Orri fór á kostum í enn einum sigrinum

Orri Freyr Þorkelsson í leik með Haukum á síðasta tímabili.
Orri Freyr Þorkelsson í leik með Haukum á síðasta tímabili. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Orri Freyr Þorkelsson átti stórleik þegar hann var markahæstur leikmanna Elverum í 31:28 sigri liðsins gegn Runar í norsku úrvalsdeildinni í handknattleik karla í kvöld.

Orri Freyr skoraði átta mörk úr vinstra horninu, var langmarkahæstur leikmanna Elverum og átti stóran þátt í því að Elverum er enn með fullt hús stiga, 26 að loknum 13 leikjum, á toppi deildarinnar.

Markahæstur í leiknum var André Pung Tuzov með níu mörk fyrir Runar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert