Innlent

Fyrir­tæki hefur þurft að loka vegna far­aldursins

Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar
Kórónuveirufaraldurinn hefur haft mikil áhrif á samfélagið í Grundarfirði síðustu daga. 
Kórónuveirufaraldurinn hefur haft mikil áhrif á samfélagið í Grundarfirði síðustu daga.  Vísir/Egill

Kórónuveirufaraldurinn hefur skollið á íbúa Grundarfjarðar síðustu daga af fullum þunga en fjórðungur þeirra er nú annað hvort í einangrun eða í sóttkví.

Í gær greindust 147 með veiruna á landinu öllu. Nokkrir af þeim eru íbúar Grundafjarðabæjar. Nú eru alls 213 íbúar í bænum í einangrun eða sóttkví en íbúar eru alls 860.

„Þetta er um fjórðungur, 25% og það er fyrir utan þá foreldra sem eru þá ekki skráðir og þurfa þá að vera með börn sín en uppistaðan eru börn um tólf ára og yngri,“ segir Björg Ágústsdóttir, bæjarstjóri Grundarfjarðarbæjar. Skólastarf í bænum hefur legið niðri vegna faraldursins.

Börnin lítið veik

„Við höfum í þessari viku haft leikskólann og grunnskólann lokaða og íþróttastarfsemi og félagsstarf og svoleiðis. Líka hjá eldri borgurum og það svona leiðir af sjálfu sér. 

Það var mjög stór skimun í morgun, öll börn og starfsfólk í leikskólum, og við þurfum að sjá svona hver niðurstaðan úr því verður í kvöld. Hins vegar sjáum við ekki fram á að það sé skynsamlegt að hafa opið á morgun og hinn en við erum aðeins að skoða forgangshópana.“

Björg segir börn vera stóran hluta þeirra sem er með veiruna en þau séu flest lítið veik.

„Mér finnst börnin almennt ekki veik. Kannski bara svona svolítið eins og venjulegar pestar eða jafnvel ekki veik. En það eru alveg dæmi, þó maður geti ekki farið út í það sérstaklega, í þar síðustu viku þar sem voru sjúkraflutningar og jafnvel alvarleg tilfelli þannig maður skyldi ekki taka þessu af léttúð. En auðvitað er þetta eitthvað sem við erum læra að lifa með,“ segir Björg.

Þurft að loka fiskvinnslu

Fjórir togarar eru gerðir út frá bænum og eru allir á leið um borð hraðprófaðir. Þá er tvo stór sjávarútvegsfyrirtæki í bænum sem hafa fundið fyrir því hversu margir íbúar hafa fengið veiruna.

„Annað þeirra sem hefur þurft að loka en vonandi getur opnað aftur á morgun. Það er saltfiskvinnsla hjá Soffaníasi Cecilssyni.“

Jólavertíðin sé fyrirtækinu mjög mikilvæg og því mikið í húfi að það náist að hefja framleiðslu þar sem fyrst aftur.

Björg vonar að þær aðgerðir sem gripið hefur verið til skili árangri. „Það munar um hvern einasta dag sem við náum að stytta þetta um.“


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×