Heppinn Dani fær 106 milljónir

Fyrsti vinningur gekk ekki út í Víkingalottó að þessu sinni en heppinn Dani var einn með annan vinning og hlýtur hann rúmar 106 milljónir króna í sinn hlut. Hinn alíslenski þriðji vinningur gekk einnig út og skiptu tveir miðaeigendur honum á milli sín.

Annar miðinn var keyptur í Mosó grill, Háholti 14 í Mosfellsbæ, og hinn miðinn var keyptur á lotto.is. Hvor um sig fær tæpar 1,5 milljónir króna.

Tveir voru með fjórar réttar tölur í réttri röð í Jóker og fá þeir 100 þúsund krónur hver. Annar miðinn var keyptur í Vitanum á Laugavegi 62 í Reykjavík en hinn miðinn var í áskrift.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert