Utan vallar: Skattaskýrslunni skilað Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 16. mars 2023 10:00 Arnar Þór Viðarsson er á sínu þriðja ári sem þjálfari íslenska karlalandsliðsins. vísir/hulda margrét Íslenska karlalandsliðið í fótbolta hefur leik í undankeppni EM 2024 síðar í mánuðinum. Svo virðist sem þjóðarpúlsinn sé mátulega jákvæður um þessar mundir eftir afar erfiða mánuði hjá íslenska liðinu. En er innistæða fyrir bjartsýni fyrir undankeppnina?
Já og nei. Byrjum á því að draga frá og hleypa sólarljósinu (í mesta gluggaveðri í heimi) inn. Fyrir það fyrsta erum við með okkar sterkasta lið í fyrsta sinn í háa herrans tíð ef frá eru taldir Birkir Bjarnason, sem hefur lítið spilað að undanförnu, og Albert Guðmundsson sem hefur spilað mikið og vel að undanförnu en á ekki upp á pallborðið hjá Arnari Þór Viðarssyni landsliðsþjálfara. Hvar svo sem hnífurinn stendur í kúnni væri óskandi að hann verði rifinn úr. Albert Guðmundsson er ekki í íslenska landsliðshópnum.vísir/hulda margrét Við erum ekki bara með nánast okkar sterkasta lið heldur eru margir í liðinu að spila stórvel um þessar mundir. Arnór Sigurðsson er einn besti leikmaðurinn í Svíþjóð, Alfreð Finnbogason og Sævar Atli Magnússon ætla að bjarga Íslendingaliðinu Lyngby frá falli með mörkum og stoðsendingum, Hákon Arnar Haraldsson heldur áfram að blómsta hjá FC Kaupmannahöfn, Jóhann Berg Guðmundsson er í stóru hlutverki hjá langbesta liði ensku B-deildarinnar, Jón Dagur Þorsteinsson brillerar í Belgíu og svo mætti áfram telja. Það hefur svo sem ekki alltaf verið samansemmerki á milli þess að spila vel með félagsliði og íslenska landsliðinu. Á gullaldarskeiði þess voru menn oft í misjafnri stöðu hjá sínum félagsliðum en spiluðu alltaf eins og snillingar þegar þeir klæddust landsliðsbúningnum. En það getur ekki sakað að vera heitur með félagsliðinu sínu. Jón Dagur Þorsteinsson var einn besti leikmaður íslenska landsliðsins á síðasta ári.vísir/hulda margrét Svo er það riðilinn sem Ísland er í. Hann er galopinn. Portúgal er langsterkasta liðið í riðlinum og vinnur hann með yfirburðum ef allt er eðlilegt. En Liechtenstein getur ekki neitt, Lúxemborg aðeins meira og útkoman úr þessum fjórum leikjum á alltaf að vera tólf stig. Þá snýst þetta um innbyrðis leikina gegn Slóvakíu og Bosníu. Þessi lið eru sterk en langt frá því að vera ósigrandi og möguleikinn á 2. sætinu er raunhæfur. Drögum þá aðeins fyri og slökkvum ljósin. Brúnin fer nefnilega virkilega að þyngjast þegar árangur síðustu ára er skoðaður. Síðan Arnar Þór tók við íslenska landsliðinu hefur það spilað 29 leiki. Ellefu hafa tapast, þrettán endað með jafntefli og aðeins fimm unnist. Sigrarnir komu gegn Liechtenstein, San Marinó, Færeyjum og Venesúela. Fara þarf aftur til haustsins 2020 til að finna sigur hjá íslenska liðinu gegn sæmilega sterkum andstæðingi. Jóhann Berg Guðmundsson er kominn aftur í landsliðið.vísir/hulda margrét Auðvitað hefur margt gengið á og Arnar hefur sjaldnast getað stillt upp sínu sterkasta liði en árangurinn er samt afleitur og gefur ekki neina ástæðu til bjartsýni. Arnar á allavega ekki neina innistæðu í ríkisbankanum. Hann þarf að byrja að vinna leiki, fleiri en gegn minnimáttar, og það strax. Tími afsakana er liðinn. Hann hefur fengið mikið traust frá stjórn KSÍ og fullt af leikjum til að móta liðið sitt. Núna er kominn tími til að borga til baka. Landsmenn sitja nú sveittir við að klára skattaskýrsluna sína og Arnar þarf núna að standa reikningsskil á eigin störfum. Efniviðurinn til að gera betur en síðustu ár er til staðar og möguleikar fyrir hendi í frekar veikum riðli í undankeppninni. Hvort kemur íslenska liðið út í plús eða mínus? Svarið við því fæst á næstu misserum.
EM 2024 í Þýskalandi Landslið karla í fótbolta Utan vallar Mest lesið Mari Järsk sigurvegari Bakgarðshlaupsins Sport Mari meyr eftir sigurinn Sport Áflogaseggir fá ekki að mæta aftur á völlinn Körfubolti Kostar 600 þúsund að keppa með U18: „Þetta eru þakkirnar fyrir að spila fyrir landsliðið“ Handbolti Uppgjör, viðtöl og myndir: Breiðablik - Valur 2-3 | Manni færri héldu gestirnir út Íslenski boltinn „Ég sakna hennar á hverjum degi“ Handbolti Uppgjör og viðtöl: FH - ÍBV 34-27 | Aronslausir FH-ingar tryggðu sér sæti í úrslitum Handbolti Stórfurðuleg atburðarás þegar markvörður KR sá rautt Íslenski boltinn Gat ekki staðið upp til að taka við bikarnum Sport Crystal Palace lék sér að Man United Enski boltinn Fleiri fréttir Ten Hag: Leikmennirnir hefðu átt að halda áfram að berjast líkt og stuðningsfólkið „Segir þeim að hætta þessu fokking rugli“ „Höfum engu að tapa núna“ Hákon Arnar fékk gult þegar Lille henti frá sér unnum leik Uppgjör, viðtöl og myndir: Breiðablik - Valur 2-3 | Manni færri héldu gestirnir út Crystal Palace lék sér að Man United Van Dijk vill hjálpa til við að skrifa næsta kafla Liverpool Sara Björk hafði betur gegn Alexöndru Eyddi öllum Liverpool-myndum Lýkur Gylfi markaþurrð Vals á Kópavogsvelli? Nánast uppselt á leik kvöldsins Dómarinn verður með myndavél á höfðinu Freyr nærri kraftaverki: „Þetta var fokking taugatrekkjandi“ Bæjarar skoði að ráða ten Hag Öll mörkin í gær: Sjáðu hvernig HK vann meistarana og kóngurinn komst á blað Lopetegui tekur við West Ham Lýsti Haaland sem „ofdekruðum krakka“ Stórfurðuleg atburðarás þegar markvörður KR sá rautt Aðeins einum leik frá ótrúlegu meti Albert Guðmunds: Verður að hafa sjálfstraust og trúa á sjálfan þig Miðvarðamartröð Man United heldur áfram „Ég vona innilega að ég sé ekki að væla of mikið“ „Ólíkir okkur að mörgu leyti“ Uppgjör: HK - Víkingur 3-1 | Botnliðið lagði meistarana og Arnar sá rautt Uppgjör og viðtöl: Fram - Fylkir 2-1 | Heimamenn upp í þriðja sætið „Eftir það fannst mér við bara slökkva ljósin og fara heim“ „Hef aldrei séð markmann fá gult spjald fyrir leiktöf eftir átta sek” „Við missum okkur ekkert yfir þessum sigri“ Lærisveinar Freys felldu Guðlaug Victor og Alfreð Finnboga „Komum sterkt til baka og kláruðum þetta“ Sjá meira
Uppgjör, viðtöl og myndir: Breiðablik - Valur 2-3 | Manni færri héldu gestirnir út Íslenski boltinn
Uppgjör, viðtöl og myndir: Breiðablik - Valur 2-3 | Manni færri héldu gestirnir út Íslenski boltinn