Sænska ríkisstjórnin gæti fallið á mánudag Vésteinn Örn Pétursson skrifar 17. júní 2021 19:55 Vel gæti farið svo að ríkisstjórn Stefans Löfvens muni falla eftir helgi. Janerik Henriksson/TT via AP Sænska þingið mun greiða atkvæði um vantrauststillögu Svíþjóðardemókrata á ríkisstjórn Stefan Löfven á mánudag.
Vantraustið snýr að ákvörðun um að aflétta þaki á leigu á nýju húsnæði, sem eru talin svik við sænsku húsnæðisleiðina. Verði vantrauststillagan samþykkt þarf annað hvort að mynda nýja ríkisstjórn eða boða til nýrra kosninga í haust. Ákvörðunin um að aflétta umræddu leiguþaki á nýju húsnæði var ein forsenda þess að minnihlutastjórn Græningja og Sósíaldemókrata yrði varin falli af sænska Miðflokknum og Frjálslynda flokknum. Stjórnin er þó einnig varin af Vinstriflokknum, sem er á móti afléttingunni. Sérfræðingar ytra telja hins vegar líklegt að vantrauststillagan verði samþykkt. Þá þarf annað hvort að mynda nýja ríkisstjórn, eða boða til nýrra kosninga. Síðast var kosið til þings í Svíþjóð í september 2018. Að loknum löngum og erfiðum stjórnarmyndunarviðræðum var niðurstaðan áðurgreind, minnihlutastjórn sem þrír flokkar vörðu falli. Löfven sjálfur telur það óábyrgt að fara fram með atkvæðagreiðsluna, sem Svíþjóðardemókratar eiga frumkvæði að, en er talin vera meirihluti fyrir með stuðningi Kristilegra Demókrata, Vinstriflokksins og Moderaterna. „Þetta er ekki það sem sænskur almenningur býst við að fá út úr stjórnmálum. Þetta er hættuleg braut sem Vinstriflokkurinn er að feta ásamt hægra-íhaldinu,“ hefur sænska ríkisútvarpið eftir Löfven, sem segir ríkisstjórnina ekki vera nálægt því að hafa lokið vinnu við frumvarp um afléttingu leiguþaks á nýtt húsnæði. Því sé vantrauststillagan einfaldlega ótímabær.
Svíþjóð Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Leitin enn ekki borið árangur Erlent Tveir látnir og fimm saknað eftir slys í Dóná Erlent Diddy biðst afsökunar á „ófyrirgefanlegri hegðun“ Erlent Frambjóðendur geti nýtt sér skoðanakannanir Innlent Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Varasamt að ferðast á sumardekkjum í kvöld Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður Innlent Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent Fleiri fréttir Leitin enn ekki borið árangur Tveir látnir og fimm saknað eftir slys í Dóná Diddy biðst afsökunar á „ófyrirgefanlegri hegðun“ Óljóst hvort þyrlan sé fundin Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar Sjá meira