Keflavík fær Vigdísi lánaða

Vigdís Lilja Friðriksdóttir í leik með Breiðabliki gegn Osijek frá …
Vigdís Lilja Friðriksdóttir í leik með Breiðabliki gegn Osijek frá Króatíu síðasta haust. mbl.is/Kristinn Magnússon

Vigdís Lilja Kristjánsdóttir, knattspyrnukonan efnilega úr Breiðabliki, er komin til Keflvíkinga sem lánsmaður.

Vigdís er nýorðin 17 ára en hefur spilað af og til með meistaraflokki Breiðabliks frá 2020 og kom m.a. við sögu í flestum leikjum liðsins í Meistaradeildinni á síðasta ári. Fyrri hlutann lék hún með Augnabliki í 1. deild þar sem hún hefur alls skorað 13 mörk í 26 leikjum. 

Þá á Vigdís að baki átta leiki með yngri landsliðum Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert