins og áður sagði eindregið með leikmönnum sínum og væntir þess að þeir svari fyrir sig af alvöru á vellinum. Stojanovic, sem skoraði sautján stig gegn Njarðvík, svaraði fyrir ásakanirnar um veðmálasvindl í samtali við Körfuna. Þar segist hann ætla að leggja fram kæru vegna rógburðar. „Já, er á leiðinni að hitta lögfræðing og mun kæra viðkomandi aðila fyrir rógburð, lygar í fjölmiðlum, nota nafn mitt í slæmum ásetningi og skemma mannorð mitt. Þetta er þriðja árið mitt á Íslandi, hef ekki gert neitt ólöglegt og þetta er alvarleg opinber ásökun. Lögin eru með mér í liði,“ sagði Stojanovic við Körfuna. Dominos-deild karla Þór Akureyri Tengdar fréttir „Maður vill vera í betra standi en þetta en samt gott að vera kominn aftur“ Júlíus Orri Ágústsson, leikmaður Þór Akureyri, spilaði sinn fyrsta leik í langan tíma eftir erfið meiðsli. Júlíus spilaði í heildina 8 og hálfa mínútu gegn Njarðvík í kvöld en náði þó ekki að setja nein stig á töfluna. 2. maí 2021 21:31 Umfjöllun og viðtöl: Njarðvík - Þór Ak. 97-75| Njarðvík batt enda á fjögurra leikja taphrinu á heimavelli Njarðvík náði að lyfta sér upp úr botnsætinu í kvöld með 22 stiga sigri á Þór Akureyri 2. maí 2021 17:31 Mest lesið Sara hrundi niður listann eftir leiðréttingar Sport Davíð Tómasi bárust ljót skilaboð eftir leik: „Fokking mongolitið þitt“ Körfubolti Rashford: Nú er nóg komið Enski boltinn Virk sprengja úr seinni heimsstyrjöldinni undir leikvangi Mainz Fótbolti „Krakkarnir í stúkunni eru byrjaðir að taka upp á þessu líka“ Körfubolti Littler stríddi stuðningsmönnum Liverpool Sport Sjáðu og heyrðu sjónvarpslýsanda sturlast yfir Brynjólfi Fótbolti Sjáðu ótrúlegan flautuþrist Þorvaldar Orra Körfubolti „Tel mjög vafasamt að klukkan hafi verið sett af stað á réttum tíma“ Körfubolti Stórleikur í Garðabænum og Fram mætir þriðju deildarliðinu Íslenski boltinn Fleiri fréttir Þrjú Suðurnesjalið í undanúrslitum í fyrsta sinn í tuttugu ár Davíð Tómasi bárust ljót skilaboð eftir leik: „Fokking mongolitið þitt“ „Krakkarnir í stúkunni eru byrjaðir að taka upp á þessu líka“ Lakers einu tapi frá því að vera sópað út úr úrslitakeppninni Sjáðu ótrúlegan flautuþrist Þorvaldar Orra „Tel mjög vafasamt að klukkan hafi verið sett af stað á réttum tíma“ „Vakna í hádeginu á morgun og fer að hugsa um Valsarana“ Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu Friðrik Ingi sæmdur gullmerki Njarðvíkur Þórsarar hafa spilað þrjá oddaleiki síðan Njarðvík var síðast í oddaleik Sjokkeruðu Celtics menn með þriggja stiga skotsýningu „Heldur betur búinn að vinna hjörtu Keflvíkinga“ Tekið á móti Tryggva eins og Hollywood stjörnu Hristir hausinn yfir „glórulausum“ og „smásálarlegum“ ummælum Uppgjörið og viðtöl: Haukar 73-75 Stjarnan | Stjarnan áfram eftir naglbít Martin frábær í öruggum sigri „Við erum ekki með stráka sem þurfa að vera hetjur“ Sjáðu mömmu Remy Martin syngja og dansa á hliðarlínunni Luka og félagar jöfnuðu: „Þetta var 90s körfubolti eins og hann gerist bestur“ Sérfræðingarnir ekki sammála og mikil spenna fyrir oddaleikinn „Ég er bara mjög spenntur, þeir eru klárlega ‘the team to beat’“ „Maður hugsar ekki þannig sem þjálfari“ Uppgjör og viðtöl: Álftanes - Keflavík 85-114 | Sjóðheit Keflavíkursókn blés nýliðana burt Murray kramdi Lakers-hjörtun Viðar Örn: Stoltur af liðinu fyrir að skilja allt eftir á gólfinu Einar Árni hættur hjá Hetti „Erfitt að vinna þá þrisvar sinnum í röð“ Aþena er komið í úrslitaeinvígi um sæti í Subway-deild kvenna „Fannst að við hefðum átt að ná þessum mómentum fyrr“ Uppgjör: Þór Þ. - Njarðvík 84-91 | Gestirnir tryggðu sér oddaleik Sjá meira
Þórsarar töpuðu leiknum í Njarðvík, 97-75, en þetta var fjórða tap þeirra í röð. Í þættinum The Mike Show sagði Hugi Halldórsson að Srdjan Stojanovic, leikmaður Þórs, hafi verið flæktur í veðmálasvindl og fyrir leikinn hafi verið krísufundur þar sem þetta var rætt við hann. The Mike Show · VAR í Max 2022, dæma Liverpool sigur og veðmálasvindl í Dominos ? Í yfirlýsingunni frá Þór er þessum fullyrðingum Huga vísað til föðurhúsanna. Félagið telji að ekki hafi verið maðkur í mysunni og segja að enginn fundur hafi átt sér stað fyrir leikinn. „Að nafngreina og ásaka leikmann opinberlega í fjölmiðlum án þess að hafa fyrir sér nokkur sönnunargögn kallar á að viðkomandi einstaklingur muni leita réttar síns með tilliti til meiðyrðamáls enda ásökunin grafalvarleg og ætti ekki á nokkurn hátt að vera tekið léttvægt,“ segir í yfirlýsingunni. Þórsarar lýsa yfir miklum vonbrigðum með ummæli Huga. „Um leið og við fögnum umfjöllun um körfubolta þá viljum við að sjálfsögðu að fagmennsku sé gætt og slíkt verður ekki á nokkurn hátt hægt að segja að hafi verið raunin með ummælum Huga Halldórssonar í þættinum The Mike Show í gær. Félagið vísar þessum ásökunum algjörlega á bug, og má við þetta bæta að enginn fundur átti sér stað fyrir leik með þeim leikmanni sem var nafngreindur, né öðrum leikmönnum. Þór stendur eins og áður sagði eindregið með leikmönnum sínum og væntir þess að þeir svari fyrir sig af alvöru á vellinum,“ segir í yfirlýsingu Þórs sem má sjá í heilu lagi hér fyrir neðan. Yfirlýsing Þórs Við stöndum með leikmönnum liðsins og hvetjum alla þá viðeigandi aðila, sem völd hafa til að rannsaka meint veðmálasvindl, til að leggja fram sönnunargögn og/eða rannsaka málið frekar. Félagið mun að sjálfsögðu aðstoða eftir bestu getu. Félagið telur að ekki hafi verið neitt gruggugt í gangi hjá neinum leikmanna liðsins. Leikurinn var vissulega afar slakur af okkar hálfu en benda má á að leikir hafa tapast með mun stærri mun og á mun óvæntari hátt í þessari deild í vetur . Að nafngreina og ásaka leikmann opinberlega í fjölmiðlum án þess að hafa fyrir sér nokkur sönnunargögn kallar á að viðkomandi einstaklingur muni leita réttar síns með tilliti til meiðyrðamáls enda ásökunin grafalvarleg og ætti ekki á nokkurn hátt að vera tekið léttvægt. Um leið og við fögnum umfjöllun um körfubolta þá viljum við að sjálfsögðu að fagmennsku sé gætt og slíkt verður ekki á nokkurn hátt hægt að segja að hafi verið raunin með ummælum Huga Halldórssonar í þættinum The Mike show í gær. Félagið vísar þessum ásökunum algjörlega á bug, og má við þetta bæta að enginn fundur átti sér stað fyrir leik með þeim leikmanni sem var nafngreindur, né öðrum leikmönnum. Þór stendur eins og áður sagði eindregið með leikmönnum sínum og væntir þess að þeir svari fyrir sig af alvöru á vellinum. Stojanovic, sem skoraði sautján stig gegn Njarðvík, svaraði fyrir ásakanirnar um veðmálasvindl í samtali við Körfuna. Þar segist hann ætla að leggja fram kæru vegna rógburðar. „Já, er á leiðinni að hitta lögfræðing og mun kæra viðkomandi aðila fyrir rógburð, lygar í fjölmiðlum, nota nafn mitt í slæmum ásetningi og skemma mannorð mitt. Þetta er þriðja árið mitt á Íslandi, hef ekki gert neitt ólöglegt og þetta er alvarleg opinber ásökun. Lögin eru með mér í liði,“ sagði Stojanovic við Körfuna.
Við stöndum með leikmönnum liðsins og hvetjum alla þá viðeigandi aðila, sem völd hafa til að rannsaka meint veðmálasvindl, til að leggja fram sönnunargögn og/eða rannsaka málið frekar. Félagið mun að sjálfsögðu aðstoða eftir bestu getu. Félagið telur að ekki hafi verið neitt gruggugt í gangi hjá neinum leikmanna liðsins. Leikurinn var vissulega afar slakur af okkar hálfu en benda má á að leikir hafa tapast með mun stærri mun og á mun óvæntari hátt í þessari deild í vetur . Að nafngreina og ásaka leikmann opinberlega í fjölmiðlum án þess að hafa fyrir sér nokkur sönnunargögn kallar á að viðkomandi einstaklingur muni leita réttar síns með tilliti til meiðyrðamáls enda ásökunin grafalvarleg og ætti ekki á nokkurn hátt að vera tekið léttvægt. Um leið og við fögnum umfjöllun um körfubolta þá viljum við að sjálfsögðu að fagmennsku sé gætt og slíkt verður ekki á nokkurn hátt hægt að segja að hafi verið raunin með ummælum Huga Halldórssonar í þættinum The Mike show í gær. Félagið vísar þessum ásökunum algjörlega á bug, og má við þetta bæta að enginn fundur átti sér stað fyrir leik með þeim leikmanni sem var nafngreindur, né öðrum leikmönnum. Þór stendur eins og áður sagði eindregið með leikmönnum sínum og væntir þess að þeir svari fyrir sig af alvöru á vellinum.
Dominos-deild karla Þór Akureyri Tengdar fréttir „Maður vill vera í betra standi en þetta en samt gott að vera kominn aftur“ Júlíus Orri Ágústsson, leikmaður Þór Akureyri, spilaði sinn fyrsta leik í langan tíma eftir erfið meiðsli. Júlíus spilaði í heildina 8 og hálfa mínútu gegn Njarðvík í kvöld en náði þó ekki að setja nein stig á töfluna. 2. maí 2021 21:31 Umfjöllun og viðtöl: Njarðvík - Þór Ak. 97-75| Njarðvík batt enda á fjögurra leikja taphrinu á heimavelli Njarðvík náði að lyfta sér upp úr botnsætinu í kvöld með 22 stiga sigri á Þór Akureyri 2. maí 2021 17:31 Mest lesið Sara hrundi niður listann eftir leiðréttingar Sport Davíð Tómasi bárust ljót skilaboð eftir leik: „Fokking mongolitið þitt“ Körfubolti Rashford: Nú er nóg komið Enski boltinn Virk sprengja úr seinni heimsstyrjöldinni undir leikvangi Mainz Fótbolti „Krakkarnir í stúkunni eru byrjaðir að taka upp á þessu líka“ Körfubolti Littler stríddi stuðningsmönnum Liverpool Sport Sjáðu og heyrðu sjónvarpslýsanda sturlast yfir Brynjólfi Fótbolti Sjáðu ótrúlegan flautuþrist Þorvaldar Orra Körfubolti „Tel mjög vafasamt að klukkan hafi verið sett af stað á réttum tíma“ Körfubolti Stórleikur í Garðabænum og Fram mætir þriðju deildarliðinu Íslenski boltinn Fleiri fréttir Þrjú Suðurnesjalið í undanúrslitum í fyrsta sinn í tuttugu ár Davíð Tómasi bárust ljót skilaboð eftir leik: „Fokking mongolitið þitt“ „Krakkarnir í stúkunni eru byrjaðir að taka upp á þessu líka“ Lakers einu tapi frá því að vera sópað út úr úrslitakeppninni Sjáðu ótrúlegan flautuþrist Þorvaldar Orra „Tel mjög vafasamt að klukkan hafi verið sett af stað á réttum tíma“ „Vakna í hádeginu á morgun og fer að hugsa um Valsarana“ Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu Friðrik Ingi sæmdur gullmerki Njarðvíkur Þórsarar hafa spilað þrjá oddaleiki síðan Njarðvík var síðast í oddaleik Sjokkeruðu Celtics menn með þriggja stiga skotsýningu „Heldur betur búinn að vinna hjörtu Keflvíkinga“ Tekið á móti Tryggva eins og Hollywood stjörnu Hristir hausinn yfir „glórulausum“ og „smásálarlegum“ ummælum Uppgjörið og viðtöl: Haukar 73-75 Stjarnan | Stjarnan áfram eftir naglbít Martin frábær í öruggum sigri „Við erum ekki með stráka sem þurfa að vera hetjur“ Sjáðu mömmu Remy Martin syngja og dansa á hliðarlínunni Luka og félagar jöfnuðu: „Þetta var 90s körfubolti eins og hann gerist bestur“ Sérfræðingarnir ekki sammála og mikil spenna fyrir oddaleikinn „Ég er bara mjög spenntur, þeir eru klárlega ‘the team to beat’“ „Maður hugsar ekki þannig sem þjálfari“ Uppgjör og viðtöl: Álftanes - Keflavík 85-114 | Sjóðheit Keflavíkursókn blés nýliðana burt Murray kramdi Lakers-hjörtun Viðar Örn: Stoltur af liðinu fyrir að skilja allt eftir á gólfinu Einar Árni hættur hjá Hetti „Erfitt að vinna þá þrisvar sinnum í röð“ Aþena er komið í úrslitaeinvígi um sæti í Subway-deild kvenna „Fannst að við hefðum átt að ná þessum mómentum fyrr“ Uppgjör: Þór Þ. - Njarðvík 84-91 | Gestirnir tryggðu sér oddaleik Sjá meira
„Maður vill vera í betra standi en þetta en samt gott að vera kominn aftur“ Júlíus Orri Ágústsson, leikmaður Þór Akureyri, spilaði sinn fyrsta leik í langan tíma eftir erfið meiðsli. Júlíus spilaði í heildina 8 og hálfa mínútu gegn Njarðvík í kvöld en náði þó ekki að setja nein stig á töfluna. 2. maí 2021 21:31
Umfjöllun og viðtöl: Njarðvík - Þór Ak. 97-75| Njarðvík batt enda á fjögurra leikja taphrinu á heimavelli Njarðvík náði að lyfta sér upp úr botnsætinu í kvöld með 22 stiga sigri á Þór Akureyri 2. maí 2021 17:31
Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu