Telja ekki hagsmuni barna að eineltismál séu rekin í fjölmiðlum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 30. nóvember 2020 12:48 Garðaskóli í Garðabæ. Garðaskóli Bæjarstjóri í Garðabæ segir að í undantekningartilfellum dugi ekki aðgerðaráætlanir í eineltismálum til að leysa mál sem komi upp. Mál sem varði samskiptavandamál geti verið sérstaklega erfið þegar börn eigi í hlut. Þá hafi börn ekki hag af því að slík mál séu rakin í fjölmiðlum.
Ríkisútvarpið greindi frá málinu um helgina sem snýr að ungri stúlku í Garðabæ. Foreldrar hennar urðu þess áskynja að henni liði ekki vel í Hofstaðaskóla sem er fyrir nemendur í 1. til 7. bekk. Eftir flutning yfir í Garðaskóla, sem er fyrir nemendur í efstu bekkjum grunnskóla, var svo komið að foreldrar ákváðu að halda henni heima. Hún er nú í heimakennslu og tekur engan þátt í félagsstörfum. Foreldrar barnsins segjast ráðþrota vegna skorts á svörum frá skólanum og bæjaryfirvöldum. Engin bein samskipti við foreldra Foreldrar barnsins segja um eineltismál að ræða á meðan skólayfirvöld vísi til samskiptavanda. RÚV sagði frá því að tilfinningaþrunginn fundur foreldra með skólayfirvöldum hefði farið fram hafi foreldrum verið meinað að hafa samband í tölvupósti eða síma. Öll samskipti fari fram í gegnum millilið. Mennta- og menningarmálaráðuneytið sendi bréf til bæjarstjóra Garðabæjar í nóvember og lýsti yfir áhyggjum á því að málið væri komið í þennan farvegi. Ekki samrýmdist lögum að loka á samskipti við foreldra. Þá væri óeðlilegt að málinu hefði verið lokað í júní án þess að fullnægjandi árangur hefði náðst. Lögbundin skylda hvíli á Garðabæ að takast á við vandann. Segir starfsmenn vinna faglega að lausn Jóhann Skagfjörð Magnússon, skólastjóri Garðaskóla, hefur ekki viljað tjá sig um málið þar sem það varði málefni einstakra nemenda. Bæjarstjóri í Garðabæ sendir frá sér tilkynningu í dag þar sem hann svarar gagnrýni á almennum nótum. „Bæði sveitarfélagið og grunnskólar þess leggja ríka áherslu á þá skyldu sína að tryggja á öllum tímum velferð, vellíðan og öryggi allra nemenda í skólanum. Starfsmenn grunnskólanna og sveitarfélagsins leggja sig þannig fram í störfum sínum og vinna faglega að lausn allra þeirra mála sem upp koma í skólasamfélaginu,“ segir Gunnar Einarsson bæjarstjóri. „Í Garðabæ eru slík mál unnin í samræmi við viðeigandi aðgerðaráætlanir, sem sæta sífelldri endurskoðun. Vinnu eftir slíkum áætlunum er ætlað að tryggja faglega og vandaða málsmeðferð með það að leiðarljósi að ná fram farsælli lausn og tryggja hagsmuni þeirra barna sem í hlut eiga.“ Í undantekningartilfellum dugi það hins vegar því miður ekki til. Málið í vinnslu í ráðuneytinu „Mál er varða samskipti og samskiptavandamál eru sérstaklega erfið og vandmeðfarin, sér í lagi þegar börn eiga í hlut. Eðli slíkra mála er að á þeim geta verið margar hliðar og sæta stöðugri úrvinnslu starfsmanna og annarra fagaðila þar til að viðunandi lausn fæst.“ Þannig hafi starfsmenn grunnskólans og sveitarfélagsins lagt mikla vinnu í að leita leiða til að leysa umrætt mál á öllum stigum þess, og leitað ráðgjafar utanaðkomandi fagaðila, m.a. fagráðs eineltismála. Málið sé og hafi verið í stöðugri vinnslu, m.a. með aðkomu mennta- og menningarmálaráðuneytisins. „Að öðru leyti vísar sveitarfélagið til þess að það getur ekki tjáð sig opinberlega um einstök mál sem til meðferðar eru og mun því ekki taka þátt frekari fjölmiðlaumfjöllun eða annarri umræðu um málið. Af hálfu Garðabæjar er þó rétt að taka fram að sveitarfélagið telur það ekki hagsmuni þeirra barna sem í hlut eiga, að mál sem þetta sé rekið í fjölmiðlum.“ Fréttin hefur verið uppfærð. Í fyrri útgáfu stóð að stúlkan hefði hætt í Hofstaðaskóla en það var ekki rétt.
Garðabær Börn og uppeldi Skóla - og menntamál Réttindi barna Tengdar fréttir Björgvin Páll ósáttur með eineltisumræðu: „Fólk er hreinlega tilbúið að taka 10 ára börn af lífi“ Björgvin Páll Gústavsson landsliðsmaður í handbolta segir það gjörsamlega galið að fólk skuli hafa skipt sér í fylkingar í umræðu um eineltismál í grunnskólum. 25. október 2020 23:34 Brosir hringinn eftir skilaboð frá þeim sem hann dýrkar og dáir mest 24. október 2020 22:46 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju Erlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent Baldur vinsælasta plan B Innlent „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Innlent Fleiri fréttir „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Baldur vinsælasta plan B Bein útsending: MenntaStefnumót í Reykjavík Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu Telur ekki óeðlilegt að sýna mótmælendum samstöðu Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Einhver í herberginu segi ekki satt „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista Sjóslys, Þórkatla og framtíð Play Sjá meira
Björgvin Páll ósáttur með eineltisumræðu: „Fólk er hreinlega tilbúið að taka 10 ára börn af lífi“ Björgvin Páll Gústavsson landsliðsmaður í handbolta segir það gjörsamlega galið að fólk skuli hafa skipt sér í fylkingar í umræðu um eineltismál í grunnskólum. 25. október 2020 23:34