Forsetinn á leið til Strassborgar

Guðni Th. Jóhannesson forseti.
Guðni Th. Jóhannesson forseti. Ljósmynd/Aðsend

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, mun heimsækja Evrópuráðið í Strassborg í Frakklandi í vikunni, en það tekur hann þátt í fundum í tengslum við formennsku Íslands í ráðinu, m.a. viðburði vegna stafræns kynbundins ofbeldis.

Ferð Guðna stendur yfir dagana 6.-7. desember. Mun hann fyrri daginn taka þátt í fyrrnefndum fundi, en fundurinn er skipulagður af fastanefnd Íslands gagnvart Evrópuráðinu, í tengslum við fund aðildarríkja Istanbúlsamningsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi gegn konum og heimilisofbeldi.

Með ráðstefnunni verður í fyrsta sinn leitt saman starf Evrópuráðsins um netglæpi annars vegar og um kynbundið ofbeldi hins vegar.  

Á viðburðinum verður lögð áhersla á þátt karla og drengja í jafnréttisbaráttu og heldur forseti þar opnunarávarp.

Síðar um daginn verður Guðni heiðursgestur í þjóðhátíðarmóttöku fastanefndar Finnlands í Strassborg. Forseti ávarpar samkomuna.

Síðari daginn mun Guðni eiga fund með varaframkvæmdastjóra Evrópuráðsins, Björn Berge. Þá fundar forseti með aðstoðardómsmálaráðherra Úkraínu um ábyrgðarskyldu vegna glæpa sem framdir hafa verið í innrásinni í Úkraínu.

Um hádegið mun Guðni svo vera sérstakur gestur á fundi ráðherranefndar Evrópuráðsins. Þar mun forseti ávarpa fundinn og ræða leiðtogafund Evrópuráðsins sem haldinn verður í maí 2023 þar sem Ísland verður gestgjafi. Einnig heimsækir forseti Mannréttindadómstól Evrópu og fundar með forseta dómstólsins, Síofra O'Leary.

Eliza Reid forsetafrú heimsækir einnig Evrópuráðið.

Hún tekur m.a. þátt í viðburði um íslenskar bókmenntir ásamt Einari Kárasyni rithöfundi og opnar jólamarkað starfsfólks Evrópuráðsins til styrktar stríðshrjáðu fólki í Úkraínu.

Þá sækja forsetahjónin sérstaka sýningu á dönsk-íslensku kvikmyndinni Volaða land fyrir starfsfólk Evrópuráðsins og fastanefndir aðildarríkjanna í Strassborg.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert