Blikinn skoraði í Belgíu

Kolbeinn Þórðarson skoraði fyrra mark Lommel.
Kolbeinn Þórðarson skoraði fyrra mark Lommel. mbl.is/Kristinn Magnússon

Lommel hafði betur gegn Lierse Kempenzonen í B-deild Belgíu í fótbolta í kvöld, 2:1. 

Kolbeinn Þórðarson, sem er á sínu öðru tímabili með Lommel, skoraði fyrra mark liðsins á 38. mínútu og lék allan leikinn. 

Markið var það þriðja sem Kolbeinn skorar í belgísku B-deildinni og annað markið hans á tímabilinu. 

Lommel er í fjórða sæti deildarinnar með 31 stig, 19 stigum á eftir Union Saint-Gilloise sem situr í toppsætinu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert