R. Kelly sakfelldur Þorgils Jónsson skrifar 27. september 2021 19:49 Tónlistarmaðurinn R. Kelly var í kvöld sakfelldur fyrir fjöldann allan af ákærum, meðal annars um kynferðilsega misnotkun á börnum. Hann á yfir höfði sér áratugavist í fangelsi. Tónlistarmaðurinn R. Kelly var fyrir stundu sakfelldur fyrir fjölda brota, sem lutu meðal annars að kynferðislegri misnotkun á börnum, mútum, mannráni og mansali.
Kelly, sem hefur setið í varðhaldi í um tvö ár, hefur lengi legið á hálsi að stunda kerfisbundna misnotkun á ungum konum og stúlkum, en var sýknaður af ákærum um framleiðslu barnaníðsefnis fyrir 13 árum síðan. Dómsmálið þetta var rekið í New York og samanstóð kviðdómurinn af sjö körlum og fimm konum. Kelly gæti nú átt von á áratugadómi, en hann á þess utan líka eftir að koma fyrir dóm í Illinois og Minnesota vegna svipaðra mála. Gloria Allred, sem er lögmaður margra kvennanna sem sökuðu Kelly um að brjóta á sér, var ómyrk í máli fyrir utan réttarsalinn í dag. Hún sagði meðal annars að á 47 ára ferli sínum, væri R. Kelly versti brotamaður sem hún hafði þurft að eiga við. Þessi niðurstaða þýddi þó að nú þyrftu níðingar, sem áður hafi farið sínu fram í krafti frægðar sinnar, að fara að gæta sín. Það sé ekki spurning um hvort þeir verði stöðvaðir, heldur hvenær. Attorney Gloria Allred, who represented several of accusers in the case against R. Kelly, said after his guilty verdict that the R&B singer is the worst predator she has ever pursued https://t.co/nQnma0o5hC pic.twitter.com/eTRSDw5y3P— Reuters (@Reuters) September 27, 2021
Bandaríkin Tónlist Mál R. Kelly MeToo Hollywood Tengdar fréttir R. Kelly mun ekki bera vitni í eigin máli Tónlistarmaðurinn R. Kelly lýsti því yfir við dómara í dag að hann muni ekki bera vitni í dómsmáli sínu. Kelly er ákærður fyrir mansal og fjölda kynferðisbrota. Þetta þýðir að saksóknarar munu ekki fá tækifæri til að spyrja Kelly út í ákæruliðina og þá vitnisburði sem fram hafa komið hjá meintum brotaþolum hans. 22. september 2021 18:28 Segja R.Kelly hafa skipað sér að skrifa neyðarleg bréf honum til verndar Vitni og meint fórnarlömb í máli ákæruvaldsins gegn bandaríska tónlistarmanninum R. Kelly segja hann hafa skipað sér að skrifa bréf sem innihéldu lýsingar sem komu bréfritara illa. Bréfin voru hugsuð sem eins konar trygging sem hann gæti nýtt sér til að vernda sig fyrir lögsóknum. 5. september 2021 22:47 Segir R. Kelly hafa lofað sér frægð í skiptum fyrir kynlíf Fyrsti karlinn, sem hefur ásakað tónlistarmanninn R. Kelly um að hafa beitt sig kynferðisofbeldi, vitnaði fyrir dómi í gær og sagði Kelly hafa lofað sér frægð í skiptum fyrir kynlíf. Gærdagurinn var áttundi dagur réttarhaldanna yfir tónlistarmanninum. 31. ágúst 2021 12:44 Segir Kelly hafa smitað sig af herpes og neytt sig til að gangast undir þungunarrof Tónlistarmaðurinn R. Kelly nauðgaði 17 ára stúlku, skipaði henni að gangast undir þungunarrof og smitaði hana af herpes, vitandi að hann var sjálfur smitaður. Þetta kom fram við réttarhöld yfir söngvaranum í gær. 24. ágúst 2021 11:48 Greiddu mútur svo R. Kelly gæti gifst 15 ára stúlku Fyrrverandi tónleikaskipuleggjandi söngvarans R. Kelly viðurkenndi fyrir rétti í gær að hann hefði mútað opinberum starfsmanni til að falsa skilríki söngkonunnar Aaliyah þegar hún var 15 ára svo Kelly gæti gifst henni. Þau töldu þá að hún væri orðin ólétt eftir hann. 21. ágúst 2021 23:14 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Innlent Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Fleiri fréttir Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Sjá meira
R. Kelly mun ekki bera vitni í eigin máli Tónlistarmaðurinn R. Kelly lýsti því yfir við dómara í dag að hann muni ekki bera vitni í dómsmáli sínu. Kelly er ákærður fyrir mansal og fjölda kynferðisbrota. Þetta þýðir að saksóknarar munu ekki fá tækifæri til að spyrja Kelly út í ákæruliðina og þá vitnisburði sem fram hafa komið hjá meintum brotaþolum hans. 22. september 2021 18:28
Segja R.Kelly hafa skipað sér að skrifa neyðarleg bréf honum til verndar Vitni og meint fórnarlömb í máli ákæruvaldsins gegn bandaríska tónlistarmanninum R. Kelly segja hann hafa skipað sér að skrifa bréf sem innihéldu lýsingar sem komu bréfritara illa. Bréfin voru hugsuð sem eins konar trygging sem hann gæti nýtt sér til að vernda sig fyrir lögsóknum. 5. september 2021 22:47
Segir R. Kelly hafa lofað sér frægð í skiptum fyrir kynlíf Fyrsti karlinn, sem hefur ásakað tónlistarmanninn R. Kelly um að hafa beitt sig kynferðisofbeldi, vitnaði fyrir dómi í gær og sagði Kelly hafa lofað sér frægð í skiptum fyrir kynlíf. Gærdagurinn var áttundi dagur réttarhaldanna yfir tónlistarmanninum. 31. ágúst 2021 12:44
Segir Kelly hafa smitað sig af herpes og neytt sig til að gangast undir þungunarrof Tónlistarmaðurinn R. Kelly nauðgaði 17 ára stúlku, skipaði henni að gangast undir þungunarrof og smitaði hana af herpes, vitandi að hann var sjálfur smitaður. Þetta kom fram við réttarhöld yfir söngvaranum í gær. 24. ágúst 2021 11:48
Greiddu mútur svo R. Kelly gæti gifst 15 ára stúlku Fyrrverandi tónleikaskipuleggjandi söngvarans R. Kelly viðurkenndi fyrir rétti í gær að hann hefði mútað opinberum starfsmanni til að falsa skilríki söngkonunnar Aaliyah þegar hún var 15 ára svo Kelly gæti gifst henni. Þau töldu þá að hún væri orðin ólétt eftir hann. 21. ágúst 2021 23:14