Samdi strax eftir fyrsta markið

Dagur Örn Fjeldsted.
Dagur Örn Fjeldsted. Ljósmynd/Breiðablik

Knattspyrnumaðurinn Dagur Örn Fjeldsted hefur skrifað undir nýjan samning við Breiðablik, til ársins 2026, strax eftir að hafa skorað sitt fyrsta mark fyrir félagið í efstu deild.

Dagur, sem verður 19 ára í lok apríl, skoraði þriðja mark Breiðabliks í sigrinum á Vestra, 4:0, í Bestu deildinni á laugardaginn. 

Dagur lék fyrstu þrjá leiki sína með Blikum í deildinni á síðasta tímabili, eftir að hafa verið í láni hjá Grindavík í 1. deildinni, og hann kom inn á í sínum fjórða leik gegn Vestra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert