Fresta læknisheimsóknum og leysa ekki út lyf vegna kostnaðar Kristinn Haukur Guðnason skrifar 23. maí 2023 14:01 Aðgengi öryrkja að heilbrigðisþjónustu hefur versnað síðan árið 2015 þegar síðasta stóra könnun var gerð. Vísir/Vilhelm Ný könnun Félagsvísindastofnunar sýnir að læknis og lyfjakostnaður sé mörgum öryrkjum um megn. Prófessor í félagsfræði segir að staðan hafi versnað síðan árið 2015.
Stór hluti öryrkja metur heilsu sína slæma en sækir ekki heilbrigðisþjónustu vegna kostnaðar. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri könnun Félagsvísindastofnunar sem unnin var fyrir Öryrkjabandalagið og Rúnar Vilhjálmsson félagsfræðiprófessor. Könnunin, sem ber heitið Lífskjör og heilbrigðisþjónusta á Íslandi, var kynnt klukkan ellefu í dag í Háskóla Íslands. Rúnar segir helstu niðurstöðurnar þær að verulegur fjöldi einstaklinga, ekki síst öryrkja, fresti læknisheimsóknum sem talin er þörf fyrir og leysi ekki út ávísuð lyf. Þriðjungur sleppir sjúkraþjálfun Tæplega 43 prósent þeirra sem glíma við mestu örorkuna, 75 prósent eða meira, hafa þurft að hætta við eða fresta læknisheimsókn á undanförnum sex mánuðum og 26 prósent sleppt því að leysa út lyf. Þá hafa 30 prósent sleppt tíma hjá sjúkraþjálfara. Rúnar Vilhjálmsson félagsfræðiprófessor hefur áhyggjur af því hvert velferðarkerfið stefnir.Háskóli Íslands/Kristinn Ingvarsson Viss hliðstæða sé hjá mjög tekjulágum og einstæðum foreldrum. „Vissir hópar eru eðlilega með mikla þörf fyrir heilbrigðisþjónustu. Það gildir um öryrkja en það gildir líka einnig um lágtekjuheimili, að þörfin þar er meiri fyrir heilbrigðisþjónustuna,“ segir Rúnar. „Þess vegna er mikilvægt í kerfi eins og okkar, sem á að vera félagslegt kerfi sem veitir öllum jafnan aðgang að nauðsynlegri þjónustu heilbrigðiskerfisins, að tryggja þessum hópum sem jafnast aðgengi.“ 80 þúsund krónur í lyf 10 prósent svarenda í könnuninni eru með 75 prósenta örorku. 67 prósent þeirra meta líkamlega heilsu sína slæma og 33 prósent andlega heilsu sína. Þetta er jafn framt hópur sem þarf að fara mun oftar á heilsugæslu, til sérgreinalækna, sjúkraþjálfara, sálfræðinga, félagsráðgjafa og hjúkrunarfræðinga. Meira en 40 prósent þessa hóps ver meira en 80 þúsund krónum árlega í læknisþjónustu og sömu upphæð í lyf. „Það kemur í ljós að þessir hópar eru að verja hærra hlutfalli af sínum ráðstöfunartekjum til heilbrigðismála. Þar er komin ein skýringin á því af hverju við erum með aðgengishindranir,“ segir Rúnar. Þróunin hafi ekki verið í jákvæða átt miðað við stóra könnun stofnunarinnar frá árinu 2015, nema síður sé. Aðgengi öryrkja og tekjulágra að heilbrigðisþjónustu hafi versnað. Könnun Félagsvísindastofnunar var net og símakönnun. Úrtakið var 11 þúsund manns og svarhlutfallið rétt tæplega 50 prósent. Gögnin voru vigtuð eftir kyni, aldri, búsetu og menntun.
Heilbrigðismál Vísindi Lyf Félagsmál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Innlent Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent Segir Helgu fara með rangt mál Innlent Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gular viðvaranir víðs vegar um landið Veður Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Fleiri fréttir Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Segir Helgu fara með rangt mál Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Sjá meira