Anatomi­e d'une chute hlýtur gullpálmann

Justine Triet með gullpálmann fyrir myndina Anatomi­e d'une chute.
Justine Triet með gullpálmann fyrir myndina Anatomi­e d'une chute. AFP/Patricia De Melo Moreira

Kvikmyndin Anatomi­e d'une chute í leikstjórn Justine Triet hlaut gullpálmann (f. Palme d'Or) á kvikmyndahátíðinni í Cannes nú í kvöld. Er þetta í þriðja sinn sem kvikmynd í leikstjórn konu hlýtur þessi virtu kvikmyndaverðlaun. 

Triet er frönsk og þegar hún tók við verðlaununum í kvöld gagnrýndi hún frönsku ríkisstjórnina harðlega. 

„Gríðarleg alda mótmæla hefur verið í landinu vegna breytinga á eftirlaunaaldri. Það er áfall að sjá hvernig þessi mótmæli hafa verið kæfð,“ sagði Trier er hún tók við gullpálmanum.

Tran Anh Hung.
Tran Anh Hung. AFP/Christophe Simon

Gullpálminn eru stærstu verðlaun kvikmyndahátíðarinnar. 21 kvikmynd voru tilnefndar til verðlaunanna og þar af var sjö leikstýrt af konum. 

Í Anatomi­e d'une chute fer hundurinn Messi með hlutverk og vann hann hundapálmann í gær fyrir hlutverk sitt.

Leikari ársins Koji Yakusho.
Leikari ársins Koji Yakusho. AFP/Patricia De Melo Moreira

Tran Anh Hung hlaut verðlaun í flokki leikstjóra fyrir kvikmyndina The Pot-au-Feu. Koji Yakusho var valinn leikari ársins fyrir myndina Perfect Days en Merve Dizdar var valin leikkona ársins fyrir kvikmyndina About Dry Grasses. 

Leikkona ársins, Merve Dizdar.
Leikkona ársins, Merve Dizdar. AFP/Patricia De Melo Moreira

Þykja konur hafa verið áberandi á kvikmyndahátíðinni í ár og minntist bandaríska leikkonan Jane Fonda á það þegar hún veitti gullpálmann. „Það voru aldrei konur í flokki leikstjóra þá og okkur datt aldrei í hug að það væri eitthvað rangt við það,“ sagði leikkonan þegar hún minntist sinnar fyrstu hátíðari í Cannes árið 1963. „Við höfum náð miklum árangri síðan þá,“ bætti Fonda við. 

Jane Fonda minntist fyrstu kvikmyndahátíðar sinnar í Cannes 1963.
Jane Fonda minntist fyrstu kvikmyndahátíðar sinnar í Cannes 1963. AFP/Christophe Simon
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú hefur mun meiri áhrif á umhverfi þitt en þú sjálfur heldur. Gættu þess að þú fáir þá viðurkenningu sem þú átt skilið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Lone Theils
4
Anna Sundbeck Klav
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú hefur mun meiri áhrif á umhverfi þitt en þú sjálfur heldur. Gættu þess að þú fáir þá viðurkenningu sem þú átt skilið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Lone Theils
4
Anna Sundbeck Klav