Albert fjarverandi í dag gegn AC Milan

Weston McKennie hjá Juventus og Albert Guðmundsson í leik liðanna …
Weston McKennie hjá Juventus og Albert Guðmundsson í leik liðanna í A-deildinni. AFP/Marco Bertorello

Knattspyrnumaðurinn Albert Guðmundsson getur ekki tekið þátt í leik Genoa gegn AC Milan í ítölsku A-deildinni í dag.

Albert er veikur og getur því ekki spilað sem er mikill missir fyrir Genoa en hann er markahæsti leikmaður liðsins á tímabilinu.

Genoa er í 12. sæti í deildinni með 42 stig, getur hvorki náð Evrópusæti né fallið og AC Milan er í öðru sæti en nágrannar þeirra hjá Inter Mílanó hafa þegar tryggt sér titilinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert