Samkeppniseftirlitið slær á putta SA vegna ummæla Halldórs Eiður Þór Árnason skrifar 22. október 2021 13:44 Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, og Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Samsett Samkeppniseftirlitið brýnir fyrir forsvarsmönnum hagsmunasamtaka að taka ekki þátt í umfjöllun um verðlagningu þar sem slíkt geti verið óheimilt samkvæmt samkeppnislögum.
Ástæða áminningarinnar er nýleg fjölmiðlaumfjöllun um vöruskort, hækkandi hrávöruverð og efnahagslegar afleiðingar faraldursins. Vísar stofnunin meðal annars til þess þegar Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, lét hafa eftir sér að það væri „mjög líklegt að [vöru]skorturinn til skamms tíma muni valda verðhækkunum alla vega á einhverjum vöruflokkum.“ Einnig hafi Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, lýst yfir áhyggjum af því að „það verði áfram þrýstingur á verðlag vegna innfluttrar verðbólgu […]“ í grein í Viðskiptablaðinu auk þess að lýsa því yfir í ViðskiptaMogganum að „greinilegt“ sé að „þær hækkanir sem orsakast af þessum miklu hrávöruhækkunum, […] eru ekki að fullu komnar fram [á Íslandi]“. Þá vísar eftirlitið til þess að Gunnar Þorgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands, hafi sagt að verðhækkanir á tilbúnum áburði muni á endanum leiða til hækkunar á afurðaverði og nefndi sem dæmi framleiðslu á grænmeti og mjólkurafurðum. Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri SVÞ. Settar skorður í hagmunagæslu Greint er frá tilmælum stofnunarinnar í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu. Þar segir að ákvæði samkeppnislaga setji hagsmunasamtökum skorður í hagsmunagæslu sinni og verða samtök fyrirtækja því að fara afar gætilega þegar kemur að umræðu og fræðslu sem getur haft áhrif á markaðshegðun félagsmanna. „Öll þátttaka í umræðu um verð og verðlagningu er sérstaklega varhugaverð og ætti ekki að eiga sér stað á vettvangi hagsmunasamtaka.“ Sérstaklega er brýnt að gætt sé að þessu þegar í hlut eiga fákeppnismarkaðir og efnahagserfiðleikar steðja að. Neytendur eigi heimtingu á að fyrirtæki ákveði sjálfstætt Samkeppniseftirlitið segir að hækkun á aðfangaverði eigi ekki að leiða sjálfkrafa til hækkunar á verði til neytenda. Samkeppnislög geri ráð fyrir því að hvert og eitt fyrirtæki geri eigin ráðstafanir og taki sjálfstæðar ákvarðanir til að bregðast við slíkum áskorunum á sínum eigin rekstrarlegu forsendum og án alls samráðs við keppinauta eða hvatningar frá hagsmunasamtökum. „Undir kringumstæðum sem þessum, þegar erfiðleikar steðja að, setur virk samkeppni þrýsting á stjórnendur fyrirtækja til að skapa aðstæður fyrir aukið hagræði. Neytendur eiga heimtingu á því að fyrirtæki ákveði sjálfstætt hvernig þau hegða sér á markaði og hvernig þau verðleggja vörur sínar.“ Jafnframt minnir eftirlitið á þær skyldur stjórnenda fyrirtækja að taka sjálfstæðar ákvarðanir í rekstri sínum án tillits til umfjöllunar á vettvangi hagsmunasamtaka. Samkeppniseftirlitið hefur óskað eftir frekari upplýsingum frá SFF eftir að Katrín Júlíusdóttir fjallaði um verðlag trygginga. Vísir/Baldur Gerði athugasemd við ummæli framkvæmdastjóra Samtaka fjármálafyrirtækja Nýlega kallaði Samkeppniseftirlitið eftir upplýsingum frá Samtökum fjármálafyrirtækja í tilefni af umfjöllun samtakanna um verðlagningu aðildarfyrirtækja sinna á vátryggingamarkaði. Í grein Katrínar Júlíusdóttur, framkvæmdastjóra samtakanna, sem birt var á Vísi var meðal annars fjallað um áhrif launaþróunar, bótafjárhæða og annarra þátta á iðgjöld. Hefur Samkeppniseftirlitið það nú til skoðunar hvort ástæða sé til að hefja frekari rannsókn vegna þessa en samkeppnisyfirvöld hafa áður haft afskipti af opinberu fyrirsvari sömu hagsmunasamtaka um verðlagsmál tryggingafélaga.
Samkeppnismál Verðlag Tengdar fréttir Skoða hvort tryggingafélög hafi brotið lög þegar talsmaður svaraði FÍB Samkeppniseftirlitið skoðar nú hvort íslensk tryggingafélög hafi brotið gegn samkeppnislögum með því að ræða verðlagningu félaganna innan hagsmunasamtaka. 18. september 2021 08:41 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Reynslunni ríkari og opnar Wilson‘s Pizza á ný Viðskipti innlent Stefna að opnun Fiskbúðarinnar við Sundlaugaveg í maí Viðskipti innlent „Enda hefði hún hreinlega ekki nennt að þræta við mig endalaust“ Atvinnulíf Oculis komið á markað Viðskipti innlent Tekjuhæsti fyrsti ársfjórðungur í sögu Icelandair Viðskipti innlent Hættir sem fjármálastýra Ljósleiðarans Viðskipti innlent Anna Kristín nýr framkvæmdastjóri hjá atNorth Viðskipti innlent Helmingur Íslendinga sáttur við falsanir og eftirlíkanir Neytendur Hefja viðræður um kaup á 47 þúsund fermetrum af atvinnuhúsnæði Viðskipti innlent Viðskipti með bréf í Oculis hefjast á morgun Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tekjuhæsti fyrsti ársfjórðungur í sögu Icelandair Hefja viðræður um kaup á 47 þúsund fermetrum af atvinnuhúsnæði Reynslunni ríkari og opnar Wilson‘s Pizza á ný Stefna að opnun Fiskbúðarinnar við Sundlaugaveg í maí Anna Kristín nýr framkvæmdastjóri hjá atNorth Oculis komið á markað Viðskipti með bréf í Oculis hefjast á morgun Hættir sem fjármálastýra Ljósleiðarans Tekur við stöðu framkvæmdastjóra Grænna skáta Fækkuðu tímum í skriffinnsku um tugi klukkustunda á mánuði Breytinga þörf eigi Landsbankinn ekki að keppa á markaði Jón nýr formaður bankaráðs Landsbankans Sýn hættir við að selja vefmiðla og útvarp Sólin sest fyrir fullt og allt á Sælunni Opna verslun á Keflavíkurflugvelli þar sem Arion var áður Bein útsending: Hraunflæðihermar og hönnun hraunvarna Hafa náð nýjum sölusamningi í Bandaríkjunum Framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu til Visku Bein útsending: Hrein tækifæri í orkumálum Fljúga til Wales í haust í tengslum við landsleikina Þau vilja stýra Framkvæmdasýslunni – Ríkiseignum Edda og Helgi bætast í hóp eigenda Expectus Segir frumvarp um húsaleigulög geta leitt til hærra leiguverðs Tekur við stöðu rekstrarstjóra Stöðvar 2 Fasteignamarkaðurinn hitnar en framkvæmdum fækkar Eyjólfur vill halda formennsku áfram Tekur við stöðu forstjóra Securitas Magni kaupmaður látinn 88 ára að aldri Bankaráðið sakar bankasýsluna um aðdróttanir Guðbjörg orðin pítsudrottning Sjá meira
Skoða hvort tryggingafélög hafi brotið lög þegar talsmaður svaraði FÍB Samkeppniseftirlitið skoðar nú hvort íslensk tryggingafélög hafi brotið gegn samkeppnislögum með því að ræða verðlagningu félaganna innan hagsmunasamtaka. 18. september 2021 08:41