Formaður fjárlaganefndar boðar til aukafundar vegna TF-SIF Heimir Már Pétursson skrifar 2. febrúar 2023 19:20 Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra tilkynnti óvænt í gær að hann ætlaði að selja einu flugvél Landhelgisgæslunnar. Til þess skortir hann heimild í fjárlögum. Vísir/Sara Þingmenn fordæma vinnubrögð dómsmálaráðherra við ákvörðun um sölu á flugvél Landhelgisgæslunnar og segja hana mikilvæga vegna þjóðaröryggis. Boðað hefur verið til fundar í fjárlaganefnd um málið á morgun. Ýmsir sem tengjast viðbrögðum við náttúruvá og annarri hættu undrast einnig að selja eigi þessa fullkomnustu leitar og björgunarflugvél landsins
Í apríl í fyrra hafi dómsmálaráðherra verið gert grein fyrir að rekstraráætlanir Gæslunnar væru brostnar þar sem fjárheimildir hefðu ekki fylgt umfangsmeiri rekstri og kostnaði. „Fjárveitingar til Landhelgisgæslunnar á fjárlögum þessa árs voru auknar um 600 milljónir króna. Það reyndist ekki nóg vegna rekstrarhalla síðasta árs,“ segir í tilkynningu Gæslunnar nema gripið yrði til aðgerða sem kæmu niður á lögbundnum hlutverkum og viðbragðsgetu. Haft er eftir forstjóra Landhelgisgæslunnar að ákvörðun um sölu flugvélarinnar væri mikil afturför. ,,Þegar ljóst var að stofnunin fengi ekki frekari fjárframlög tók við samtal við dómsmálaráðuneyti um hvaða leiðir væru færar til að koma fjárhag Landhelgisgæslunnar á réttan kjöl," segir í tilkynningunni. Engir góðir kostir hafi verið í stöðunni. Hér má sjá TF-SIF við komuna til landsins árið 2009.Vísir/Vilhelm „... það eru okkur sár vonbrigði að neyðast til að hætta rekstri eftirlitsflugvélarinnar en hún er sérútbúin eftirlits-, björgunar- og sjúkraflugvél og mikilvæg eining í almannavarnakeðju landsins,“ segir í tilkynningunni, enda hefur Gæslan haft flugvél í sínum flota allt frá árinu 1955. Ákvörðunin væri mikil afturför í viðbragðs- og eftirlitsgetu þjóðarinnar, og vera flugvélarinnar væri einnig brýnt þjóðaröryggismál, sér í lagi í ljósi breyttrar heimsmyndar. Heitar umræður spunnust um málið á Alþingi í dag, en salan kom Bjarkey Olsen Gunnarsdóttur þingmanni Vinstri grænna og formanni fjárlaganefndar eins og öðrum á óvart. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir formaður fjárlaganefndar segir það ekki hafa komið fram við afgreiðslu fjárlaga fyrir sex vikum að til stæði að selja flugvél Landhelgisgæslunnar. Enda væri engin heimild til þess í fjárlögum.Vísir/Vilhelm „Ég mun því boða til fundar í fjárlaganefnd á morgun og mun óska eftir viðveru dómsmálaráðherra og Landhelgisgæslunnar. Til þess að við getum farið yfir þetta mál og rætt það ofan í kjölinn. Ég held að það sé mjög nauðsynlegt. Þetta er allt of stórt til þess að það fari í gegn. Og ég man svosem ekki eftir söluheimild á þessari flugvél í fjárlögunum," sagði Bjarkey Olsen og því þyrfti að funda strax um málið.
Landhelgisgæslan Alþingi Öryggis- og varnarmál Tengdar fréttir Hristir hausinn yfir ákvörðun Jóns því vélina megi alls ekki selja Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra á þeim tíma sem flugvélin TF-SIF varð hluti af flota Landhelgisgæslunnar, er hissa á tíðindum af fyrirhugaðri sölu vélarinnar. Hans skoðun er einföld. Vélina megi alls ekki selja. Þá setur hann spurningamerki við að Ísland vilji ekki stolt leggja sitt af mörkum við gæslustörf fyrir Miðjaðarhafi. 2. febrúar 2023 16:37 Dómsmálaráðherra hefur ekki heimild til að selja TF-SIF Engin heimild er í fjárlögum þessa árs til sölu á TF-SIF flugvél Landhelgisgæslunnar. Áform dómsmálaráðherra um sölu flugvélarinnar komu formanni fjárlaganefndar á óvart og telur hann nauðsynlegt að nefndin komi saman til að ræða þessi mál strax á morgun. Fjölmargir þingmenn lýstu hneykslan sinni á ákvörðun dómsmálaráðherra á Alþingi í morgun. 2. febrúar 2023 12:25 Í algjöru áfalli og skilja ekkert í fyrirhugaðri sölu Kristín Jónsdóttir, hópstjóri náttúruvárvöktunar á Veðurstofu Íslands, segir vísindamenn og viðbragðsaðila í áfalli vegna ákvörðunar dómsmálaráðherra um að selja TF-SIF, flugvél Landhelgisgæslunnar. 2. febrúar 2023 11:33 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Berst gegn kvíaeldi á jörð sem hann telur sína Innlent Biðst afsökunar á að hafa kallað skemmdarvarginn „fífl“ Innlent Óttast mikinn skaða sem seint yrði fyrirgefinn Innlent Segja baráttuna bara rétt að hefjast Innlent Undirbúa stærðarinnar sendingar til Úkraínu Erlent Steinunn Ólína skýtur föstum skotum á Katrínu Innlent Tugir handteknir á mótmælum háskólanema gegn aðgerðum Ísraels Erlent Katrín og Baldur takast enn á um forystuna Innlent Íbúar sváfu vært meðan á öllu gekk á jarðhæðinni Innlent Rafmagnslaust á Blönduósi Innlent Fleiri fréttir Pétur Guðfinnsson er látinn Biðst afsökunar á að hafa kallað skemmdarvarginn „fífl“ Rafmagnslaust á Blönduósi Segja baráttuna bara rétt að hefjast Berst gegn kvíaeldi á jörð sem hann telur sína Óttast mikinn skaða sem seint yrði fyrirgefinn Úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald á Akureyri Mikilvægt skref en megi gera betur Katrín og Baldur takast enn á um forystuna Fjögurra milljarða króna tekjur á ári af spilakössum Katrín, Halla og Steinunn Ólína mætast í Pallborðinu Bæjarstjórn fundaði með Þórkötlu Morðrannsókn á Akureyri og sundgestir í uppnámi Vonast til að afgreiða hvalveiðileyfi eins hratt og mögulegt er Tveimur sleppt úr haldi á Suðurlandi Átta hundrað milljóna afgangur í Hafnarfirði Halla telur langt í að fólk sé búið að ákveða sig Sjö sóttu um embætti skólameistara Íbúar sváfu vært meðan á öllu gekk á jarðhæðinni Ásdís Rán búin að safna undirskriftum Kristrún segir ríkisstjórnina vilja gefa auðlindir þjóðarinnar Þjófnaðurinn áfall fyrir reynslumikla öryggisverði Voru að byggja annan bústað Skerjafjarðarskáldið segir Höllu Hrund eina með öllu Steinunn Ólína skýtur föstum skotum á Katrínu Stefnir í spennandi forsetakosningar Grunur um manndráp á Akureyri Þarf að borga fyrir tunnur sem hann hvorki vildi né fékk Viðamiklar breytingar gerðar á örorkulífeyriskerfinu Enginn í 9. bekk skildi setninguna „hjartað dælir blóði“ Sjá meira
Hristir hausinn yfir ákvörðun Jóns því vélina megi alls ekki selja Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra á þeim tíma sem flugvélin TF-SIF varð hluti af flota Landhelgisgæslunnar, er hissa á tíðindum af fyrirhugaðri sölu vélarinnar. Hans skoðun er einföld. Vélina megi alls ekki selja. Þá setur hann spurningamerki við að Ísland vilji ekki stolt leggja sitt af mörkum við gæslustörf fyrir Miðjaðarhafi. 2. febrúar 2023 16:37
Dómsmálaráðherra hefur ekki heimild til að selja TF-SIF Engin heimild er í fjárlögum þessa árs til sölu á TF-SIF flugvél Landhelgisgæslunnar. Áform dómsmálaráðherra um sölu flugvélarinnar komu formanni fjárlaganefndar á óvart og telur hann nauðsynlegt að nefndin komi saman til að ræða þessi mál strax á morgun. Fjölmargir þingmenn lýstu hneykslan sinni á ákvörðun dómsmálaráðherra á Alþingi í morgun. 2. febrúar 2023 12:25
Í algjöru áfalli og skilja ekkert í fyrirhugaðri sölu Kristín Jónsdóttir, hópstjóri náttúruvárvöktunar á Veðurstofu Íslands, segir vísindamenn og viðbragðsaðila í áfalli vegna ákvörðunar dómsmálaráðherra um að selja TF-SIF, flugvél Landhelgisgæslunnar. 2. febrúar 2023 11:33