Brynjar telur spillingartal fráleitt ef Þorvaldur er einn til frásagnar Jakob Bjarnar skrifar 22. febrúar 2021 10:34 Brynjar telur afar hæpið að byggja niðurstöður um spillingu á Íslandi á því sem Þorvaldur Gylfason hefur um málið að segja. Brynjar Níelsson alþingismaður segir lítið mark á niðurstöðum Transparency International takandi ef samtökin vilja byggja sínar niðurstöður á ályktunum Þorvaldar Gylfasonar hagfræðings
Þetta kemur fram í grein sem Brynjar birtir á Vísi nú fyrir stundu. Hann segist stuðningsmaður frjálsra félagasamtaka sem berjast fyrir göfugum markmiðum, til dæmis fyrir mannréttindum og gegn spillingu. En traust og trúverðugleiki séu forsenda þess að slík félagsamtök fái þrifist. „Þegar fulltrúar Gagnsæis komu fram og fluttu okkur með miklum þunga og sorg í hjarta að spilling á Íslandi sé að aukast á milli ára, án þess að munur milli áranna væri tölfræðilega martækur, vaknar grunur um að eitthvað annað sé að baki en fræði og hlutleysi,“ segir Brynjar. Í frétt Vísis frá því fyrr á þessu ári kemur fram að samkvæmt niðurstöðum Transparency International aukist spilling enn á Íslandi sem nú situr í 17. sæti á árlegum lista. Brynjar telur að ef þessi niðurstaða, sem hann segir fráleita, byggist á mati Þorvaldar Gylfasonar, þá sé ekki von á góðu. „Menn sem ólust upp í aftursæti ráðherrabifreiðar og fengið allt upp í hendurnar án þess að þurfa að hafa fyrir nokkru og finnst að auki eðlilegt að klíkubræður og vinir ráði því hverjir verði ritstjórar hagfræðirits sem norrænu ríkin gefa út, eiga síst allra að mæla og meta spillingu hjá öðrum,“ segir Brynjar meðal annars. Þorvaldur og forysta Sjálfstæðisflokksins hafa ýmsa hildi háð og vakti mikla athygli í fyrra þegar Bjarni Benediktsson lagðist eindregið gegn því að Þorvaldur yrði ráðinn til að ritstýra samnorræna efnahagsritinu Nordic Economic Policy Review. Bjarni, sem kallaður var sérstaklega fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd vegna málsins, svaraði því meðal annars svo til að ekki væri hægt að sjá fyrir sér mann eins og Þorvald í því starfi. „Hann hefur látið ótrúleg ummæli falla um Sjálfstæðisflokkinn.“
Alþingi Stjórnsýsla Tengdar fréttir Spillingin liggur víða Ég varð mjög hugsi þegar forsvarsmenn Gagnsæis, sem er Íslandsdeild Transparency International, tilkynntu með miklum þunga að spilling á Íslandi hefði aukist á milli ára eins og öll síðustu tíu ár samkvæmt mælingum á spillingarvísitölu þeirra. 22. febrúar 2021 10:03 Myndi þiggja afsökunarbeiðni frá Bjarna Fyrrverandi ritstjóri norræns fræðitímarits myndi þiggja afsökunarbeiðni frá fjármálaráðherra þar sem hann hafi sakað sig um vinahygli á fundi stjórnskipunar-og eftirlitsnefndar í gær. Umfjöllun um mál Þorvaldar Gylfasonar hefur vakið athygli utan landsteinanna. 16. júní 2020 13:51 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Innlent Viktor og Kári heltast úr lestinni Innlent Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Innlent Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Innlent Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Innlent Ætlaði að ganga frá álverinu og upp á Keflavíkurflugvöll Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Innlent Helmingurinn af búslóðinni í ruslið Innlent Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Innlent Fleiri fréttir Kjörinn heiðursmeðlimur í bandarísku lista- og vísindaakademíuna Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Helmingurinn af búslóðinni í ruslið Fyrstu tilnefningar til Vigdísarverðlauna Evrópuráðsþingsins kynntar á Alþingi Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Ellefu verða í framboði til embættis forseta Íslands Landlæknir fer með ákvörðun Persónuverndar fyrir dóm Stór hópur fanga sem ekki treystir stofnunum Viktor og Kári heltast úr lestinni Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Best ef forseti hefur ekki verið í stjórnmálastarfi Ráðherra kynnir nýtt mælaborð farsældar barna Skjálfti við Bláfjöll í morgun og óbreytt við Sundhnúk Ætlaði að ganga frá álverinu og upp á Keflavíkurflugvöll Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Óttast að saga slökkviliða á Íslandi glatist Plokkdagurinn mikli haldinn hátíðlegur um land allt Á ofsahraða undir áhrifum fíkniefna Efnahagsstefnan sé að ýta fólki í verðtryggð lán Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Langt í að þeir nái sér að fullu Lögregla með eftirför í Vogahverfi Íslandsferðin sem breyttist í martröð Fundu hræ fimm hvolpa í Mosfellsbæ Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Sigurvin dró smábát í land Vill að fréttastofa RÚV biðji Maríu Sigrúnu afsökunar Lögreglan lofar góðu vegaeftirliti á Suðurlandi í sumar Sjá meira
Spillingin liggur víða Ég varð mjög hugsi þegar forsvarsmenn Gagnsæis, sem er Íslandsdeild Transparency International, tilkynntu með miklum þunga að spilling á Íslandi hefði aukist á milli ára eins og öll síðustu tíu ár samkvæmt mælingum á spillingarvísitölu þeirra. 22. febrúar 2021 10:03
Myndi þiggja afsökunarbeiðni frá Bjarna Fyrrverandi ritstjóri norræns fræðitímarits myndi þiggja afsökunarbeiðni frá fjármálaráðherra þar sem hann hafi sakað sig um vinahygli á fundi stjórnskipunar-og eftirlitsnefndar í gær. Umfjöllun um mál Þorvaldar Gylfasonar hefur vakið athygli utan landsteinanna. 16. júní 2020 13:51