Einn miðahafi í Víkinglottó vann hinn alíslenska þriðja vinning í útdrætti kvöldsins og fær í sinn hlut 3,1 milljón króna. Vinningsmiðinn var keyptur á lotto.is.
Hvorki fyrsti né annar vinningur gengu út í þetta skiptið.
Einn var með allar tölur réttar í Jóker og hlýtur hann tvær milljónir í sinn hlut. Vinningsmiðinn var keyptur á lotto.is.
Þá var einn með fjórar réttar tölur í réttri röð í Jóker og hlýtur sá hundrað þúsund krónur í sinn hlut. Vinningsmiðinn var keyptur í Happahúsinu Kringlunni.