„Heilbrigðisráðherra fellur enn einu sinni á prófinu“ Sunna Sæmundsdóttir skrifar 10. maí 2021 17:46 Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingar. vísir/Vilhelm Þingmenn hafa áhyggjur af því að frestur heilbrigðisráðherra á skilum á skýrslu um skimanir fyrir krabbameini í leghálsi leiði til þess að ekki verði hægt að ræða hana efnislega fyrir þinglok.
Líkt og greint var frá í dag hefur heilbrigðisráðherra óskað eftir fresti til skila á skýrslu til Alþingis um breytingar á skipulagi og framkvæmd skimunar fyrir krabbameini í leghálsi hér á landi. Haraldur Briem, fyrrverandi sóttvarnarlæknir, mun vinna skýrsluna og samkvæmt tilkynningu ráðuneytisins er gert ráð fyrir að hún verði tilbúin til afhendingar í lok fyrstu viku júnímánaðar. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar, sem óskaði eftir skýrslunni segir að fresturinn muni að líkum leiða til þess að þingið fái ekki tækifæri til að ræða niðurstöðurnar. „Skýrslan verður nefnilega ekki lögð fram fyrr en í blálok þingsins eða jafnvel eftir að þingið verður farið í sumarleyfi,“ segir Þorbjörg í stöðuuppfærslu á Facebook. „Markmiðið með skýrslubeiðninni var að stuðla að því að hægt yrði að leggja forsendur á borðið, að eiga í kjölfarið samtal sem gæti leitt til niðurstöðu sem yrði til þess að ná fram sátt og traust meðal kvenna og heilbrigðiskerfisins sjálfs. Svörin um þessa heilbrigðisþjónustu kvenna mun samkvæmt þessu liggja fyrir svo seint að hið pólitíska samtal um málið getur varla átt sér stað á Alþingi fyrir þinglok.“ Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingar, gerir athugasemd við að Haraldur Briem hafi verið fenginn til verksins og vísar til þess að samkvæmt skýrslubeiðni hafi átt að velja óháðan aðila í samráði við þingflokka. „Það sem vekur athygli mína er að Haraldur Briem var sóttvarnarlæknir þegar Birgir Jakobsson, aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra var landlæknir sem og þegar Kristján Oddsson, sem leiðir þessar yfirfærslur allar, var aðstoðarlandlæknir. Þá var Haraldur Briem fenginn til að vera skimunarráði til ráðgjafar þegar fyrirkomulag skimana var ákveðið. Hvernig þessi sami einstaklingur, jafn ágætur og hann er, getur verið óháður aðili sem á að meta breytingar á skipulagi og framkvæmd skimunar fyrir krabbameini í leghálsi, áhrif breytinganna á öryggi skimunar og margt fleira, er mér alveg óskiljanlegt,“ segir Helga Vala. „Enn einu sinni fellur heilbrigðisráðherra á prófinu þegar kemur að þessu máli. Það er ekki eitt, það er beinlínis allt við þetta alveg ofboðslega mikið klúður.“
Alþingi Skimun fyrir krabbameini Heilbrigðismál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Segja „alvarlegar staðreyndavillur“ í umfjöllun Kastljóss Innlent Stillir viðtækið á alheimsdögunina Innlent „Skítkastið var ógeðslegt“ Innlent Verðhækkanir á döner-kebab eitt helsta áhyggjuefni Þjóðverja Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Massíf slysaslepping á vondu frumvarpi“ Innlent Séra Guðrún kjörin biskup Íslands Innlent Beinagrindur og ástarsorg á Bessastöðum Innlent „Tjónið af þessum slóðaskap hleypur á fleiri milljörðum“ Innlent Faðir mannsins sem lést á Litla-Hrauni krefst umbóta Innlent Fleiri fréttir Aðstæður fyrir stýrivaxtalækkun á morgun Gosið gæti þúsundfaldast við nýjan atburð Séra Guðrún kjörin biskup Íslands Segja „alvarlegar staðreyndavillur“ í umfjöllun Kastljóss SA og SSF skrifuðu undir langtímakjarasamning Agnes segir nýjan biskup taka við annarri kirkju en hún tók við Stýrivextir, Eurovision og biskupskjör „Skítkastið var ógeðslegt“ Fiskadauði í einni af mestu sjóbirtingsveiðiám landsins Valtýr ráðinn yfirlæknir Ný nálgun Samfylkingar í orkumálum konfekt í eyrum Jóns Vilja tryggja öryggi starfsfólks í vegavinnu „Massíf slysaslepping á vondu frumvarpi“ Stillir viðtækið á alheimsdögunina Þrír handteknir vegna vopnalagabrota og tveir vegna líkamsárásar Beinagrindur og ástarsorg á Bessastöðum Alþjóðanemar neyðist til að vinna svart á Íslandi „Tjónið af þessum slóðaskap hleypur á fleiri milljörðum“ Stóra stundin að renna upp: Bjartsýn en með báða fætur á jörðinni Sanngirnisbótafrumvarpið sé blekking Faðir mannsins sem lést á Litla-Hrauni krefst umbóta Kveikt í papparusli í Glæsibæ Flugfélögin grípa til ráðstafana vegna verkfallsaðgerða Skjálfti fannst vel á höfuðborgarsvæðinu Ákall frá föður látins fanga og beinagrindur á Bessastöðum Kveðst ekki svindla á neinum með happdrætti sínu Örlætisgjörningur ríkislögreglustjóra til tals á þinginu Brynjar hefur ekki orðið var við neina skrímsladeild í Valhöll Framkvæmdir muni ekki hafa marktæk áhrif á daglega starfsemi Segja varkárni ávallt hafa verið Haraldi efst í huga Sjá meira