V-one er nýtt íslenskt fyrirtæki sem sérhæfir sig í þjálfun og ráðgjöf fyrir flugmenn og flugfélög á alþjóðavísu. Fyrirtækið var stofnað af teymi þjálfunarflugstjóra Icelandair sem allir búa yfir víðtækri reynslu í starfi. Teymið samanstendur af þeim Friðbirni Oddssyni, Hergli Sigurðssyni, Herði Má Þorvaldssyni og Kristni Páli Guðmundssyni. Hörður Már segir að uppsagnir sem Icelandair neyddist til að grípa til vegna kórónuveirufaraldursins hafi verið kveikjan að stofnun félagsins.

„Við sem stöndum að baki V-one hittumst til að spá í hvað við gætum farið að gera og þá kom upp þessi hugmynd. V-one starfar á alþjóðlegum flugmarkaði með það að leiðarljósi að nýta þá umgjörð, starfskrafta og þekkingu sem skapast hefur með íslenskum flugrekstri síðustu áratugi," segir Hörður Már en að hans sögn hefur V-one þegar tekið að sér þjálfun fyrir erlend flugfélög, sem búi til ný og gjaldeyrisskapandi störf og tekjur fyrir ferðaþjónustuna.

V-one hefur gengið frá samningi við TRU Flight Training Iceland, þjálfunarsetur sem staðsett er að Flugvöllum í Hafnarfirði og er í meirihlutaeigu Icelandair. Þar hefur V-one aðgang að Boeing 757, 767 og 737 flughermum, ásamt öðrum útbúnaði sem snýr að þjálfun áhafna.

Hörður Már segir að þessa stundina vinni V-one hörðum höndum við að hafa samband við flugfélög víða um heim til að kynna þjónustu sína fyrir þeim. Með tilkomu V-one sé jafnframt flugmönnum sem misst hafa vinnuna hjá íslenskum flugfélögum á undanförnum mánuðum gert kleift að viðhalda starfsréttindum sínum og uppfylla kröfur um árlega endurþjálfun. Með því verði þeir samkeppnishæfir þegar flugiðnaðurinn tekur við sér á ný.

„Fraktflugfélög víða um Evrópu eru í mannaráðningum núna þannig að við erum að hjálpa íslenskum flugmönnum sem eru að fara í atvinnuviðtöl og próf hjá erlendum félögum að undirbúa sig. Það er sæmilega mikið að gera í því núna og við erum að nýta flughermana í þjálfunarsetrinu í Hafnarfirði undir þá starfsemi," segir Hörður Már. Hann reiknar með að verkefni félagsins verði mest tengd þessari þjálfun íslenskra flugmanna meðan veiran gengur yfir. „En til framtíðar erum við mest að einblína á að geta þjónustað erlend flugfélög," segir hann.

Vilja einnig þjálfa flugfreyjur og -þjóna

Hörður segir að sambærileg ráðgjafa- og þjálfunarfyrirtæki séu þegar í rekstri á alþjóðlegum flugmarkaði og mörg flugfélög hafi séð hag sinn í því að nýta sér þjónustu þeirra með hagræðingu í rekstri að leiðarljósi. Því hafi V-one teymið fulla trú á að félagið sé komið til að vera.

Þá segir hann að þó að þjálfun flugmanna hafi verið aðaláhersla félagsins hingað til stefni það einnig á að bjóða upp á þjálfun fyrir flugfreyjur og -þjóna. „Við erum í tengslum við fólk sem hefur mikla reynslu af því að þjálfa flugliða og hefur áhuga á að vinna með okkur. Við stefnum því á að veita heildstæða þjálfun fyrir flugáhafnir, bæði fyrir fólkið sem starfar inni í flugstjórnarklefa sem og þá sem starfa í farþegarýminu."

Nánar má lesa um málið í Viðskiptablaðinu sem kemur út á morgun. Áskrifendur geta nálgast blaðið undir Tölublöð , aðrir geta skráð sig í áskrift hér . Meðal annars efnis í blaðinu er:

  • Úttekt á stóru fjársvikamáli tengdu rafmyntum hjá samtökum sem sögðu höfuðstöðvar sínar vera á Íslandi.
  • Kanadíska námu- og rannsóknafyrirtæki hefur eignast öll leyfi til gullleitar á Íslandi með kaupum á Melmi ehf. Fyrirtækið hyggst vinna íslenskt gull „beint frá býli“.
  • Umfjöllun um kosningar og efnahagsmál vestanhafs.
  • Oddviti Sjálfstæðismanna í borgarstjórn telur vafa um að réttlætanlegt sé að borgin eigi fjarskiptafyrirtæki.
  • Huginn og Muninn eru á sínum stað auk Týs sem fjallar um endurupptöku hrundóma.
  • Gert er grein fyrir hærri ávöxtunarkröfu á skuldabréfamarkaði og rætt við hagfræðing um þróunina.
  • Nýr upplýsingaöryggisstjóri Þekkingar, Áslaug Dagbjört Benónýsdóttir, er tekin tali.
  • Hið nýstofnaða alþjóðlega ráðgjafafyrirtæki Empower sérhæfir sig í jafnrétti - í víðara samhengi en aðeins launamálum. Fyrirtækið byggir á árangri Íslands, íslenskra fyrirtækja og sannreyndri aðferðarfræði.