Takmarka fjárfestingarstarfsemi viðskiptabanka Kjartan Kjartansson skrifar 2. mars 2021 18:19 Seðlabanka Íslands er falið að setja reglur um framkvæmd laganna og fjármálaeftirlitssvið þess getur veitt undanþágur frá hámarki ef það er talið þjóna hagsmunum eigenda tryggðra innistæðna eða styðja við fjármálastöðugleika. Vísir/Vilhelm Viðskiptabönkum og sparisjóðum sem taldir eru kerfislega mikilvægir eru settar þrengri skorður í viðskiptum með fjármálagerninga og hrávörur með nýjum lögum sem samþykkt voru á Alþingi í dag.
Lögunum er sagt ætlað að hrinda í setja skýrari mörk á milli viðskipta- og fjárfestingarbankastarfsemi. Hámark á stöðutöku kerfislega mikilvægra viðskiptabanka og sparisjóða í fjármálagerningum og hrávörum verður sett á með gildistöku laga um varnarlínu milli viðskipta- og fjárfestingarbankastarfsemi. Í tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu kemur fram að lögunum sé ætlað að takmarka áhættu innistæðueigenda og ríkisins af fjárfestingarbankastarfsemi viðskiptabanka og sparisjóða. Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, lagði frumvarpið fram. Í kjölfar bankahrunsins árið 2008 var mikið rætt um hvort rétt væri að skilja að viðskipta- og fjárfestingarbankastarfsemi. Frumvarpið sem varð að lögum í dag er sagt hrinda í framkvæmd einni af megintillögum hvítbókar um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið sem var gerð að beiðni ráðuneytisins árið 2018. Með lögunum eru fjárfestingar banka fyrir eigin reikning takmarkaðar við tiltekið hlutfall af eiginfjárgrunni þeirra. Samanlögð eiginfjárþörf viðskiptabanka eða sparisjóðs má þannig ekki vera umfram 15% af eiginfjárgrunni hans. Ráðuneytið segir að lögin um varnarlínuna séu á meðal fjölmargra breytinga sem samþykktar hafa verið á undanförnum árum sem ætlað sé að bæta regluverk á fjármálamörkuðum. Þannig hafi kröfum um magn og gæði eigin fjár verið gerbreytt, bönkum verið gert óheimilt að lána með veði í eigin bréfum, ríkari kröfur gerðar til hæfni stjórnenda banka og fjármálaeftirlit verið stóreflt svo nokkur dæmi séu tekin.
Alþingi Íslenskir bankar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Vonast til að koma dánarbúinu í góðar hendur Neytendur Skelltu líka í lás á Exit og í Nýju vínbúðinni Viðskipti innlent Forstjóri, snúsari, mótorhjólatöffari, veiðimaður og framúrskarandi á ryksugunni Atvinnulíf Sagðir vilja frekar loka TikTok en selja Viðskipti erlent Eitruð vinnustaðamenning algeng og margfaldar líkur á kulnun Atvinnulíf Endurgjöf: Það sem þú átt ekki að gera Atvinnulíf Sækjast eftir fangelsisdómi yfir rafmyntakóngi Viðskipti erlent Mikill samdráttur á hagnaði Tesla Viðskipti erlent Tryggðu sér 300 milljóna króna fjármögnun Viðskipti innlent Töpuðu þremur milljörðum á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Reksturinn þungur í kjölfar „yfirgangs og afskipta lögreglu“ Fjármálastjóri Play segir upp Tryggðu sér 300 milljóna króna fjármögnun Skelltu líka í lás á Exit og í Nýju vínbúðinni Innsigla B5 að kröfu Skattsins Töpuðu þremur milljörðum á fyrsta ársfjórðungi Farsímatekjur undir væntingum Hæstiréttur sker úr um hvort taka hafi mátt bjór úr hillum Samþykkja helming umsókna um sölu eigna fyrir lok vikunnar Selma nýr formaður Kvenna í orkumálum Verðbólgan minnkar en vextirnir hækka Minnsta verðbólga í rúm tvö ár Tekjuhæsti fyrsti ársfjórðungur í sögu Icelandair Hefja viðræður um kaup á 47 þúsund fermetrum af atvinnuhúsnæði Reynslunni ríkari og opnar Wilson‘s Pizza á ný Stefna að opnun Fiskbúðarinnar við Sundlaugaveg í maí Anna Kristín nýr framkvæmdastjóri hjá atNorth Oculis komið á markað Viðskipti með bréf í Oculis hefjast á morgun Hættir sem fjármálastýra Ljósleiðarans Tekur við stöðu framkvæmdastjóra Grænna skáta Fækkuðu tímum í skriffinnsku um tugi klukkustunda á mánuði Breytinga þörf eigi Landsbankinn ekki að keppa á markaði Jón nýr formaður bankaráðs Landsbankans Sýn hættir við að selja vefmiðla og útvarp Sólin sest fyrir fullt og allt á Sælunni Opna verslun á Keflavíkurflugvelli þar sem Arion var áður Bein útsending: Hraunflæðihermar og hönnun hraunvarna Hafa náð nýjum sölusamningi í Bandaríkjunum Framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu til Visku Sjá meira