Setur spurningarmerki við VAR eftir jafnteflið á Old Trafford Anton Ingi Leifsson skrifar 24. október 2020 19:31 Maguire heldur í fyrirliða Chelsea. Ekkert var dæmt. Oli Scarff - Pool/Getty Images
Cesar Azpilicueta, fyrirliði Chelsea, setur spurningarmerki við VAR eftir markalaust jafntefli Chelsea gegn Manchester United á Old Trafford í dag. Leikurinn var ekki mikið fyrir augað en bæði lið vildu fá sína vítaspyrnuna. Fyrirliðinn sagði að hann hefði viljað sjá Chelsea halda boltanum betur í síðari hálfleik. „Mér fannst við geta fengið meira út úr þessu. Við fundum svæðin en síðasta sending klikkaði eða við tókum ekki réttar ákvarðanir. Við vörðumst vel og Mendy varði vel, einu sinni í fyrri hálfleik og einu sinni í síðari, en við gátum gert meira,“ sagði fyrirliðinn eftir leikinn. „Við stýrðum leiknum betur í fyrri hálfleik en í síðari hálfleik vorum við að flýta okkur of mikið og hreyfðum boltann ekki nægilega vel. Við misstum boltann of auðveldlega sem gerði það að verkum að við misstum stjórnina en við stóðum saman og allir lögðu sig fram.“ Chelsea vildi fá vítaspyrnu í leiknum eftir að Azpilicuta féll í teignum eftir baráttu við Harry Maguire. Fyrirliði Chelsea setti spurningarmerki við VAR í þeirri stöðu og fannst þetta sjálfum vera vítaspyrnu. Harry Maguire gets away with a headlock on César Azpilicueta inside his own box. pic.twitter.com/WeXGWpPDR9— Squawka News (@SquawkaNews) October 24, 2020 „Góð spurning. Á vellinum fannst mér þetta víti og hann tók utan um hálsinn á mér og axlirnar. Dómarinn tekur ákvörðunina og VAR er til þess að hjálpa. Dómarinn tekur ákvörðunina og skjárinn er til þess að hjálpa. Þetta var 50-50 einvígi svo afhverju ekki að taka tuttugu sekúndur og skoða þetta betur?“ „Mér finnst VAR geta bætt sig mikið. Þetta gerist í fótboltanum og ég segi ekki að það sé alltaf víti þegar einhver er snertur í teignum. Á Englandi er þetta harður leikur og í fótboltanum og í ensku úrvalsdeildinni erum við alltaf að reyna bæta okkur og þetta er ekki gagnrýni. Við getum öll hjálpast að, að gera þetta að betri deild.“
Enski boltinn Mest lesið „Versta ákvörðun í sögu Meistaradeildarinnar“ Fótbolti Stendur með Salah og skilur pirring hans Enski boltinn Arsenal vann kaflaskiptan Norður-Lundúnaslag Enski boltinn Ættingjarnir ábyggilega þreyttir á manni Handbolti Sjáðu ótrúlegan vítadóm í Keflavík og fernu Söndru Maríu Íslenski boltinn Ten Hag segir sitt lið þróttmikið og eitt af þeim skemmtilegri í deildinni Enski boltinn Í beinni: Vestri - HK | Fyrsti heimaleikurinn langt frá heimabænum Íslenski boltinn Í beinni: ÍA-FH | Halda Skagamenn áfram að skora mörkin? Íslenski boltinn „Alveg ljóst að fínni blæbrigði knattspyrnurnnar þurfa að víkja“ Íslenski boltinn Klopp: Verð hamingjusamur ef rétt ákvörðun er tekin Enski boltinn Fleiri fréttir Bournemouth fór illa með Brighton Í beinni: Nott. Forest - Man. City | City á siglingu Arsenal vann kaflaskiptan Norður-Lundúnaslag Segir að VAR skaði ímynd enska boltans Stendur með Salah og skilur pirring hans Ten Hag segir sitt lið þróttmikið og eitt af þeim skemmtilegri í deildinni Chelsea hjálpaði Tottenham með því að ná í stig gegn Villa Klopp: Verð hamingjusamur ef rétt ákvörðun er tekin Newcastle setti met þegar það skaut Sheffield niður um deild Enn ein vonbrigðin fyrir United Salah eftir rifrildið við Klopp: „Ef ég tala mun allt loga“ Klopp og Salah rifust á hliðarlínunni Antonio eyðilagði endurkomu Rauða hersins Biðst afsökunar á að hafa rætt við West Ham Arteta hefur beðið Wenger um ráð hvernig eigi að verða meistari Ten Hag bannaði þremur fjölmiðlum að spyrja spurninga Leicester í úrvalsdeildina eftir rassskellingu Leeds Stólpagrín gert að Terry vegna stjörnustæla hans Liverpool nær samkomulagi um Slot Leikmaður Newcastle tók meirapróf Rashford: Nú er nóg komið Finnst De Bruyne betri en Gerrard og Lampard Slot staðfestir að hann vilji taka við Liverpool Einstefna í Brighton Krókur Liverpool á móti bragði Palace á mikilli siglingu Líflausir Liverpoolmenn skrá sig út úr titilbaráttunni Bruno sneri taflinu við gegn botnliðinu Liverpool hefur viðræður við Arne Slot Slapp við rautt þrátt fyrir fólskubrot: „Einhver þarf að útskýra þetta fyrir mér“ Sjá meira