„Ljóst að almenningi er misboðið í þessu máli“ Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 12. janúar 2022 15:59 Edda, Bára Huld og Gunnar Ingi í Pallborðinu á Vísi í dag. Vísir/vilhelm Fyrirtæki vilja væntanlega ekki tengja sig við einstaklinga sem hafa viðhaft einhverja háttsemi sem almenningi finnst óásættanleg. Þetta kom fram í máli Gunnars Inga Jóhannssonar hæstaréttarlögmanns í Pallborðinu á Vísi í dag.
Nefndi hann hvernig viðbrögð fyrrverandi forsætisráðherra og viðbrögð almennings hefðu orðið til þess að KB Banki hætti við Kaupréttarsamninga árið 2003. Gunnar Ingi var gestur Hólmfríðar Gísladóttur í Pallborðinu á Vísi og Stöð 2 Vísi í dag þar sem farið var um víðan völl hvað varðar kynferðisbrotamál. Hvað megi og megi ekki gera í umfjöllun. Vítalía Lazareva steig fram á dögunum og sagði frá því að fimm menn hefðu farið gróflega yfir mörk sín og brotið gegn sér í tveimur aðskildum tilvikum. Í framhaldinu hafa allir fimm á ein eða annan máta stigið til hliðar. Ekki liggur þó fyrir kæra í málinu og því spurning hvers vegna fyrirtæki hafi brugðist svona hratt við. Bára Huld Beck blaðamaður Kjarnans, einn gesta Pallborðsins, taldi ólíklegt að þetta hefði gerst fyrir fimm til tíu árum síðan. Edda Falak hlaðvarpsstjórnandi taldi að fyrirtækin væru að reyna að bjarga eigin skinni frekar en að um einlæg viðbrögð þeirra væri að ræða. Annars hefðu fyrirtækin gripið til aðgerða í haust þegar ásakanirnar komu fram á samfélagsmiðlum. Vilja ekki tengja sig við slíka einstaklinga Gunnar Ingi, sem hefur endurtekið farið með mál sem snúa að ærumeiðingum fyrir Mannréttindadómstólinn og mætti kalla sérfræðing í slíkum málum hvað lögin varðar, sagði að mál sem þessi snúi að almenningsáliti gagnvart þeim. Þar rugli fólk stundum saman annars vegar málum þar sem menn eru sakaðir um refsiverða háttsemi og svo hins vegar mál sem almenningur hefur óbeit á. Klippa: Gagnvart fyrirtækjunum snýst þetta um að aftengja sig þessu Gagnvart þessum fyrirtækjum vilja þau væntanlega ekki tengja sig við einstaklinga sem hafa viðhaft einhverja háttsemi sem almenningi finnst óásættanleg,“ sagði Gunnar Ingi. Mörg dæmi megi nefna varðandi það hvernig almenningsálitið hafi spilað hlutverk í ákvörðun fyrirtækja. Nefndi hann sem dæmi þegar upplýst var um kaupréttarsamninga Kaupþings Búnaðarbanka við helstu stjórnendur bankans, þá Hreiðar Má Sigurðsson forstjóra og Sigurð Einarsson stjórnarformann. Þetta var í nóvember 2003. Topparnir fengu samninga á sérkjörum Almenningi blöskraði þeir samningar sem gerðir höfðu verið við stjórnendur bankans. Sömuleiðis Davíð Oddssyni þáverandi forsætisráðherra og nú ritstjóra Morgunblaðsins. „Þetta er þekkt dæmi, fyrir ekki einu sinni tuttugu árum síðan, þegar forsætisráðherra landsins gekk inn í útibú með fjölmiðlaskara á eftir sér,“ sagði Gunnar Ingi. Davíð gekk eftir hádegi 21. nóvember inn í aðalútibú Kaupþings Búnaðarbanka í Austurstræti og tók út 400 þúsund krónur af bankabók sinni. Sagðist hann ekki geta hugsað sér að geyma fé í banka sem gæfi landsmönnum langt nef með þessum hætti, og vísaði til kaupréttarsamninganna. Umfjöllun Morgunblaðsins um málið þann 22. nóvember 2003. „Þetta leiddi til þess að hlutabréfaverð í bankanum lækkaði og hætt var við þessa kaupréttarsamninga,“ sagði Gunnar Ingi. Hlutirnir eru að breyast Á þennan hátt geti almenningur haft skoðun á háttsemi fyrirtækja og stjórnenda þess. Það sé tilfellið í máli Vítalíu og fimmmenninganna. „Almenningi mislíkar þessi háttsemi. Gagnvart fyrirtækjunum snýst þetta um að aftengja sig þessu. Það liggur engin kæra fyrir í þessu máli, eftir því sem ég best veit, en ljóst að almenningi er misboðið í þessu máli,“ sagði Gunnar. Edda sagðist ekki hafa trú á því að þessir menn verði komnir aftur í stjórnir eða sín fyrri störf eftir stuttan tíma. „Ég held að þetta sé ekki enn þá þannig. Hlutirnir eru að breytast. Það eru hluthafar í þessum fyrirtækjum sem finnst þessir menn ekkert endilega réttastir í starfið, byggt á þessu öllu. Held að samfélagið og fólk í umræðunni sé ekki að fara að taka það í mál.“ Þáttinn í heild má sjá að neðan.
MeToo Pallborðið Mál Vítalíu Lazarevu Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Innlent Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Innlent Ætlaði að ganga frá álverinu og upp á Keflavíkurflugvöll Innlent Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Innlent Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Innlent Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Innlent Langt í að þeir nái sér að fullu Innlent Best ef forseti hefur ekki verið í stjórnmálastarfi Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Viktor og Kári heltast úr lestinni Innlent Fleiri fréttir Ellefu verða í framboði til embættis forseta Íslands Landlæknir fer með ákvörðun Persónuverndar fyrir dóm Stór hópur fanga sem ekki treystir stofnunum Viktor og Kári heltast úr lestinni Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Best ef forseti hefur ekki verið í stjórnmálastarfi Ráðherra kynnir nýtt mælaborð farsældar barna Skjálfti við Bláfjöll í morgun og óbreytt við Sundhnúk Ætlaði að ganga frá álverinu og upp á Keflavíkurflugvöll Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Óttast að saga slökkviliða á Íslandi glatist Plokkdagurinn mikli haldinn hátíðlegur um land allt Á ofsahraða undir áhrifum fíkniefna Efnahagsstefnan sé að ýta fólki í verðtryggð lán Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Langt í að þeir nái sér að fullu Lögregla með eftirför í Vogahverfi Íslandsferðin sem breyttist í martröð Fundu hræ fimm hvolpa í Mosfellsbæ Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Sigurvin dró smábát í land Vill að fréttastofa RÚV biðji Maríu Sigrúnu afsökunar Lögreglan lofar góðu vegaeftirliti á Suðurlandi í sumar Landskjörsstjórn tilkynnir á morgun hvaða listar eru gildir Mögulega að hægjast á landrisi í Svartsengi Karlremba sé komin í tísku Voru með stæla og neituðu að fara upp úr fyrr en löggan mætti Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Sjá meira