Segir nikótínfíkn meðal unglinga áhyggjuefni og kallar eftir lagasetningu Nadine Guðrún Yaghi skrifar 21. nóvember 2020 12:11 Notkun nikótínpúða hefur færst í aukana meðal ungmenna
Verkefnisstjóri tóbaksvarna hefur miklar áhyggjur af niktótínpúðanotkun meðal unglinga en fimmtán prósent nemenda í 10. bekk hafa notað slíka púða. Hann segir brýnt að setja lög um aldurstakmörk og innihaldslýsingar. Rannsóknir- og greining leggja árlega könnun fyrir nemendur í 8., 9. og 10. bekk. Nú í september og október var könnun lögð fyrir rúmlega níu þúsund nemendur í áttatíu og einum skóla víðs vegar á landinu. Notkun svokallaðra nikótínpúða var í fyrsta sinn könnuð hjá hópnum og í ljós kom að næstum einn af hverjum tíu nemendum í 10. bekk falla undir flokk daglegra notenda. Þá höfðu fimmtán prósent tíundubekkinga notað nikótínpúða einu sinni eða oftar um ævina. Hafsteinn Viðar Jensson, verkefnastjóri tóbaksvarna hjá Landlækni, hefur áhyggjur af þróuninni. „Við sjáum að krakkar eru að nota þessa púða og nikótínnotkun er mjög ávanabindandi og það er bara mjög slæmt að unglingar séu að nota þessa púða og verða háðir nikótíni,“ segir Hafsteinn Viðar. Koma þessar tölur á óvart? „Ég get ekki sagt það því við sjáum að það hefur dregið töluvert úr rafrettunotkun og við sjáum líka að sala á íslenska neftóbakinu hefur dregist saman um helmning þannig við áttum von á því að sjá töluverða notkun í þessum aldurshópi,“ segir Hafsteinn Viðar. Embætti landlæknis gerði könnun á notkun fullorðinna á nikótínpúðum í sumar en þar kom fram að tæplega tuttugu prósent karlamanna á aldrinum 18 til 34 ára nota nikótínpúða. Hafsteinn Viðar segir lagaumgjörð skorta utan um þessa vöru. „Við þurfum að fá skýran lagaramma utan um nikótínpúða þar sem er tekið á aldurstakmarki, innihaldslýsingum og umgjörð um innflutning og sölu á svipaðan hátt og er gert með rafrettur,“ segir Hafsteinn. Frumvarp um nikótínpúða sé nú í vinnslu í heilbrigðisráðuneytinu. „En sem stendur gilda engin lög um þetta,“ segir Hafsteinn sem telur brýnt að brugðist verði fljótt við þróuninni.
Áfengi og tóbak Heilbrigðismál Fíkn Börn og uppeldi Nikótínpúðar Tengdar fréttir Einn af hverjum tíu nemendum í tíunda bekk nota níkótínpúða Ný rannsókn sýnir að andlegri heilsu barna í efstu árgöngum grunnskóla hefur hrakað síðan kórónuveirufaraldurinn fór af stað. Þá kemur í ljós að næstum einn af hverjum tíu unglingum í tíunda bekk notar nikótínpúða daglega. 16. nóvember 2020 19:00 Allt að fjögur símtöl á dag vegna barna sem gleypa nikótínpúða Eitrunarmiðstöð Landspítalans berast allt að fjögur símtöl á dag vegna barna og ungmenna sem hafa innbyrt nikótínpúða eða rafrettuvökva. Yfirlæknir á bráðamóttöku segir efnin geta reynst börnum banvæn. 9. nóvember 2020 19:01 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Innlent Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Innlent „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Innlent Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Innlent Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum Innlent „Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega Innlent Búast má við slyddu Veður Lífshættuleg meðhöndlun barna á vöggustofum og þrír eftir í bakgarðshlaupi Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir Áslaug Arna mjólkar vel í fjósinu á Hvanneyri Líklega fundað fram eftir kvöldi Til vandræða á hóteli og réðst svo á mann við Hlemm Lífshættuleg meðhöndlun barna á vöggustofum og þrír eftir í bakgarðshlaupi Karlar líklegri að ljúga á kostnað annarra Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum „Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega Leikskólar Árborgar verða lokaðir á milli jóla- og nýárs Völd óskast: Forseti allra kynslóða? Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Orku- og samgöngumál efst á lista nýs sveitarfélags Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Tíðindi í kjaradeilu flugvallarstarfsmanna og bein útsending úr Bakgarðshlaupinu Frestun verkfalla kemur til greina „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Sáttasemjari boðar til fundar: Fimm dagar til stefnu Orkuskipti, innflytjendalöggjöf og bensínstöðvalóðirnar „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Ný sýn fékk meirihluta Slagsmál enduðu með nefbroti Bíll logaði í Vesturbænum „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Sjá meira
Einn af hverjum tíu nemendum í tíunda bekk nota níkótínpúða Ný rannsókn sýnir að andlegri heilsu barna í efstu árgöngum grunnskóla hefur hrakað síðan kórónuveirufaraldurinn fór af stað. Þá kemur í ljós að næstum einn af hverjum tíu unglingum í tíunda bekk notar nikótínpúða daglega. 16. nóvember 2020 19:00
Allt að fjögur símtöl á dag vegna barna sem gleypa nikótínpúða Eitrunarmiðstöð Landspítalans berast allt að fjögur símtöl á dag vegna barna og ungmenna sem hafa innbyrt nikótínpúða eða rafrettuvökva. Yfirlæknir á bráðamóttöku segir efnin geta reynst börnum banvæn. 9. nóvember 2020 19:01