Þórsarar komast ekki austur

Hattarmenn taka á móti Þórsurum annað kvöld en ekki í …
Hattarmenn taka á móti Þórsurum annað kvöld en ekki í kvöld. mbl.is/Kristinn Magnússon

Leik Hattar og Þórs frá Þorlákshöfn í úrvalsdeild karla í körfuknattleik sem fram átti að fara á Egilsstöðum í kvöld hefur verið frestað um sólarhring.

Allt innanlandsflug liggur niðri í dag og Þórsarar komast því ekki austur fyrr en á morgun. Leikið verður á sama tíma og fyrirhugaður var, eða klukkan 19.15.

Uppfært:
Vegna slæms veðurútlits á morgun hefur leikurinn verið settur á kl. 19.15 á laugardagskvöldið á Egilsstöðum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert