Þýðir ekki að við getum lifað „hinu villta góða lífi“

Þó að slakað verði á takmörkunum innanlands á næstu dögum þýðir það ekki að við getum farið að lifa „hinu villta góða lífi,“ segir sóttvarnalæknir.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Auglýsing

Skap­ast hafa góðar aðstæður til að slaka enn meira á sótt­varna­að­gerðum inn­an­lands og hefur sótt­varna­læknir sent heil­brigð­is­ráð­herra til­lögur að til­sök­un­um. Búast má við nýrri reglu­gerð á næstu dög­um.



Til að hægt sé að slaka á þarf far­ald­ur­inn í fyrsta lagi að vera í lág­marki inn­an­lands og einnig þarf að vera búið að ná nokkuð góðum tökum á landa­mær­un­um. Báðar þessar for­sendur eru nú til staðar að mati Þór­ólfs Guðna­sonar sótt­varna­lækn­is. Hann leggur til ýmsar til­slak­anir á öllum þeim aðgerðum sem verið hafa í gangi en á upp­lýs­inga­fundi dags­ins vildi hann ekki fara nákvæm­lega ofan í til­lög­urnar þar sem stjórn­völd eigi enn eftir að fjalla um þær. „Eins og áður mun örugg­lega ein­hverjum þykja of bratt farið á meðan öðrum allt of hægt,“ sagði Þórólf­ur. Hann var spurður hvort að til standi að lengja opn­un­ar­tíma skemmti­staða og kráa og minnti hann þá á að þriðja bylgjan hafi haf­ist þar svo að mjög var­lega verði að fara í slíkt.



Þó að nú sé hægt að feta sig í frek­ari til­slak­an­ir, eins og Þórólfur orð­aði það, þarf að gera það var­lega og enn er brýnt að fólk sinni áfram ein­stak­lings­bundnum sótt­vörn­um. „Við viljum ekki fá bakslag núna á þess­ari stund­u.“

Auglýsing


Bólu­setn­ing­ar­daga­talið sem stjórn­völd gáfu út fyrir helgi er svar við ákalli um ein­hvern fyr­ir­sjá­an­leika, sagði sótt­varna­lækn­ir. Það er þó óvissu háð. Þó að von­ast sé til að bólu­efnin verði afhent hraðar á næsta árs­fjórð­ungi en hingað til hefur verið búist við er það alls ekki víst „og við þurfum að vera við öllu búin, líka því að dreif­ingin verði hæg­ari en við vild­um.“

Mögu­lega hægt að blása til stórra við­burða



Spurður hvort að hægt verði að halda stóra við­burði næsta sumar en allir slíkir voru blásnir af í fyrra, sagð­ist hann ekki telja það ólík­legt að því gefnu að megin þorri þjóð­ar­innar verði bólu­settur fyrir júní­lok og að ekki komi fram ný afbrigði veirunnar sem bólu­efnin virki ekki á.



Nú er hafið þekk­ing­ar­söfnun á landa­mær­un­um,  með því að skylda far­þega til að fram­vísa nei­kvæðu PCR-­prófi og ef sú reynsla bendir til að óhætt sé með þeim hætti að afnema seinni skimun og jafn­vel sótt­kví verði það reynt 1. maí. „Ef það verður hægt og allt gengur vel þá ætti ekk­ert að vera því til fyr­ir­stöðu að við höfum aðeins laus­ari taum­inn næsta sum­ar. Hvernig það verður nákvæm­lega veit ég ekki. Það sem skiptir öllu máli er hvernig við hegðum okkur sem ein­stak­ling­ar. Ekki hvaða tak­mark­anir stjórn­völd setja. Þannig að þó að það sé verið að slaka á þá er mik­il­vægt að fólk haldi áfram að passa sig. Þetta þýðir ekki það að við getum lifað hinu villta góða líf­i.“



Ekk­ert virkt smit hefur greinst utan sótt­kvíar inn­an­lands frá fyrsta febr­ú­ar. Þórólfur segir að auð­vitað séu ákveðnar áhyggjur fyrir hendi um að þegar slakað verði á aðgerðum ger­ist eitt­hvað. Aðstæður séu hins vegar mun betri á landa­mærum nú en áður. „Staða okkar er allt öðru­vísi nún­a,“ sagði hann um sam­an­burð við síð­asta sum­ar. „En vissu­lega er hættan alltaf fyrir hendi að far­ald­ur­inn blossi upp aft­ur. En við þurfum alltaf að lifa við þá hættu sama hvað við ger­um.“

58 ekki með vott­orð á landa­mær­unum

Síð­ustu vikur hafa um 170-180 far­þegar komið lands­ins dag­lega. Á föstu­dag tóku gildi nýjar reglur á landa­mær­unum og er öllum far­þegum nú skylt að fram­vísa nei­kvæðu PCR-­prófi, sem ekki má vera eldra en 72 stunda gam­alt, við kom­una til lands­ins. Þeir sem hafa gilt vott­orð um bólu­setn­ingu eða að hafa náð bata af COVID-19 eru und­an­þegnir því.

Um helg­ina komu 706 far­þegar til lands­ins og 503 fram­vís­uðu nei­kvæðu PCR-­prófi. 51 fram­vís­aði vott­orði um fyrri sýk­ingu og 54 vott­orði um bólu­setn­ingu. 58 voru ekki með vott­orð. Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn sagði að í vik­unni yrði farið að sekta þá sem ekki fram­vísa gildu vott­orði. Sekt­ar­upp­hæð hefur enn ekki verið ákveð­in.





Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent