Í dag verður norðlæg átt, 3 til 10 metrar á sekúndu og léttskýjað, en skýjað á Norður- og Austurlandi og þokuloft á köflum.
Hiti yfir daginn verður frá 1 stigi norðaustanlands, að 13 stigum á Suðurlandi.
Það bætir heldur í vind í kvöld og nótt. Á morgun verða norðan 5-13 m/s og dálítil snjókoma eða slydda norðaustan- og austanlands, en bjartviðri á suðvestanverðu landinu. Hiti breytist lítið.