Fríverslunarsamningurinn formlega genginn í gildi

Hafist var handa við gerð hans árið 2020 er Bretland …
Hafist var handa við gerð hans árið 2020 er Bretland gekk úr Evrópusambandinu og sagði þar með skilið við EES-samninginn. AFP

Fríverslunarsamningur Íslands og Bretlands gengur formlega í gildi í dag. 

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins en hafist var handa við gerð hans árið 2020 vegna útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu og sagði þar með skilið við EES-samninginn.

Auk fríverslunarsamningsins hafa Ísland og Bretland gert fjölmarga samstarfssamninga, meðal annars á sviði mennta- og menningarmála, sjávarútvegsmála og loftferðamála.

Samningurinn var samþykktur af Alþingi í mars í fyrra. Honum hefur verið beitt til bráðabirgða frá því í september 2022 en vegna ýmissa lagabreytinga hefur hann ekki gengið í gildi fyrr en nú.

Samningurinn var gerður í samfloti með hinum EFTA-ríkjunum innan EES, þar er að segja Noregi og Liechtenstein.

„Um er að ræða yfirgripsmikinn fríverslunarsamning sem nær til flestra sviða viðskipta á milli ríkjanna og þeirra reglna sem um þau gilda. Samningurinn miðar að því að tryggja eins náin viðskiptatengsl og unnt er að ná með fríverslunarsamningi,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert