Griðastaður fyrir skrítið fólk

Holy Hrafn leggur sig með kettinum sínum Spock.
Holy Hrafn leggur sig með kettinum sínum Spock.

Önnur plata tónlistarmannsins Holy Hrafns, Pandaríkin, er komin út og orðin aðgengileg á helstu tónlistarveitum. Holy Hrafn, réttu nafni Óli Hrafn Jónasson, gaf sína fyrstu plötu út fyrir tveimur árum og segist frá áramótum hafa unnið mikið í nýjum lögum og fengið þá hugmynd að gera plötu með því sem hann kallar „blæjubílatónlist“. Meirihluta plötunnar vann hann frá febrúar fram í maí og kom platan út í lok ágúst.

Óli virðist hafa gaman af orða- og talnaleikjum en fyrsta plata hans, Þrettán stafir, innihélt þrettán lög auk þess sem titillinn inniheldur þrettán bókstafi. En hvernig kom titill nýju plötunnar til hans? „Ég var að fara að sofa og þá poppaði hann upp í hausnum á mér. Ég sagði „Pandaríkin“ upphátt, fór að hlæja og hugsaði svo með mér að ég yrði að teikna þetta áður en ég sofnaði svo ég gleymdi þessu ekki,“ svarar Óli en teikningin sem hann nefnir prýðir umslag plötunnar.

Umslag plötunnar Pandaríkin.
Umslag plötunnar Pandaríkin.

Einhvers staðar í b-inu

Óli er fæddur árið 1989, orðinn 31 árs og lærði sem drengur bæði á píanó og klassískan gítar auk þess að vera í kór. „Þegar allt hipphoppið byrjaði, þegar Rímnamín kom út og Rottweiler þegar ég var í sjöunda bekk, fór ég að búa til takta í ACID Pro-forritinu og semja texta,“ segir Óli og er ennþá að. „Ég er að reyna að vera duglegri við að gefa tónlistina út,“ segir hann.

– Ég á erfitt með að skilgreina þessa tónlist, þetta er ekki rapp, ekki hipphopp. Ef þú þyrftir að setja plötuna í einhverja hillu í plötubúð, hvert myndirðu þá setja hana?

„Undir blæjubílatónlist,“ svarar Óli og er í kjölfarið spurður að því hvort sú hilla sé til. „Já, einhvers staðar í b-inu, held ég bara.“

– Við hliðina á brimbrettatónlist kannski?

„Já, ekki langt frá og kannski fönki og danstónlist,“ svarar Óli og segist í grunninn vera rappari eða a.m.k. hliðarsjálf hans, Holy Hrafn. Nýja platan hafi hins vegar þróast í aðra átt, lögin ekki rapp heldur af einhverri óræðri tegund.

Engin pandamæri

– Hvernig land eru Pandaríkin?

„Land sem er ekki til, útópía eða dystópía, griðastaður fyrir skrítið fólk,“ svarar Óli og er spurður að því hvort eitthvert land sé fyrirmynd Pandaríkjanna, kannski Bandaríkin? „Ég veit það ekki, kannski er þetta „positive spin“ á bandaríska drauminn,“ svarar hann.

Í tölvupósti talar Óli um túristagildrur og húsasund nýs ríkis án pandamæra, pandamála eða afstöðu. „Það eru engin pandamál í Pandaríkjunum,“ segir Óli sposkur þegar blaðamaður nefnir þessa lýsingu á landinu og plötunni sem hefur að geyma marga glúrna texta. Einn slíkan má lesa í fylgju með viðtalinu og fjallar hann um bil milli kynslóða. Óli segist upplifa sig á milli kynslóða. Eru það þá X og Y? „Já, ætli það ekki. Ég er klárlega í þessum „millennial“ dekurrassahópi en ég tengi mikið við yngri kynslóðina og í rauninni X-kynslóðina líka,“ svarar hann.

Góðir gestir

Óli fékk ýmsa tónlistarmenn til liðs við sig í plötusmíðinni, m.a. Ella Grill, 7berg, Vigdísi Völu Valgeirsdóttur, HP Ljóðkraft, Drenginn fenginn og Stelpurófuna. Samstarfsmennirnir höfðu sín jákvæðu áhrif á útkomuna, segir Óli, og að geggjað sé að fá einhvern utanaðakomandi til að túlka konseptið. Ekki eru gestirnir allir rapparar, sumir hverjir söngvarar og gjörningalistamenn. Óli naut góðs af þeim og þeir góðs af honum.

Hvað útgáfutónleika varðar, nú á tímum kófsins, segir Óli að líklega verði hægt að halda þá í upphafi næsta árs, í janúar eða febrúar, ef veiran leyfir.

Fortíðin blys

Eftirfarandi er hluti texta við lagið „Anakrónískt Kóla“:

Hver er ekki að fara á mis, ekki voða erfitt/....fortíðin er einsog blys sem að logar ekki.

Fortíðin er bara saga eins og úr partýum/og manstu í gamla daga var allt bara í svarthvítu og kímnigáfa milli kynslóðanna týndist/svo týnda kynslóðin bar'í sífellu yngist.

Týnda kynslóðin, missti eldmóðinn/svo klámkynslóðin, tók kyndilinn og tróð inn.

Þetta er ekki eitthvað til að bera um á erminni/eða til að skera út og fela undir hendinni.

Þetta er fyrir félagana hér sem sitja í nefndinni/þetta er fyrir elítu meðalmanna blendinginn.

Hér má svo sjá myndband við lag af plötunni:

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant