Stefán nýr yfirlögregluþjónn

Stefán Jónsson, nýr yfirlögregluþjónn.
Stefán Jónsson, nýr yfirlögregluþjónn. Ljósmynd/Eyjafréttir

Stefán Jónsson hefur verið ráðinn yfirlögregluþjónn í Vestmannaeyjum.

Stefán gegnir nú stöðu aðalvarðstjóra hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu en hann tekur við nýja starfinu af Jóhannesi Ólafssyni sem lætur af störfum í byrjun næsta mánaðar vegna aldurs.

Þetta kemur fram í færslu lögreglunnar í Vestmannaeyjum á Facebook.

Þar er Jóhannesi sömuleiðis þakkað fyrir samstarfið. Hann hóf störf hjá lögreglunni 12. október árið 1982 og var skipaður yfirlögregluþjónn við embættið í Eyjum þann 1. ágúst árið 2002. Hefur Jóhannes því starfað hjá embættinu í rúmlega fjóra áratugi og er með lengsta starfsaldur lögreglumanns sem starfað hefur í Vestmannaeyjum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert