NBA dagsins: „Dame tími“ í nótt og Harden lék sér á gamla heimavellinum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. mars 2021 15:30 Damian Lillard í leiknum með Portland Trail Blazers á móti Golden State Warriors í nótt. Getty/Abbie Parr/ Það voru þrennur af ýmsum gerðum í NBA deildinni í körfubolta í nótt og það þarf heldur ekki að koma á óvart að Damian Lillard hafa klárað enn einn leikinn fyrir Portland Trail Blazers.
Sviðsljós kvöldsins var á James Harden sem lék þá sinn fyrsta leik í Houston eftir að Houston Rockets sendi hann til Brooklyn Nets. Harden sýndi snilli sína með enn einni þrennunni í búningi Nets en hann endaði með 29 stig, 10 fráköst og 14 stoðsendingar í sannfærandi 132-114 sigri. „Ég fékk mismunandi móttökur frá stuðningsmönnunum en ég vissi alltaf að það yrði raunin. Ég vildi bara koma hingað og bjóða upp á sýningu,“ sagði James Harden eftir leikinn. James Harden er hæstánægður hjá nýja félaginu sem hefur unnið tíu af síðustu ellefu leikjum sínum en Houston Rockets er aftur á móti ströggli án hans og hefur ekki unnið síðan 4. febrúar. Damian Lillard skoraði fimm síðustu stigin þegar Portland Trail Blazers vann 1086-106 sigur á Golden State Warriors þar á meðal þrist af löngu færi 13,7 sekúndum fyrir leikslok. Lillard var „bara“ með sautján stig fram að lokasekúndunum en sannaði enn á ný að það er engin vitleysa að tala um „Dame tíminn“ í leikjum Trail Blazers. Oftar en ekki þá má búast við einhverju sérstöku frá Lillard þegar úrslitin ráðast. Gamli karlinn Carmelo Anthony var líka mjög flottur með 22 stig en báðir létu þeir til sín taka í lokin. Klippa: NBA dagsins (frá 3. mars 2021) Það voru fleiri þrennur í nótt. Liðsfélagarnir hjá Detroit Pistons, Dennis Smith Jr. (10 stig, 12 fráköst og 11 stoðsendingar) og Mason Plumlee (14 stig, 11 fráköst og 10 stoðsendingar) voru báðir með þrennu í sigri á vængbrotnu liði Toronto Raptors og þá var T.J. McConnell hjá Indiana Pacers með þrennu með 10 stolnum boltum, 16 stigum og 13 fráköstum en Indiana vann þá Cleveland Cavaliers. Hér fyrir ofan má sjá svipmyndir frá sigurleikjum Brokklyn Nets og Portland Trail Blazers sem og frá frábærri frammistöðu Joel Embiid sem var með 40 stig og 19 fráköst þegar besta liðið í Austurdeildinni, Philadelphia 76ers, vann besta liðið í Vesturdeildinni, Utah Jazz, 131-123, í framlengdum leik. Þetta var annað tap Utah Jazz í röð. Í myndbandinu má einnig sjá flottustu tilþrif kvöldsins.
NBA Mest lesið Fékk ellefu leikja bann fyrir geislann úr heiðursstúkunni Fótbolti Booker um sparkið í stellið: „Partur af körfuboltanum en þetta var allt of mikið“ Körfubolti Fékk tvö gul spjöld en slapp samt við rautt spjald Fótbolti Bað Caitlin Clark afsökunar á karlrembunni í sér Körfubolti Vikan varð enn verri fyrir Barcelona: Refsað fyrir nasistakveðjur og fordóma Fótbolti Segir að stressið sé að fara með leikmenn Liverpool Enski boltinn Hvað viltu meira? „Góð aðventa með handbolta og skíðum“ Handbolti Dagný ánægð að vera mætt aftur til æfinga Enski boltinn Ramos rekinn úr húsi fyrir að sparka í klof Bookers Körfubolti „Þurfum á öllum að halda fyrir loka áhlaup í deildinni“ Fótbolti Fleiri fréttir Bað Caitlin Clark afsökunar á karlrembunni í sér „Hlakka rosalega til að sjá troðfullt hús á mánudaginn“ Booker um sparkið í stellið: „Partur af körfuboltanum en þetta var allt of mikið“ Uppgjör og viðtöl: Njarðvík - Þór Þ. 107-110 | Þórsarar sigri frá undanúrslitum Uppgjörið: Valur - Höttur 94-74 | Valsmenn taka forystuna í einvíginu Ramos rekinn úr húsi fyrir að sparka í klof Bookers Curry reyndi að fá Clark til Under Armour en Nike hafði betur Lét leikmenn Tindastóls heyra það: Fólk hérna á þetta ekki skilið Baulað á Sixers en liðið kom til baka og komst áfram „Við bara fóðruðum dýrið og dýrið borðaði“ „Þær skoruðu full auðveldlega á okkur í dag“ „Sem betur fer var leikurinn bara 40 mínútur í dag“ Uppgjörið: Keflavík - Fjölnir 88-72 | Deildarmeistararnir flugu í undanúrslit Uppgjör, viðtöl og myndir: Haukar - Stjarnan 80-78 | Haukasigur eftir dramatík LeBron fer fyrir ógnarsterku liði Bandaríkjanna á ÓL Golden State komst ekki í úrslitakeppnina en Lakers verður með „Erum að spila á móti ríkjandi Íslandsmeisturum og þurfum að vera klárar“ „Náðum að keyra upp hraðann á réttum mómentum“ „Ég held að þetta komi bara með reynslunni“ „Náðum að valta yfir þær í seinni hálfleik“ Uppgjör og viðtöl: Njarðvík - Valur 92-59 | Einstefna og grænar einum sigri frá undanúrslitum Uppgjörið: Grindavík - Þór Ak. 93-75 | Grindvíkingar flugu inn í undanúrslitin Leggur skóna á hilluna Arnór átti Play leiksins: „Hann var stórkostlegur“ Óli var búinn að vara við: „Ef þeir syngja um mig þá kveikir það í mér“ Mætti fyrst allra í Prada og var valin fyrst Kjartan Atli sló metið sem þjálfari sem hann setti sem leikmaður Uppgjör: Tindastóll - Grindavík 88-99 | Gulir með annan fótinn í undanúrslit „Þeir náðu svolítið að snúa þessu í sinn leik“ „Svona leikir eru leikir andans“ Sjá meira