Grábjörn sat um mann í viku í óbyggðum Alaska Samúel Karl Ólason skrifar 22. júlí 2021 16:01 Hér má sjá kofann sem maðurinn hélt til í. Strandgæsla Bandaríkjanna Áhöfn þyrlu Strandgæslu Bandaríkjanna rambaði fyrir tilviljun á mann á mjög afskekktum stað í Alaska sem var illa farinn eftir margra daga baráttu við grábjörn. Verið var að fljúga þyrlunni nærri Nome í Alaska þegar áhöfnin þurfti að beygja af leið vegna skýja.
Flugmenn þyrlunnar sáu þá að SOS hafði verið skrifað á þak kofa. Þegar þeir flugu nærri kofanum sáu þar mann standa á þakinu sem veifaði til þeirra með báðum höndum. Hann bað þá um hjálp og sagði að grábjörn hefði ráðist á sig viku áður. Í tilkynningu frá Strandgæslunni segir að maðurinn hafi verið særður á fæti og mjög marinn á skrokki. Strandgæslan segir manninn hafa verið um fimmtugt eða sextugt og hafði hann verið í kofanum frá 12. júlí. Kofinn mun hafa hýst gullleitarmenn á árum áður. Maðurinn sagðist lítið hafa getað sofið eftir fyrstu árás bjarnarins vegna þess að björninn hefði snúið aftur á hverju kvöldi í heila viku, þrátt fyrir að maðurinn væri vopnaður skammbyssu. Hann mun þó hafa átt einungis tvö skot eftir þegar hjálpin barst. Hann var fluttur til Nome til aðhlynningar. Í frétt New York Times segir að hurð kofans hafi verið brotin en ekki er vitað hvort það gerðist á undanförnum dögum eða fyrir löngu síðan. Í samtali við miðilinn sagði annar flugmanna þyrlunnar að á einum tímapunkti hefði björninn dregið manninn niður að á. Maðurinn slapp þó ú klóm bjarnarins og varðist honum í viku. Þá vitnar NYT í skýrslu frá 2019 þar sem fram kemur að 68 hafa slasast í 66 árásum Bjarna á tímabilinu 2000 til 2017. Tíu dóu í þessum árásum.
Bandaríkin Dýr Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Innlent Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu Innlent Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Erlent Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Innlent Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Innlent Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Erlent „Ég get ekki annað en sagt satt“ Innlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Innlent Fleiri fréttir Berlínarborg vill losna við glæsivillu Göbbels Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Kreml fordæmir ummæli Macrons og Camerons Reyna að sækja fyrsta sýnið frá fjærhlið tunglsins Hlustuðu á Trump og Cohen tala um þagnargreiðslu Danir rýmka reglur um þungunarrof Þrjátíu látnir og tuga saknað eftir flóð í Brasilíu Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Vornanen kastað úr þingflokknum Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Trump sektaður um meira en milljón króna Rússar sagðir nota skotflaugar frá Norður-Kóreu Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Fjórir lögreglumenn skotnir til bana í Charlotte Rostungur sem fannst í fyrra drapst af völdum fuglaflensu Sjá meira