Vara við frostrigningu og mögulegri flughálku Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 27. nóvember 2021 07:15 Varað er við svokallaðri frostrigningu á Suður-og Vesturlandi. Vísir/Egill Aðstæður við suður- og vesturströndina gætu gert það að verkum að von sé á frostrigningu með flughálku. Veðurstofan segir að vegfarendur á þessum slóðum ættu að hafa varan á fram eftir degi.
Fyrripartinn í dag verður úrkomubakki við suður- og vesturströndina með rigningu eða slyddu og sumsstaðar snjókomu í fyrstu á láglendi. Hiti um og yfir frostmarki. Þannig mun snjóa ofurlítið á Hellisheiði, Mosfellheiði og á Snæfellsnesi. Á láglendi ætti úrkoman vera blautari og jafnvel gæti myndast aðstæður fyrir frostrigningu með flughálku og ætti fólk að hafa varan á fram eftir degi, segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Í öðrum landshlutum verður dálítil sjókoma á víð og dreif og vægt frost. Heldur meiri úrkomu er á sjá fyrir morgundaginn og áfram má reikna með að úrkoman sunnan- og vestanlands falli sem rigning eða slydda og hiti yfirleitt yfir frostmarki á meðan úrkoman fellur sem snjókoma annars staðar og áfram hiti undir frostmarki. Þessu fylgir almennt fremur hægur vindur. Veðurhorfur á landinu Breytileg átt, víða 3-10 m/s, skýjað og dálítil snjókoma á víð og dreif í dag og frost 0 til 7 stig, en rigning eða slydda við SV- og V-ströndina með morginum og fram eftir degi með hita 0 til 5 stig. Vaxandi NV-átt A-til í kvöld. Suðlæg átt, 5-13 á morgun, víða snjókoma og vægt frost en rigning suðvestantil og hiti 1 til 5 stig. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á sunnudag: Suðaustlæg eða breytileg átt 5-13 m/s og úrkomulítið. Fer að snjóa um og eftir hádegi með 0 til 8 stiga frosti, en rigning við SV- og V-ströndina og hiti 1 til 6 stig. Á mánudag: Austlæg eða breytileg átt 5-13 og dálitlar skúrir eða él. 8-15 m/s og snjókoma eða slydda seinnipartinn og frost 0 til 7 stig, en rigning SV-til með 1 til 7 stiga hita. Á þriðjudag: Snýst í norðan 8-18 með éljum á N- og A-landi, hvassast við N-ströndina, en styttir upp sunnan heiða. Kólnandi veður. Á miðvikudag (fullveldisdagurinn): Minnkandi norðlæg átt og dálítil él, en birtir til eftir hádegi, síst NA-til. Talsvert frost víðast hvar. Á fimmtudag: Vaxandi suðaustanátt með snjókomu eða slyddu og hlýnandi veðri, en þurrt NA-til fram eftir degi. Vestan 5-10 og hlánar vestast um kvöldið. Á föstudag: Útlit fyrir fremur hæga vestlæga átt með dálítilli ofankomu um mest allt land. Vægt frost.
Veður Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Leigan fyrir 100 fermetra hús í Grindavík 62.500 á mánuði Innlent Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Erlent Manni bjargað úr sjónum í nótt eftir að bátur hans sökk Innlent Vilja sinna Íslendingum á Spáni betur Innlent Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Innlent Slapp við meiðsli á höfði og hrygg Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Innlent Fico ekki talinn í lífshættu Erlent Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Innlent Fleiri fréttir Hafna tilboðum í áætlunarflug milli Reykjavíkur og Hornafjarðar Segir rangt að gjaldskylda á nagladekk sé í skoðun „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Vilja sinna Íslendingum á Spáni betur Dregið úr hrinunni við Sýlingarfell Slapp við meiðsli á höfði og hrygg Leigan fyrir 100 fermetra hús í Grindavík 62.500 á mánuði Manni bjargað úr sjónum í nótt eftir að bátur hans sökk Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Sjö smáskjálftar við Sýlingarfell og Veðurstofan fylgist vel með „Þetta reddast“ voru fyrstu orðin sem hann lærði Lögreglan þurfi nauðsynlega auknar rannsóknarheimildir Mikill meirihluti hlynntur dánaraðstoð Fátt ef nokkuð stöðvar eldislaxinn Segir seinlæti First Water stórfurðulegt Hæstiréttur segir tíma í flugvél vera vinnutíma Vill ræða brottvísun til Nígeríu í nefnd: „Skelfileg ásýnd á þessu máli“ Gjörbreytt bílpróf en segja hvergi slegið af kröfum Fagna framfaraskrefi ráðherra en vilja afnema tilvísanakerfið Þórdís í sendinefnd til Georgíu vegna umdeildra laga Maðurinn fannst heill á húfi Hundaskítur fyrir utan kosningamiðstöð Baldurs vekur spurningar Skilur uppnám skólasamfélagsins í Laugardal en horfa þurfi á staðreyndir Bréf Eggerts kom flatt upp á bæjarstjórnarmenn Flugvél Icelandair þurfti að snúa við Píratar hafa áhyggjur af skorti á eftirliti með lögreglu Úr 256 pakkningum á mánuði upp í sex þúsund Útlendingalög, tilvísanir og skólabygging í Laugardal Fólk setji símana á akstursstillingu til að koma í veg fyrir slys Sjá meira