Herða reglur í London

Staðan í Evrópu er grafalvarleg að mati WHO.
Staðan í Evrópu er grafalvarleg að mati WHO. AFP

Sóttvarnaaðgerðir verða hertar í London á laugardag og borgin færð á áhættustig tvö af þremur. Það þýðir að fólk getur ekki farið í heimsóknir né sótt bari og veitingastaði með fólki sem er búsett á öðrum heimilum.

Fastlega er gert ráð fyrir að Essex fylgi í kjölfarið með hertum aðgerðum. Þetta þýðir einnig að fólki er ráðið frá því að nota almenningssamgöngur.  Þetta kemur fram í frétt BBC en Manchester og nágrenni verður sett á efsta viðbúnaðarstig, það sama og er í gildi í Liverpool nú þegar. 

Reglurnar verða hertar á laugardag í London.
Reglurnar verða hertar á laugardag í London. AFP

Að sögn borgarstjórans í London, Sadiq Khan, er ekki annað í boði en að herða reglurnar. Enginn vilji herða reglur en þetta sé nauðsyn til þess að vernda líf íbúa borgarinnar.  Khan segir að hann muni áfram þrýsta á að ríkið veiti frekari fjárhagsstuðning og að erfiður vetur sé framundan. 

WHO segir fjölgun smita í Evrópu grafalvarlega þróun

Yfirmaður WHO í Evrópu, Hans Kluge, segir að fjölgun Covid-19 smita í Evrópu sé grafalvarleg þróun en samt megi ekki horfa fram hjá því að staðan er betri nú en í apríl. Covid er nú fimmta algengasta dánarorsökin meðal íbúa í álfunni og nú deyja yfir eitt þúsund manns úr Covid-19 á hverjum degi. 

„Þrátt fyrir að ný smit séu tvisvar til þrisvar sinnum fleiri á dag nú en í apríl þá eru dauðsföllin fimm sinnum færri,“ segir Kluge og bætir við að eins sé álagið mun minna á sjúkrahúsum. 

Kluge segir að ef slakað verður á aðgerðum gagnvart útbreiðslu veirunnar megi búast við því að dauðsföllin í janúar verði fjórum til fimm sinnum fleiri en þau voru í apríl. 

Þotur Ryanair á Stansted flugvelli í London. Hertar reglur víða …
Þotur Ryanair á Stansted flugvelli í London. Hertar reglur víða eru að hafa mikil áhrif á rekstur félagsins. AFP

Stjórnendur írska flugfélagsins Ryanair greindu frá því að dag að um enn frekari samdrátt yrði að ræða hjá félaginu í vetur. Starfsstöðum flugfélagsins verður lokað tímabundið í Cork og Shannon á Írlandi og í Toulouse í Frakklandi vegna ferðatakmarkana. Flugferðir á tímabilinu nóvember til mars verður 40% af þeim fjölda sem var fyrir ári síðan. Í síðasta mánuði var flugferðum fækkað í október sem þessu nemur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert