Rúmur hálfur milljarður í afslátt af námslánum frá því í fyrra

Frá því að ný lög um Menntasjóð námsmanna tóku gildi í fyrra hafa tæplega tvö þúsund manns fengið samtals rúman hálfan milljarð í afslátt frá ríkinu vegna uppgreiðslu námslána. Hægt er að fá allt að 15 prósent afslátt af uppgreiðslu eldri lána.

Frá því að lög um Menntasjóð námsmanna tóku gildi síðasta sumar hefur verið hægt að fá allt að 15 prósenta uppgreiðsluafslátt hjá sjóðnum. Það hafa margir nýtt sér.
Frá því að lög um Menntasjóð námsmanna tóku gildi síðasta sumar hefur verið hægt að fá allt að 15 prósenta uppgreiðsluafslátt hjá sjóðnum. Það hafa margir nýtt sér.
Auglýsing

Frá því að Mennta­sjóður náms­manna byrj­aði að bjóða upp á allt að 15 pró­senta upp­greiðslu­af­slátt vegna upp­greiðslu eldri lána og auka­inn­borg­ana á skulda­bréf hafa tæp­lega tvö þús­und manns fengið rúman hálfan millj­arð í afslátt frá stofn­un­inni fyrir að greiða upp náms­lán sín, sam­kvæmt svari sjóðs­ins við fyr­ir­spurn Kjarn­ans.

Upp­greiðslu­af­slátt­ur­inn var hækk­aður upp í allt að 15 pró­sent um mitt ár í fyrra með nýjum lögum um Mennta­sjóð­inn, sem áður hét Lána­sjóður íslenskra náms­manna. Sam­kvæmt Hrafn­hildi Ástu Þor­valds­dóttur fram­kvæmda­stjóra sjóðs­ins hafa auka­inn­borg­anir og upp­greiðslur til sjóðs­ins auk­ist frá því sem áður var, eftir að þessar breyt­ingar voru gerð­ar.

Nánar til­tekið hafa alls 1.923 ein­stak­lingar greitt upp náms­lán sín frá því að breyt­ing á afslátt­ar­kjör­unum tók gildi. Nemur veittur afsláttur vegna upp­greiðslna skulda­bréfa 480,3 millj­ónum króna en heild­ar­af­sláttur vegna auka­inn­borg­ana á skulda­bréf 36,7 millj­ónum króna.

Hærri lán – meiri afsláttur

Það fer eftir því hversu mikið fólk skuldar í náms­lán hversu hár afslátt­ur­inn verð­ur, en þeir sem skulda meira fá hærri afslátt.

Ef greið­andi skuldar eina milljón króna sam­an­lagt af öllum skulda­bréfum sem eru komin í inn­heimtu nemur afslátt­ur­inn 5 pró­sentum og fer síðan hækk­andi og er veittur hámarks­af­slátt­ur, 15 pró­sent, ef greið­and­inn skuldar 4,8 millj­ónir króna eða meira.

Auglýsing

Sótt er um upp­greiðslu­af­slátt­inn raf­rænt á vef Mennta­sjóðs­ins og fá greið­endur í kjöl­farið sendan greiðslu­seðil í heima­banka þar sem búið er að draga frá upp­hæð­inni þann afslátt sem við­kom­andi á rétt á.

Ein­göngu hægt að fá afslátt vegna upp­greiðslu á eldri lánum og afslátt vegna auka­inn­borg­ana af náms­lánum sam­kvæmt eldri lög­um. Ekki er hægt að fá upp­greiðslu­af­slátt af svoköll­uðum H-lán­um, sem eru þau lán sem veitt eru í dag. Þau fela í reynd í sér styrkja­kerfi fyrir náms­menn, en þeir sem ljúka námi á til­settum tíma eiga rétt á 30 pró­sent nið­ur­fell­ingu höf­uð­stóls náms­láns­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent